Hér er ekkert haust. Þrjátíu stiga hiti, sól og blíða. En það er ótrúlegt hversu hægt er að blekkja hugann. Skrukku finnst fráleitt að vera í stuttbuxum, því það er jú komið haust og þá á maður að vera í síðbuxum, peysu og jafnvel í yfirhöfn. Skröggur hennar skrukku er innfæddur Flórídabúi og hann er alltaf í stuttbuxum. Jafnvel þegar þau bjuggu á klakanum þá tók hann ekki annað í mál en að vera í stuttbuxum þegar hann gekk á Esjuna eldsnemma vors. Hann er aldrei með kaldar tær, en skrukka er alltaf með kaldar tær, haust, vetur og vor, líka þó hún búi í hitabeltinu. Það er rétt á sumrin sem tær skrukku eru ekki við frostmark.
Þetta er merkilegur andskoti og núna skilur skrukka af hverju sumir Tíbet munkar geti svifið um í lausu lofti, því máttur hugans er með ólíkindum.......langsótt ef til vill en stundum þarf svo að vera to make a point you know.
Annars vekur það athygli skrukku hversu litla athygli kennaraverkfallið fær í fjölmiðlum. Öll skólabörn á eyjunni eru heima við og samt hefur lífið einhvern veginn gengið sinn vanagang. Ekkert er gert í málunum og foreldrar virðast geta haldið áfram að vinna sína vinnu. Muldrað er í hornum og bloggheimum, en ekkert er aðhafst í kastljósi fjölmiðla. Þetta er eitthvað svo dæmigert: katastrófuástand og Íslendingar gera eins og þeim einum er lagið: redda málunum.
Eldri börn passa yngri börnin, tölvuleikir, sjónvarp, bókasöfn og sundlaugar. Lífið heldur sinn vanagang. Ekkert mál fyrir Jón Pál, við reddum þessu.
Þetta er sorglegt.
20. október 2004
Haustið
Birt af Skrukka kl. 15:39 |
16. október 2004
Leiðindi
Kerlingu leiðist svo ósegjanlega núna að það hálfa væri hellingur. Kerling veit upp á hár hvenær henni leiðist. Það er þegar hún er farin að skoða landakort með áfergju og er farin að skoða hitatölur og veðurspár víðs vegar um heiminn. Kerling keypti sér m.a. stóra skrifborðsmottu með landakorti af öllum heiminum til að sefa sig þegar leiðindatímabil ganga yfir. Landafræði hefur ávallt heillað kerlingu, m.a. var hún alltaf með bestu einkunn í því fagi í barnaskóla, man enn hvað stærstu ár fyrrum Sovétríkjanna hétu (jamm, svo langt er síðan kerling var í barnaskóla), Dvína, Don, Dnépr og Volga. Hana.
Sem barn og unglingur sá Kerling sig í anda starfa við fornleifauppgröft með barðastóran hatt og umkringd innfæddu fólki, eða með stóra sveðju í hönd, ryðjandi sér leið inn í frumskóginn til að finna týndan ættbálk í anda Margareth Mead. Eitthvað annað en það sem kerling gerir í dag. Með rækjulúkkið við skrifborðið og tölvuna. Rýnandi ofan í lagabókstafinn, kannandi fræðiskrif og dómafordæmi. Hm... kannandi.....já...kannandi....kerling er þá eiginlega könnuður ef út það er farið. Sei og svei, kannski getur kerling bara sátt unað við sitt. Burt með leiðindin, best að skella liðinu í sund og láta klórinn þvo í burtu leiðindin.
Birt af Kerling kl. 11:08 |
7. október 2004
Húsnæði
Í síðustu viku var það atvinna, nú er það húsnæði. Að vísu leystust ekki atvinnumálin, skrukka er enn í atvinnuleit, hennar ferska sýn á stjórnun í íslensku atvinnulífi lét undan 20 ára starfsreynslu. Ekkert hægt að gera í því. Endilega hafið samband við skrukku ef þið vitið um vinnu.
Nú, en það voru húsnæðismálin. Í sunnudags Heraldnum mun íbúð skrukku vera á lista yfir 2Bed2Bath íbúðir. Skrukka náttúrulega ætlar að okra á sinni íbúð, svona eins og allir hinir.
En íbúð skrukku er ekki eina húsnæðisissjúið. Í síðustu viku hófst fjórða og jafnframt síðasta önn skrukku í framhaldsnámi. Húsnæðið sem hefur hingað til verið boðið upp á hefur verið í "state of the art building" þar sem skrukka situr makindarlega í leðurhægindastól í fallegu auditorium, hefur kjöltutölvuna sína nettengda og meltir allt sem hrýtur af vörum mentoranna, auk þess sem hún skýtur inn einu og einu gullkorni. Þetta hefur verið hin ánægjulegasta upplifun, en skrukku finnst þetta líka alveg sjálfsagt, enda er hún (í umboði LÍN) að borga morðfjár fyrir þessa menntun.
En svo bar við þennan fyrsta dag fjórðu annar að húsnæðinu var breytt. Í stað nútíma þæginda blasti við fyrirlestrarsalur sem var langt undir þeim stöðlum sem skrukka átti að venjast og sem hún taldi sig (LÍN) vera að borga fyrir. Í stuttu máli varð skrukka æfareið, efndi til nemendafundar og skipaði öllum að skrifa Dean (skólameistara viðskiptaskorar) bréf og mótmæla kröftuglega þessum aðstæðum. Ekki það að hún hafi búist við einhverjum viðbrögðum, þar sem allt gerist á sniglahraða í svona málum á hjara veraldar (lesist Í-S-L-A-N-D-I). Það kom henni því ánægjulega á óvart þegar bréf frá Dean barst henni og bekkjarfélögum hennar í netformi:
Dear MSM-HR Students,
First of all, I would like to apologize for any inconveniences that you might have experienced due to the recent room change. I am painfully aware that this change was unexpected, and I can assure you that we explored many different options before making this decision. The success of our marketing campaign this fall resulted in programs with larger cohorts than were expected, forcing us to play a game of musical classrooms in a very tight space situation. In the end, we felt that this solution would have the least impact on all of the Chapman Graduate Programs due to the time frame of the change.
Nonetheless, I agree with a number of you who have written me to express your discomfort with the quality of the current classroom. Let me tell you what we plan to do:
I have instructed Ana Maria Escobar to contract with maintenance to thoroughly clean that room, shampoo the carpet and the chairs, replace all missing lightbulbs, replace all front panels in the desks and conduct a complete upgrading of the facilities to the extent that time permits. I visited the room this week and found it to be indeed below our standards. We will correct this, and do it as soon as possible.
We are in the process of installing a Wireless Communication system in that room so that you can connect to the Chapman network as if you were in the MARC building. This may take a week or two at the most.
We will order breakfast and lunch for the entire class every Saturday from here on out to the end of the program, and not just while you are in the Education building.
You will be returned to the MARC building in January as promised.I realize that this does not entirely compensate you for your inconvenience, but I trust you will understand the necessity of this change.If you have any further questions or concerns, please do not hesitate to contact your program manager, Ana Maria Escobar (escobara@fiu.edu) or our Director of Accounting and Program Support, Claudio Pico (picoc@fiu.edu).Thank you for your understanding.
Jose R. de la Torre
Dean
Nú, þetta er hið ljúfasta bréf. Að vísu skilur skrukka ekki af hverju hún á að hafa samband við direktorinn í endurskoðun, en henni svona dettur í hug að direktornum í stjórnun hafi verið bolað úr skrifræðinu þar sem hann hefur hreinlega ekki staðið sig....augljóslega. Svo er annað mál sem skrukka veltir fyrir sér og það eru sætin. Skrukku svona datt snögglega í hug hvort hún ætti líka að biðja um mjúka púða fyrst bekkurinn er kominn með annan fótinn inn fyrir dyrnar hjá Dean.
En það sem skrukka á ekki orð yfir eru þessi skjótu viðbrögð. Jeddúddamía! Svona nokkuð myndi eflaust ekki gerast ef einhverjir ofdekraðir stúdentar myndu pípa heima á Íslandi.
Já, já.
Birt af Skrukka kl. 20:36 |