Kerlingu finnst dimma óvenju snemma þessa dagana og samt hefur skammdegið ekki enn náð hámarki sínu. Í gær var komið rökkur klukkan 15. Og þrátt fyrir að aðventan sé gengin í garð þá er ekki komið mikið af jólaljósum.
Myrkur myrkur myrkur. Svo sem í lagi svo lengi sem sálin myrkvast ekki.
29. nóvember 2005
Skammdegi
Birt af Kerling kl. 08:32 |
28. nóvember 2005
Helgin
Helgin var fín. Fjölskyldan fór á Harry Potter á laugardagskvöldið. Kerling öskraði tvisvar. Börnin sátu hins vegar róleg, höfðu fulla stjórn á sér og blikkuðu ekki auga í mestu hryllingsatriðunum.
Svo var skreytt. Jólasveinaþema í hillunni, snjókarlaþema í gluggakistunni. Vantar fleiri engla til að búa til englaþema.
Birt af Kerling kl. 08:30 |
21. nóvember 2005
Hvaða tröll er kerling?

Viðskiptajöfur
Þú ert nýjungagjörn, yfirveguð félagsvera.
Það fyrsta sem viðskiptajöfurinn hugsaði þegar Ólafur og Dorrit trúlofuðust var hvaða áhrif það myndi hafa á gengi íslensku krónunnar. Honum finnst Donald Trump vera svalur... líka peningaklemmur. Hann ætlar, er, var eða vildi að hann hefði verið í Versló - en ekki söngleiknum.
Viðskiptajöfurinn tekur ákvarðanir með heilanum en ekki hjartanu og þarf að hugsa sig um þegar einhver spyr hann: "Peningana eða lífið!?" Hann hefur stáltaugar og getur lagt allt undir og í framtíðinni verður viðskiptajöfurinn annað hvort moldríkur - eða staurblankur.
Það er toppurinn að vera í teinóttu.
Hvaða tröll ert þú?
Já...þetta með versló gerði alveg útslagið. Kerling á ekkert skylt við þetta tröll og skrifar þessa furðulega niðurstöðu á reikning þess að vera að taka svona vitlaus próf snemma á mánudagsmorgni.
Birt af Kerling kl. 09:10 |
18. nóvember 2005
Átveisla
Í dag er föstudagur og framundan er átveisla.
Mötuneytið býður upp á kræsingar í dag, aldrei þessu vant. Kótilettur í raspi. Síðar í dag mun kerling fara í hanastélsboð og þar verður örugglega á boðstólum eitthvað af þessum skemmtilegum snittum og smáréttum sem Íslendingar eru snillingar í að búa til. Og svo auðvitað guðaveigar í fljótandi formi. Nú svo í kvöld mun kerling ásamt sínu hyski fara í Perluna í hið árlega jólahlaðborð, sem reyndar datt út í fyrra. Annað kvöld eru svo kerling og karl að fara í árlega átveislu saumaklúbbsins.
Vá hvað það er skemmtileg helgi framundan!
Birt af Kerling kl. 10:48 |
17. nóvember 2005
Laugatuð
Kerling fór í Lauga um helgina. Tilefnið var ærið, hópur meyja að skemmta verðandi brúði áður en hún hyrfi í hjónadyngjuna (vonandi að eilífu). Kallast í daglegu tali að gæsa.
Kerling hlakkaði nokkuð mikið til, enda aldrei farið áður, og sá fyrir sér að fá kærkomna hvíld í ilmgufunum og heita pottinum. Kerling bjóst við miklu, enda kostaði heimsóknin í baðstofuna 3.500 krónur. En kerling varð fyrir miklum vonbrigðum. Ferlega kuldalegt, og ekki fann kerling neina piparmyntulykt eða sítrónulykt í þessum gufuböðum eins og auglýst hefur verið. Baðstofan var dimm, köld og blaut og húðflyksur svömluðu um í sjávarsalts nuddpottinum. Gólfið var hált og kerling mátti þakka sínu sæla að detta ekki á rassinn. Enginn starfsmaður tók á móti kerlingu og fylgdarliði til að kynna "herlegheitin" og enginn starsmaður sást þarna inni. Kerling og yngismeyjar fóru svo inn í veitingastaðinn og máttu bíða þar í hálftíma eftir þjónustu þótt staðurinn hafi vitað af þessum hópi þremur vikum áður. Um síðir voru nachos flögur bornar fram ásamt salsasósu, en ekki bólaði á víninu. Þegar kerlingu var farið að leiðast þófið þá spurði hún kornunga þjónustustúlku hvað væri eiginlega í gangi. Telpan svaraði því til að þau fyndu ekki hvítvínsflöskurnar. Loks fundust þó flöskurnar og þá tók það um korter að hella í glösin. Að lokinni hvítvínsdrykkju var aftur farið inn í baðstofuna og sullað í pottinum í smá stund, en síðan var farið upp úr. Kerling, örþyrst eftir gufuböðin og nachosið, leitaði eins og blóðhundur að köldu vatni í búningsklefanum, en einungis voru þarna kranar með heitu vatni. Loks fann kerling krana, en þá var þar ekkert ílát til að hella vatninu í. Kerling reyndi að drekka beint úr krananum, en þetta var glasakrani, ekki hefbundinn, og þess vegna frussaðist vatnið út um allt, en kerlingu stóð á sama, svo þyrst var hún.
Og þetta kostaði 3.500 krónur.
Birt af Kerling kl. 08:46 |
15. nóvember 2005
Sokkermom
Kerling fór með trítluna í fimleika í gær og þar sem um nokkuð langan veg er að fara þá ákvað kerling að bíða eftir dömunni, enda lítill tími til að gera eitthvað á klukkutíma þegar umferðin er sem mest. Kerling var óskaplega sniðug, hitaði te á brúsa og tók Arnaldinn með. Sat svo bara í hugglegheitum og sötraði te og las bókina. Sem byrjar leiðinlega og er klisjukennd, en á 100 blaðsíðu þá snarbatnar hún og fer að verða áhugaverð og nokkuð góð.
En mikið fannst kerlingu gaman að fara í svona mömmuhlutverk. Fleiri mömmur voru þarna að bíða eftir börnum sínum. Ein var að læra, reiknaði einhver ósköp. Og ein prjónaði. Og ein spilaði við yngri börnin. Einn pabbi var þarna og hann gerði ekki neitt, sat bara og starði tómlega fram fyrir sig. Ætli þetta segi eitthvað um kynin? Erum við stelpurnar alltaf svona duglegar að finna okkur eitthvað að gera? Eða var þetta bara tilfallandi? Framhald í næstu viku, kerling ætlar svo sannarlega að endurtaka leikinn, alveg frábært að fá 100% frið til að lesa í friði og stúdera umhverfið.
Birt af Kerling kl. 08:49 |
8. nóvember 2005
Tölvuleikur
Tölvuleikur hefur heltekið kerlingu. Þetta er fremur ómerkilegur leikur, svona í ætt við tetris. Nema hvað, kerling situr við tölvuna á kvöldin eins og óð manneskja og urrar ef einhver vogar sér að trufla hana. Og ekki nóg með það, þegar kerling er orðin svo stirð að hún neyðist til að hætta, þá flögra þessir kallar í hugskotum kerlingar og bara láta hana ekki í friði.
Og í nótt dreymdi kerlingu tölvuleikinn.
Og í morgun snérist fyrsta hugsunin um tölvuleikinn.
Þetta heitir að fá eitthvað á heilann.
Birt af Kerling kl. 08:30 |
4. nóvember 2005
1. nóvember 2005
Í morgun...
...vaknaði kerling upp af skelfilegum draumi. Enn hrjáð af martröðum næturinnar staulaðist kerling inn á bað og það fyrsta sem kerling sá er hún leit í baðspegilinn var stóreflis bóla á kinninni. Olli það enn meiri skelfingu en hinar vondu draumfarir því framundan var erfiður dagur þar sem margt fólk átti eftir að koma við sögu. Hamförunum linnti ekki, því auk þeirra sem kerling vissi að hún þurfti að vera í samskiptum við, bættust við nemar úr háskólanum sem höfðu fengið það verkefni frá kennara sínum að fylgjast með kerlingu að störfum.
Svei attan.
Birt af Kerling kl. 18:30 |