27. maí 2004

Dópið börnin

Dóttir kerlingar er í vinahópi. Komið var að kerlingu að halda vinahópafund í dag. Kerling var í öngum sínum, því hvað er verra en börn með illa lyktandi hendur sem hafa verið hvar sem er hvenær sem er, kl. 17:00, glorhungruð og geðvond vegna blóðsykursfalls, þreytt og úttauguð eftir langan skóladag?

Kerling lagði á ráðin. Fór út í búð á leiðinni heim, keypti snúða, kleinuhringa, kex með extra miklu súkkulaði, djús með miklum sykri og sleikjó. Náði í litla angann sem valhoppaði spenntur vegna fyrirhugaðs vinafundar út í bíl (venjulega þarf kerling að draga angann út úr skólanum með valdi) og keyrði heim í kotið við undirleik söng mjóraddaðs barns. Á slaginu fimm fóru börnin að tínast inn. Á slaginu 10 mínútur yfir fimm voru snúðar og tilheyrandi bornir fram. Þegar börnin voru augljóslega komin í sykurvímu og komin með gljáa í augun, var farið í bochia með appelsínum og sítrónum. Korter í sex var kominn galsi í mannskapinn, kominn tími á meiri sykur. Börnin látin fá vel innpakkaðan sleikjó, sem þau fengu ekki að borða fyrr en þeim tókst að opna pakkann með annarri hendi. Svo var sest og spilað memory meðan sleikibrjóstsykurinn var soginn af áfergju. Svo var farið í feluleik. Þá fóru leikar að æsast og augljóslega rétt farið að örla á fráhvarfseinkennum. En þá fóru foreldrarnir að koma og sækja börnin sín. Þannig að hættan var forbí, kerling losnaði við að taka afleiðingum gjörða sinna, börnin voru komin í vörslu foreldra þegar fráhvarfseinkennin urðu all-veruleg. Auðvitað var litli angi kerlingar með jafn mikil fráhvarfseinkenni og hinir gríslingarnir, en kerling hleypti anganum bara út, sem hljóp út í vorið eins og belja nýsloppin úr vetrarprísundinni. Einhver öskur og óhljóð bárust inn um gluggann með suðaustanáttinni, en kerling lokaði bara glugganum og fór að huga að hugðarefnum sínum.

26. maí 2004

Breyting og hrun commentakerfisins

Jæja, kerling ákvað að breyta um lúkk og kommentakerfið hrundi. Eftir armæðu og andvörp ætti þetta vonandi að vera komið í lag. Hver fann eiginlega upp á þessu a href?

23. maí 2004

Minn og þinn

Kerling vaknaði við lofsöng lóunnar í morgun. Hvernig geta Frakkar etið þennan dásemdarfugl? En kerling vaknaði líka vegna annarra hljóða. Úti fyrir mátti heyra litlar telpur í hrókasamræðum; Minn ætlar þarna upp brekkuna með hjólið, þinn fer þarna og svo hittast þeir þarna! En minn getur ekki farið þarna, getur þinn ekki bara gert það? Sko, minn er að fara í heimsókn til þíns, svo þinn verður að fara þangað!

Hvað er sætara en litlar telpur og lóur á sunnudagsmorgni?

15. maí 2004

Stríð

Pólitískt stríð geysar á Frónni. Skrukka eins og aðrir útlagar fylgist spennt með. Forseti lýðveldisins kemur óvænt heim. Skallagrímur kallar forsætisráðherra gungu og druslu. Forsætisráðherra segir forseta vanhæfan. Og núna bíða allir spenntir eftir svari forsetans. Önnur eins spenna hefur ekki átt sér stað í Skrukku sem og annarra manna minnum. Og svo er Júróvisjon á morgun. Skrukka gæfi aðra höndina fyrir flugmiða heim svo hún geti tekið veraldlegan en ekki tæknilegan þátt í þessum hamförum. Hún er svo bjartsýn að ætla að allt fari í háaloft; forsetinn skrifar ekki undir og efnt verður til þjóðaratkvæðagreiðslu....og þingið leysist upp......og Davíð verður sýnt hvar hann á að kaupa ölið.

12. maí 2004

Aftur til fortíðar

Karl kerlingar er erlendis. Kerling hefur dröslað sjálfri sér og afkvæminu í föðurhúsin í kvöldmat á hverjum einasta degi í vikunni. Boðið hefur verið upp á kræsingar a la mamma, kerlingu til mikillar ánægju, og þá aðalrétt og eftirrétt. Kræsingarnar eru svohljóðandi:

1. Mánudagsverður: Ítalskur kjúklingaréttur/Eggjamjólk
2. Þriðjudagsverður: Grillaður lax/Kakósúpa
3. Miðvikudagsverður: Grillaðir pabbaborgarar/Jarðaberjaís m.súkkulaðisósu.

Og auðvitað fylgir aðalréttunum ferskt salat, gúrmeikartöflur og sósur. Sá hængur er á að afkvæmið vill bara ekkert hverfa aftur í kotið að málsverði loknum.

Leiðin að hjarta mannsins liggur í gegnum magann, a.m.k. hvað kerlingu varðar, og greinilega afkvæmið líka. Með hlýhug hugsar kerling nú til fortíðar, er hún var lítil telpa í föðurhúsum. Ávallt dúkað borð og tauservíettur, aðalréttur og eftirréttur og fjörlegar samræður við matarborðið. Ekkert hefur breyst. Sem er svo yndislegt, því hvað vekur meiri öryggistilfinningu en hefðir og siðir? Kerling er alsæl með að vera komin aftur í fortíðina og er staðráðin í því að hafa dúkað borð og tauservíettur svona þegar karl kemur að utan. En ætlar að sleppa eftirréttinum, hann er svo skratti fitandi.



7. maí 2004

Heilsa

Skrukka á lítinn sætan unga. Hann er núna lasinn. Svæsin hálsbólga og 39 stiga hiti. Þetta er víst að ganga á leikskólanum og benti kennarinn skrukku á að fara með unga til læknis og fá sýklalyf. Skrukku vefst tunga um tönn. Þetta gerðist á versta tíma. Skrukka var að skipta um heilsustúpidtryggingu og komst að því í gær að Sylvia barnalæknir hinn besti tekur ekki þessa tryggingu. Skrukka er að bíða eftir bæklingi frá tryggingarfélaginu sem inniheldur lista af þeim barnalæknum sem taka viðkomandi tryggingu. Tekur víst sjö til tíu virka daga að fá þennan lista í hendur. Hvað gera bændur þá? Skrukka hefur ekki hugmynd um hvað bændur myndu gera, og eru þeir þó oft ansi úrræðagóðir. Það eru nokkrir möguleikar. Fara til Sylvíu og borga tugi þúsunda fyrir skoðun og skammt af sýklalyfjum. Fara á spítalann og bíða í einn og hálfan sólarhring eftir aðstoð. Gefa unga verkjalyf, súpu, tender, loving, care og frostpinna og láta hann þrauka. Þetta er Ameríka í dag. Guð forði öllum frá því að Ísland ástkæra fósturjörð verði svona á morgun.

4. maí 2004

Samningstækni

Kerling var á námskeiði í dag. Að læra samningstækni. Í lokin var hópnum skipt í tvo hópa og átti hópur kerlingar, sem samanstóð af henni og 3 karlmönnum, að finna bestu lausnina fyrir konu sem var að skilja við mann sinn, og undirbúa samningaviðræður um skilnaðarkjör. Hinn hópurinn átti að gera það sama fyrir karlinn. Svo þegar menn voru búnir að teikna upp lausnir, og ákveða kröfur, átti að setjast að samningaborði. Námskeiðið tókst nú ekki betur til en svo að viðræður leystust upp og ákveðið var að fara með málið í opinber skipti. Greinilegt að samningstækni er ekki á færi allra. Reyndar telur kerling sig vita á hverju málið strandaði. Karlarnir tóku sig mjög alvarlega og gáfu ekki gramm eftir. En að sama skapi voru þeir svakalega flinkir og fljótir að reikna í huganum og varpa fram tölum. Þeir litu á þetta sem keppni. Ætluðu sér að sigra andstæðinginn. Kerling, eina konan í hópnum, leit allt öðruvísi á þetta. Kerling telur að oft sé best að reyna að ná hagstæðum samningum fyrir báða aðila. Og þá er eftirgjöf nauðsynleg af beggja hálfu. Þetta snýst ekki um samkeppni, heldur samvinnu.

1. maí 2004

Endurnýjun lífdaga

Kerling hefur verið upptekin.

Nr. 1 Kerling fór til Köben
Nr. 2 Kerling sagði upp vinnu sinni
Nr. 3 Kerling fór á Cortéz
Nr. 4 Kerling stofnaði eigið einkahlutafélag
Nr. 5 Kerling ákvað að gifta sig með pomp og prakt

Kerling og karl héldu til Kaupmannahafnar í næstliðinni viku með vinnufélögum kerlingar. Var þetta hin skemmtilegasta ferð. Kerling gætti hófsemis fyrsta kvöldið, en dembdi í sig margslungna alkóhóldrykki það næsta. Passaði sig þó á því að troða belginn af mat áður en gengið var til náða í dagrenningu, og var því nokkuð hress eftir stuttan svefn. Þriðja kvöldið eyddi kerling í rússíbana og öðrum tívolítækjum. Því fjórða eyddi hún með Kay Scarpetta í flugvélinni á leiðinni heim. Jú, það var farið í skoðunarferð og Strikið var mælt út og eitthvað glingur keypt. Vinkonur heimsóttar og börn kjössuð. Ánægjuleg ferð í alla staði.
Þegar heim var komið var farið að skoða rekstraráætlanir og stofnkostnað og þvíumlíkt. Kerling er svo heppin að vera umkringd sterkum og ákveðnum konum. Með þennan bakhjarl verður allt svo auðvelt, líka það að stofna eitt fyrirtæki. Þar sem kerling telur sig nú ekki vera síðri en strákarnir, var auðvitað ekki um annað að ræða en að taka oggupínulitla áhættu og demba sér út í eigin rekstur. Var uppsagnarbréf lagt inn til yfirmannsins og um kvöldið var farið á Cortéz. Fékk kerling þar guðdómlega útrás fyrir alla spennu sem safnast upp við svo stórar ákvarðanir. Kerling stappaði fótum og klappaði og naut þess að finna kraftinn frá þessum geðþekka manni. Daginn eftir ákvað svo kerling að breyta fyrirhuguðu látlausu brúðkaupi í megapartí ársins. Fyrst maður er á annað borð farinn að hugsa stórt, því ekki að láta það sama yfir allt ganga?
Kerling hefur ekki verið svona framkvæmdarsöm í heil sjö ár. En þá tókst henni að eignast sambýlismann, eitt barn með honum, og tvö stjúpbörn á 6 og hálfum mánuði. Barnið vildi flýta sér í heiminn. En það tekur víst mannslíkamann sjö ár að endurnýja sig.

Kerling gekk í endurnýjun lífdaga við upphaf þessa árs.