Kerling er í miklu átaki þessa dagana. Eftir tveggja vikna sukk á sólarströnd í sumar kom kerling heim heilum 3 kílóum þyngri. Sukkið fólst í því að kerling leyfði sér að drekka einn bjór á dag í tvær vikur. Einn lítinn flöskubjór. Kerling fékk áfall er hún steig á vigtina er heim var komið, komin yfir 70 kílóa múrinn sem hefur hingað til ekki verið rofinn nema þegar gíslatökuræningjar hafa tekið sér bólfestu í kroppi kerlingar. Kerling hugsaði ráð sitt í 3 vikur. Eftir þá yfirlegu var niðurstaðan sú að allt innan skynsamlegra marka hafi verið reynt í baráttunni við aukakílóin, nema að ráða sér einkaþjálfara. Og það gerði kerling. Í fyrsta tímanum vigtaði þjálfarinn og mældi kroppinn í bak og fyrir og lét kerlingu taka þol- og styrktarpróf. Þegar því var lokið upplifði kerling sig í fyrsta skipti sem gamla. Hvort það var niðurstaða mælingarinnar og lítið úthald sem hafði þau áhrif, eða sú staðreynd að sá sem mældi kerlingu er bæði ungur og sætur, er kerling ekki alveg klár á. En kerling ákvað að taka á honum stóra sínum og drösla sínum feita rassi daglega í ræktina. Og viti menn, hvað gerðist? Jú, eftir heils mánaðar puð hefur kerling losað sig við eitt kíló. Eitt heilt kíló. Einhvers staðar segir að góðir hlutir gerist hægt. Best að ríghalda í það til að tapa ekki glórunni.
16. september 2009
13. september 2009
6. september 2009
Eldhúsþrif
Það er stundum einkennilegt hvernig eitt lítið atvik getur hleypt af stað heilli atburðarás. Karl sullaði á gólfið og kerling þreif sullið þar sem karl var að reyna að hafa hemil á skæruliðanum í miðjunni. Kerling ákvað þá, fyrst hún var í stuði, að þrífa allt eldhúsið. Og þá inni í skápunum. Eftir tveggja tíma törn fóru út 5 pokar af útrunnum matvörum, pottum og öðru eldhúsdóti. Skæruliðarnir voru heppnir að þeim var ekki mokað út í leiðinni.
Eftir eldhúsþrifin var hóað í tiltektarliðið, þ.e. karl og elstu heimasætuna, og þeim gert grein fyrir því að ef hlutirnir verða ekki settir á sinn stað eftir tiltekt muni eitthvað agalegt gerast.
Það var annars merkilegt við þessa tiltekt að það fór ekki á milli mála að síðustu allsherjarþrif áttu sér stað fyrir 2 árum. Ártalið 2007 var býsna algengt á útrunnu matvörunni. En það er náttúrulega alveg geggjaðslega táknrænt.
Birt af Kerling kl. 22:44 |
4. september 2009
Stormur
Í nótt dreymdi kerlingu storm sem feykti öllu um koll. Kerling átti fótum sínum fjör að launa. Í fyrrinótt komu sprungur í jörð og bifreið kerlingar, með fjölskylduna innanborðs, steyptist ofan í eina. Lenti reyndar mjúklega á botninum en kerling sá ólgandi hraunstrauminn allt um kring. Karl kerlingar, sem sat við stýrið, sagði hins vegar afar bjartsýnn; Iss, þetta verður allt í lagi.
Nú veit kerling ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Hvort hún sé endanlega gengin af göflunum sökum yfirgengilegrar neikvæðrar umfjöllunar í fjölmiðlum um "ástandið í þjóðfélaginu". Eða hvort enn frekari erfiðleikar séu framundan. Neikvæðnin er farin að segja til sín. Meira að segja kerling, harðjaxlinn mikli, felldi tár þegar fyrsta frétt kvöldsins var lesin um niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu. Kerling er samt vongóð um betri tíð, a.m.k. hvað hana sjálfa varðar. Þannig er henni minnistæður draumur sem vitjaði hennar um miðbik júlí sl. Kerling var stödd í húsi. Húsið var afskaplega fallegt, risastórt, hátt til lofts og vítt til veggja. Bjart og með sérkennilegri viðarklæðningu sem minnti á stuðlaberg. Nýtískulegt en klassískt. Og kerling varð svo hamingjusöm í fallega húsinu sínu að hún hóf upp raust sína og söng eitt stykki aríu. Þegar kerling vaknaði upp af draumnum ómuðu ljúfir tónar hennar eigin raddar enn í huga hennar.
Vitur kona sagði kerlingu að halda vel utan um draumana. Þannig að kerling ætlar að reyna að halda þeim til haga.
Birt af Kerling kl. 20:49 |