31. mars 2004

Kerling í átaki

Kerling tók sig til um daginn og grenjaði utan í æskuvinkonu sinni í þeim tilgangi að fá hana til að þjálfa sig. Æskuvinkonan, sem er dugnaðarforkur, skrifstofustjóri og einkaþjálfari, gat auðvitað ekki neitað enda vinskapurinn í húfi. Kerling er orðin þreytt á sjálfri sér. Kerling er löt og geðvond á morgnanna, í engu líkamlegu formi, alltaf talandi um þegar hún var einu sinni svona og svona grönn og flott, og það versta er að kerling kemst ekki í fötin sín lengur. Buxur of þröngar. Bara öll föt orðin of þröng.

Nú hefur kerling mætt tvisvar galvösk í gymmið. Þá hefur kerling ekki snert á sælgæti í tvo daga og hunsað gosið í jafnmarga. Æskuvinkonan sýnir sanna vinkonutakta og hringir reglulega í kerlingu til að tékka hvort enn sé lífsmark með henni og hvort hún sé nokkuð að svindla. Kerling og karl fóru svo í Bónus og Hagkaup í dag og keyptu grænmeti, ávexti, spelt og fjörmjólk. Karl ætlar að styðja kerlingu í átakinu. Hann þekkir kerlu sína og veit að það þýðir ekkert annað en að sýna bulgur og klettasalati ósvikinn áhuga meðan kerling er í þessum ham. Kerling hefur það markmið að léttast um 6 kíló. Svona til að byrja með. Svo staðföst er kerling í ásetningi sínum að hún lét sig hafa það að vakna á óguðlegum tíma í morgun klukkan hálf sex til að fara í gymmið. Og henni til mikillar undrunar komst hún að því að það er til líf fyrir klukkan átta á morgnanna. Þannig var æfingastöðin troðfull af fólki, sem átti það sameiginlegt að vera einbeitt á svip, með vatnsbrúsa í einni og lóð í annarri. Brjálað stuð á liðinu, allir hrópandi hvatningarorð og klappandi höndunum. Kerling efldist heilmikið við að umgangast þetta glaða og orkumikla fólk, og er sannfærð um að án þess hefði hún lyppast niður eftir korters hopp. Kerling var moli og hélt út tímann. Og er æðislega stolt af sjálfri sér. Reyndar þurfti kerling að fara einu sinni út úr tíma, en það var nú bara til að koma í veg fyrir að það liði yfir hana, kerlingu langaði ekki til að liggja eins og dauð skata á miðju leikfimisgólfinu og fór því út og pústaði í 5 mínútur.

Kannski er von fyrir kerlingu. Kannski hættir hún að vera svona löt á morgnanna. Og kannski grennist hún um þessi örfáu kíló sem hindra hana í að vera fullkomin. Eða svona næstum því þannig.

21. mars 2004

Skrukka mætir til leiks

Hér eftir mun kerling ekki sitja ein að góðgætinu, skrukka ákvað að taka föggur sínar og flytja sig um set. Kerling og skrukka munu því sjá um það í sameiningu að matreiða ofan í ykkur. Samrunar eru í tísku, líka hér í þessu koti.

Góðan og blessaðan daginn.
Það er skrambi fínn dagur framundan. Ekkert í gangi, ekkert að gerast. Bara dinglumdangl. Jú, reyndar verður að þvo þvott. Kerling á barn sem hefur útlit ævintýraprinsessu, en þessi litla prinsessa er hinn mesti sóði. Kerling skilur ekki hvaðan barnið hefur þessa sóðatendensa, enda sjálf með eindæmum þrifin. Kerling hefur þó sínar grunsemdir og liggur karlinn og hans gen undir grun. Kerling hefur nefnilega oft staðið karl sinn að svínaríi. Þannig keypti kerling handa karli glæsilega rándýra æfingatösku, enda fór karlinn að rækta sjálfan sig fyrir um ári síðan og fór að mæta á fótbolta- og hlaupaæfingar. Kerling hefur ekkert orðið vör við þessa æfingatösku. Reyndar var kerling búin að gleyma tilvist þessarar tösku. Og ekki hefur hún orðið vör við æfingaföt karls í þvottinum. Reyndar hefur kerling ekkert leitt hugann að þessu, enda um nóg annað að hugsa. Einn morguninn, þegar kerling opnaði forstofuskápinn til að ná í kápu sína og skó, gaus á móti henni hræðilegur fnykur. Minnti lykt þessi á nálykt, svo stæk var hún. Datt kerlingu því helst í hug að eitthvað væri dautt í skápnum, að kötturinn hefði falið bráð sína þarna og hefði svo ekkert komist að henni, því skápurinn er oftast lokaður. Upphófst nú mikil leit. Var allt rifið út úr skápnum, en ekkert fannst. Ekkert lítið fugls- eða músarlík var að finna ofan í skóm heimilismanna eða í vettlingaskúfunni. Beindist nú athygli kerlingar að efri hillum skápsins. Var þar frekar snyrtilegt um að litast, ekkert dautt þar við fyrstu sýn. Var þar bara að finna æfingatöskuna góðu, sem og nokkur teppi og dúnúlpu. Af einhverri rælni opnaði kerling æfingatöskuna. Og þar voru upptök fnyksins mikla. Úldnir íþróttaskór og mygluð æfingaföt. Kerling botnar ekkert í þessu, enda karl mjög þrifalegur maður. En það eru þessir leyndu sóðatendensar, sem endurspeglast svo í afkvæminu. Við allsherjartiltekt í barnaherberginu nú fyrir skömmu var ýmislegt undarlegt dregið fram í dagsljósið. Þannig hafði afkvæmið troðið skítugum fötum undir kommóðuna (skýringin var sú að hún nennti ekki að fara með þetta í óhreinatauið), og jafnframt var margt grunsamlegt í dótakössunum, sumt líktist epli, annað líktist bananahýði.
Kerling hefur því staðið í ströngu við að uppfræða heimilismenn um gildi hreinlætis og góðrar tiltektar. Nú er bara að vona að það skili sér.

16. mars 2004

Kerling er bara í þokkalegu skapi núna. Veðrið sérlega gott og heimilið þokkalega hreint. Barnið í baði og bóndinn áfastur við sjónvarpið. Og það lítur út fyrir að það styttist í að skrifstofan verði tilbúin, en kerling hefur verið á vergangi undanfarna daga. Hefur enga skrifstofu og verður að láta sér nægja pínulítið skrifborðshorn til að hímast við. Til allrar hamingju hefur verið mikið um mætingar og allrahanda vesen, og hefur kerling því getað unnið vinnuna sína utan vinnustaðar. Nú, svo hefur vinnan barasta gengið ágætlega, mikið af sigrum og lítið af ósigrum. Þá fékk nákominn ættingi kerlingar stöðuhækkun, sem var löngu tímabær. Að gefnu tilefni lagði kerling leið sína í Kringluna og keypti koníak handa upphafna manninum og fór svo í nýju blómabúðina á neðri hæðinni og lét pakka gjöfinni inn. Kerling fékk svo góða þjónustu að hún greiddi með bros á vör aldrei þessu vant. Og þá er nú heldur betur komið tilefni til að gleðjast. Góð þjónusta er að verða útdautt fyrirbæri á Íslandi. Eða ekki. Kannski hefur hún bara aldrei verið til?? Kannski er kerling bara orðinn svo gömul og víðförul að hún veit nú hvað felst í góðri þjónustu. Kerling fékk afbragðsþjónustu þarna í Kringlunni í dag. Með bros á vör pakkaði afgreiðslustúlkan gjöfinni inn, hún nostraði við hana án þess þó að eyða of miklum tíma í þetta. Festi kortið smekklega á gjöfina (kerling hefur oft lent í því að kortið hefur fokið af gjöfinni þegar út úr búðinni er komið), og henti ekki debetkorti kerlingar í hana þegar hún var búin að strauja það, heldur rétti henni það kurteisislega. Og brosti fallega til kerlingar. Sérlega notalegt.
En það allra besta er samt enn ótalið; Lítil frænka og stór frænka búsettar erlendis eru loks að koma í heimsókn til vorrar ástkæru fósturjarðar. Kerling hefur ekki getað klipið í litlu frænku í sjö og hálfan mánuð. Það verður mikið klipið næstu tvær vikurnar.
Kerling er því ekki tautin í blogginu í dag. Aldeilis ekki.

6. mars 2004

Kerling hefur ákveðið að tauta á veraldarvefnum. Lítið verður tautað í dag enda er förinni heitið á nokkrar opnunarsýningar og má kerling ekkert vera að því að hanga í tölvunni.