Jæja, þá er haustið gengið í garð. Veðrið, skólinn, berin, hausttískan. Skrukku þykir mjög vænt um haustin og saknar þess sérstaklega þegar hún og kerling fóru ásamt vinkonustóðinu að kaupa skólabækur. Lykt af nýjum bókum er mikið turn-on og fyrstu dagarnir í skólanum þegar ásetningurinn í mikla skólasigra var mjög ákafur eru ógleymanlegir. Skrukka man eftir piltum tveimur í bekknum hennar sem kláruðu nýju stærðfræðibækurnar sínar á einum degi. Þeir mættu sigrihrósandi í skólann með bækurnar útfylltar og viti menn, allt var hárrétt, enda höfðu stoltir foreldrar drengjanna farið yfir dæmin og hjálpað við að leiðrétta þau örfáu dæmi sem þörfnuðust þess. Skrukka man að hún og kerling urðu hálf hvumsa, enda mikil áskorun, nú þyrftu þær líka að klára bækurnar sínar auk málfræðibókanna fyrir næsta dag, svona til að sýna fram á að statusinn væri óbreyttur, þ.e. þær væru og yrðu séníin í bekknum.
En öllum að óvörum þá brást kennarinn ókvæða við. Hann varð eiginlega bara alveg bálreiður! Hann húðskammaði drengina, sagði að þessi bók átti að duga út misserið og að þeir yrðu að gjöra svo vel og taka bækurnar heim og stroka út allt sem þeir höfðu skrifað í þær. Strákarnir fóru heim með skottið á milli fótanna og mættu næsta dag með óútfylltar bækur sem kennarinn fletti svo í gegn með miklum strangleika, svona til að sannfæra sig um að ekki fyndist lítið blýantsstrik hér eða þar.
Skrukka og kerling áttu ekki orð yfir heimsku drengjanna, vissu þeir ekki að það MÁTTI BARA GERA 5 BLAÐSÍÐUR Á VIKU!!!
Svona var þetta, börnum var refsað fyrir dugnað. Skrukka vonar að svo sé nú ekki lengur í dag, eða hvað?
20. ágúst 2005
Haust
Birt af Skrukka kl. 09:36 |
16. ágúst 2005
Ber
Ekki það að kerling hafi verið ber (fyrir utan þegar hið hefðbundna morgunbað á sér stað, sem og tiltekin tegund af leikfimi), heldur er kominn sá árstími þegar kerling og hennar hyski fer að huga að berjum.
Kerling er orðin það mikilsverð berjatínslukona að Snjófus er farinn að reiða sig á árlegt liðsinni hennar í þeim efnum. Ákveðið hefur verið að gefa Ströndum einn sjéns í viðbót og er berjaferð þangað fyrirhuguð fyrstu helgina í september. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum heimamanna mun berjaspretta þar vera góð, og útséð að berin munu ná fullum þroska eftir eina og hálfa viku. Munu börn sem fullorðnir vera sett í það verkefni að tína aðalbláber, undir styrkri leiðsögn kerlingar og Snjófusar. Hendur barna eru sérlega vel til þess fallnar að tína ber, enda eru þær smáar og óstirðar. Ekki þýðir að röfla um barnaþrælkun og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna við kerlingu, enda vitað að þessi tilteknu börn hafa gaman að berjatínslu og líta á þetta sem hvert annað sport.
Berjatínsla er fyrirbæri sem fáir hafa reynt sem fullorðnar mannverur. Flestir muna eftir berjatínslu úr æsku, en færri eru þeir sem hafa reynt þetta sport á fullorðinsárum. Er það því kerlingu sérlegt tilhlökkunarefni að kynna fyrir kerlingartetrinu Skrukku þetta skemmtilega sport, en Skrukka ætlar með vestur á firði. Mun nú koma í ljós hvort Skrukka hafi í sér þá seiglu sem til þarf svo hún verði mikilsverð berjatínslukona eins og kerling og Snjófus.
Vonandi hefur Skrukka líka haft rænu á því að safna krukkum, en kerlingu virðist Skrukka vera hálfrænulaus þessa dagana. T.d. í gær kom Skrukka heim til kerlingar og lagðist upp í sófann eftir að hafa heilsað kerlingu með drafandi röddu. Frá sófanum heyrðist svo tuð um þreytu og vinnuálag (svona eins og hún sé eina manneskjan í heiminum sem þurfi að vinna....), svo dó það tuð nú út, en Skrukka hafði þá sofnað í sófanum. Eftir nokkurn tíma vaknaði drottningin, teygði úr sér og stóð á fætur, sagði gúdbæ og fór.
Er það nú.....
Birt af Kerling kl. 17:41 |
10. ágúst 2005
Konur til sölu
Í hroðbjóðnum sem ber nafnið DV er heilsíðuauglýsing frá súlustaðnum Goldfinger. Mynd af fáklæddri stúlku á fjórum fótum uppi í rúmi þekur hálfa síðuna, en fyrir neðan er texti þar sem kemur fram að Goldfinger sé eini súlustaðurinn á höfuðborgarsvæðinu. Síðan kemur þessi setning:
"Auk glæsilegra kvenna, erum við með mikið úrval viskítegunda, óvíða er boðið upp á annað eins."
Kerling spyr; Er ekki verið að falbjóða konur sem hverja aðra vöru, svo sem viskítegundir?
Kerling mun hleypa af stað rannsókn til að kanna hvort um löglegt athæfi sé að ræða. Þá mun hún einnig kanna viðhorf manna til þessa athæfis.
Birt af Kerling kl. 13:15 |
7. ágúst 2005
Klúður
Benedikt Sigurðsson, stjórnarformaður KEA segir að stjórn fyrirtækisins sé á þeirri skoðun að lög um fæðingarorlof eigi ekki að gilda um lykilstjórnendur á háum launum. Þessi ummæli jafnframt þeim fréttum að Andri Teitsson hefur sagt upp sínum störfum hafa valdið miklum usla í höfði skrukku. Kemur tvennt til. Jafnvel þótt staðhæft hafi verið að tafarlaus uppsögn væri sameiginleg niðurstaða framkvæmdastjóra og stjórn fyrirtækisins skal bent á það að stjórnin í upphafi samþykkti ekki fæðingarorlofstöku framkvæmdastjóra. Undir svona þrýstingi þá telur skrukka að ekki sé hægt annað en að segja upp eða fara í mál. Maður sem þarf að sjá fyrir sex börnum myndi væntanlega forðast að fara í mál og allri þeirra fjölmiðlaumfjöllun sem því fylgir, þar sem það gæti skaðað atvinnutækifæri í framtíðinni. Hvaða fyrirtæki vill ráða framkvæmdastjóra sem augljóslega tekur fjölskyldu sína framyfir vinnuna? Ha?
Nú, hins vegar gefa þessi ummæli Benediktar sterklega í skyn að konur í barneign eiga ekkert erindi í framkvæmdastjórn. Það myndi ekki ganga upp að vera alltaf að beita þessum kerlingum "þrýstingi" að segja upp þegar þær verða óléttar, ekki satt?
Æ, æ, æ, æ. Skrukka getur ekki annað en vorkennt KEA mönnum fyrir að hafa verið svona vitgrannir og skammsýnir. Hvílíkt klúður fyrir þá!
Birt af Skrukka kl. 10:35 |
5. ágúst 2005
Heita vatnið
Heita vatnið var tekið af hverfinu frá kl. 19:00 í gær til kl. 07:00 í morgun. Eða þannig átti það að vera skv. tilkynningunni sem kom inn um lúguna fyrir nokkru. En nei. Það stóðst ekki. Heita vatnið var ekkert komið í morgun þegar kerling ætlaði að fara í sitt hefðbundna morgunbað kl. 07:40. Stóð kerlingagarmurinn við kranann og skiptist á að skrúfa frá og skrúfa fyrir og stara nývöknuðum sljóum augum á kranann, ekki alveg tilbúin í svona frávik frá morgunrútínunni, enda örmagna eftir að hafa verið að vaska upp með ísköldu vatni til kl. 02:10 undangengna nótt eftir einn æsilegasta kjaftasögusaumaklúbb sem haldinn hefur verið í mannaminnum í híbýlum kerlingar. Kerling hringdi med det samme í Orkuveituna og spurði krumpaðri röddu hvort vatnið hefði ekki átt að vera komið kl. 07:00. Röddin hinum megin, augljóslega vön krumpuðum röddum kerlinga sem vilja sitt morgunbað, sagði með svo rólegri röddu að kerling nánast sofnaði aftur, að vatnið hefði verið sett á kl. 07:10, hverfið væri bara svo stórt og því vatnið lengi á leiðinni.
Kerling tók við svo búið sér aftur stöðu við kranann og lék sama skrúfafráskrúfafyrir leik og hún hafði gert fyrir símtalið. En eftir 20 mínútna æfingar við kranann gafst kerling upp.
Kerling fór því ósturtuð í vinnuna.
Svei Orkuveitunni.
Birt af Kerling kl. 19:25 |
3. ágúst 2005
Kerlingar á fjöllum
Kerling hefur farið í sína fyrstu almennilegu fjallgöngu. Það er sumsé hægt að gera eitthvað í fyrsta skiptið þegar maður er orðinn þrjátíuogeitthvaðára. Fjallgangan var dásamleg, og varð enn dásamlegri þegar kerling uppgötvaði á þriðja degi að hún hafði ekki hugsað eina hugsun um það sem hafði verið að plaga hana síðustu dagana fyrir göngu.
Fylgdarlið kerlingar samanstóð nánast einungis af konum. Það var svolítið skondið að sjá þróunina sem varð í hópnum þegar líða tók á. Menn (eru líka konur) fóru í hlutverk. Ein tók að sér að verða mamman, nuddaði alla í bak og fyrir og var fyrst upp með plásturinn ef einhver minntist á blöðru og var óþreytandi við að hvetja fólk áfram þegar það dröslaðist örmagna upp erfiðasta hjallann. Þessi góða kona ávann sér gríðarlegar vinsældir.
Síðan var það þessi duglega sem var alltaf fremst og síðan þessi sem var nánast alltaf síðust (þ.e. fyrir utan þau skipti þegar kerling rak lestina móð og másandi) . Ljósmyndarinn var þarna auðvitað til staðar og ekki má gleyma fararstjóranum sem upplýsti mannskapinn um staðhætti og örnefni af miklu öryggi. Þá var þarna trúðurinn sem var alltaf voðalega fyndinn og litla krúttið sem bræddi alla með sínu bjarta brosi. Útlendingur var í hópnum sem og öldungurinn. Þá voru þarna tveir karlmenn. Einhverra hluta vegna tóku þeir að sér að passa allar þessar kerlingar og dunduðu sér þess á milli við gps tækin sín.
Furðulegt hvernig fólk dettur inn í hlutverk.
En kerling er þess fullviss að þess sé ekki langt að bíða þar til næsta ferð verður farinn, enda á kerling allan útbúnað sem búið er að testa. Og búnaðurinn stóðst prófið.
Birt af Kerling kl. 22:04 |