Skrukka er að drepast úr leti og ládeyðu. Nennir engu. Skrukka heldur að þetta sé sykurinn. Fimm kíló komin í sumarfríinu. Hreinsun er framundan. Skrukka nennir ekki að skrifa meir.
12. júlí 2010
Ferðaplönum hent út um gluggann
Eitthvað hefur kerling fundið á sér að Vestfirðir yrðu ekki á kortinu þetta sumarið, málið er að kerling átti ekkert að góna upp í himinn, hún átti að góna á börnin. Gíslatökuræningjarnir lögðust í rúmið með aggressíva hlaupabólu og sér ekki enn fyrir endann á þeim ósköpum.
Í dag var ævintýrasiglingu um Breiðafjörð aflýst. Og ferjunni Baldri til Flateyjar. Og hótelinu í Flatey. Siglingu með Baldri til Brjánslækjar og gistingu í Tálknafirði.
Kerling er á bömmer.
Birt af Kerling kl. 22:38 |
7. júlí 2010
Dópistadruslan
Skrukka býr á góðum stað enda er skrukka góðborgari í smáborgarastíl; staðsetning skiptir máli. Nágrannar skipta líka máli og hefur skrukka hingað til verið afar ánægð með sambýlið. Menningarfólk, heilbrigðisgeirafólk, forstjórar, fræðingar og deildarstjórar. Allir heilsast kurteisislega á göngunum og endrum og eins er staldrað við og málefni hússins rædd í bróðerni. Voða fínt fólk. Svo flutti dópistadruslan inn. Við hliðina á skrukku.
Reglulega heyrast bassadynkir, hurðum er skellt allan sólarhringinn og dauninn af dópinu er skrukku lifandi að drepa.
Þessi dópistadrusla er skrukku svo til ama að skrukka hefur tvisvar næstum lent í handalögmálum við hana. Í fyrra skiptið öskraði dd á skrukku að hún væri að greiða 130 þúsund krónur fyrir mánaðarleiguna.
Daglega er eiturlyfja neytt innan eins meters frá stofu skrukku. Lyktin læðir sér stundum inn í vistarverur skrukku og á þeim stundum truflast eitthvað í hausnum á skrukku og hún veit...ójá hún veit.. að hún getur murrkað líftóruna úr þessu kvikindi ef það stæði fyrir framan hana.
Þetta eru válegar hugsanir. En reiðin stafar líka af því að skrukka komst svo að því (í gegnum hinar yndislegu krókaleiðir) að dópistadruslan þiggur fjárhagsaðstoð frá borginni (125 þúsund krónur mánaðarlega). Dópistadruslan er svo líka að vinna svart fyrir nokkra veitingastaði í borginni. Hún keyrir um rammskökk á nýjum sætum Yaris og klæðist eins og Paris Hilton steal (ekki splurge).
Þrátt fyrir að poki af grasi hafi fundist í anddyrinu og þrátt fyrir dópistalæti á öllum stundum sólarhringsins, þá getur lögreglan ekkert gert. Ekkert. Þeir sögðu skrukku að það væru 45 lögreglumenn á landinu og þeir væru í sérsveitinni. Hinir væru öryggisverðir.
Þannig að við hlið skrukku býr kona sem kúgar íbúa hússins og misnotar velferðarkerfið.
Þetta líka svakalega velferðarkerfi.
Skrukka er farin að skoða síður anarkista.
Birt af Skrukka kl. 21:43 |
6. júlí 2010
Gónt upp í himinn
Kerling er að fara í frí. En áður en það gerist þarf að semja eina greinargerð og nokkur bréf. Síðan kemur fríið. Og verður að þessu sinni innanlands. Kerlingu finnst það svolítið skrítið og hefur af því pínulitlar áhyggjur að kannski skapast ekki "frístemning". Fríið verði bara eins og ein löng helgi, sofið þar til skæruliðar vekja mann, hangið í náttfötum fram eftir degi, sett í eina þvottavél, velt því fyrir sér í klukkutíma hvort maður eigi að fara í sturtu eða skella öllu liðinu í sund. Hvað eigi að borða. Eitthvað svona í þessum dúr. Reyndar er smá ferðalag fyrirhugað og það vestur á firði. Síðast þegar kerling fór að sumri til vestur á firði skall á fárviðri. Í júlí. Og nú er kerling aftur að fara þangað. Í júlí. Og kerling horfir til himins og reynir að lesa úr skýjunum og geislum sólarinnar hvert stefnir með þetta blessaða veður sem hefur svo gaman af að skipta um ham. En skýin eru bara grá og sólin lætur ekki sjá sig. Kerling græðir ekkert á góni. Og það kemur fyrir að kerling bölvi kreppunni og sjái eftir að hafa ekki látið kæruleysið ráða för og pantað ferð til heitu landanna. Í stað þess að vera í keng yfir íslensku veðri og vindum, og láta veðrið kúga sig eins og svo oft áður.
Birt af Kerling kl. 19:27 |