Uppáhaldsþáttur kerlingar er í kvöld, nefnilega Lost. Mikið er nú gaman að horfa á þessa þætti. Samt er svo skrítið að eftir hvern einasta þátt segir karl "það gerðist ekkert í þessum þætti".
Kerling er auðvitað ekkert sammála. Þetta eru útspekuleraðir þættir og fullt að gerast hverju sinni. Þarna má sjá hvernig samfélag siðaðra manna verður smám saman til með öllum sínum flóknu samskiptareglum. Og vísir er kominn að lögregluvaldi til að koma skikkan á hlutina. Hugmyndin er væntanlega fengin frá John Locke sem skrifaði um náttúruréttinn í bók sinni Ritgerð um ríkisvald, enda heitir ein aðalpersónan einmitt John Locke. Kerling hefur ekki viljað kíkja á erlendar síður til að forvitnast um þættina, enda skíthrædd um að þá verði öll spenna eyðilögð því margt er rausað á heimasíðum eins og kunnugt er...
Kerling hefur minnkað sykurát, sem er gott mál, enda hefur hinn linnulausi höfuðverkur sem hrjáð hefur kerlingu síðasta misseri minnkað til muna. En kerling hefur uppgötvað nýtt nammi, það fæst í Bónus og heitir de Bron. Nammi sem er sykurlaust, laust við litarefni, glúten, laktósa og margt fleira sem þykir óhollt. Kerling stútaði rétt í þessu heilum poka...namm smjatt og slurp. Kerling týndi sér bara í þessu nammiáti, loksins hægt að borða nammi sem er a.m.k. ekki óhollt.
20. júní 2005
Týnd
Birt af Kerling kl. 21:49 |
18. júní 2005
Þjóðhátíð
Orðið þjóðhátíð tengist í huga kerlingar við Vestmannaeyjar. Sem er auðvitað alveg út í hött, enda ber orðið með sér að um sé að ræða hátíð þjóðar. En þetta orð er oftast notað í tengslum við þjóðhátíð eyjamanna, þannig er það nú bara. Þegar við hin erum t.d. að skírskota til þjóðhátíðardagsins 17. júní, þá notum við oft "á 17. júní". Sem er auðvitað málfræðilega rangt því þegar við tölum um aðra daga þá segjum við t.d. ekki "á 29. janúar". En sýnir bara svart á hvítu að eyjamenn hafa stolið þjóðhátíðinni frá okkur. Kerling heyrði m.a.s. einn Reykvíking segja við samborgara sinn í gær: "Gleðilegan 17. júní!"
En að öðru. Skrukka bloggaði. Og ataði kerlingu saur svona í leiðinni. Kerling gæti alveg lagst í skotgrafirnar, en mun ekki gera það, a.m.k. ekki í bráðina. Enda var takmarkinu náð, Skrukka drattaðist til að blogga.
Hér í dalnum er núna 17° stiga hiti. Sem er gott mál. Það þarf víst að eitra fyrir skordýrum og kantskera beð og því eins gott að veðrið sé bærilegt.
Birt af Kerling kl. 10:20 |
17. júní 2005
Blogg
Skrukku er hótað samstarfsslitum ef hún ekki bloggar. Reyndar var nú skrukka að hugsa um systraslit um daginn þegar hún áttaði sig á því að síðastliðna 3 mánuði eða svo hefur kerlingarbeyglan bara einu sinni komið í heimsókn.....og lá megnið af þeim tíma upp í rúmi. Þurfti skrukka nærfærnislega að færa kerlingu kaffi og með því. Svo krossaði hún fingur og vonaði að kerling myndi taka við sér og verða viðræðuhæf. Jú, það endaði með því að kerling kom auga á nýtt stofuteppi sem skrukka hafði nota bene keypt mánuði fyrr. Fór kerling med det samme og keypti sér alveg eins teppi.
Það er svona spurning um hvað það er í lífi þessu sem gildir. Er það eymdarblogg á veraldarvefnum, eða eru það venslaböndin?
Allavega, skrukka er töffari og óttast ekkert svona kerlingarpíp. Samstarfsslit mæ es.
Það hefur að vonum verið mikið að gerast í skrukkulífi. Flutningur á norðurhjara veraldar, ný vinna og allt með því. Að auki hefur skrukka verið grasekkja og því hefur allur aukatími farið í þvotta, skúringar, gæðatíma með unga og svona eðlilegt snatt sem verður óeðlilega fyrirferðamikið þegar konur sjá alfarið einar um daglegan rekstur heimilis. En kerling skilur það ekki......jú skrukku minnir að kerling hafi þurft að vera ein heima í viku einhvern tímann fyrir langalöngu. Þá var mikið vælt og augu ranghvolfðust ótt og títt yfir því hvað væri nú ömurlegt að vera svona einn..........flisspiss.
Skrukka lætur þetta gott heita núna....enda þarf hún að hugsa um unga sinn......já og ungann hennar kerlingar. Hún er að hugsa um hann líka. Hann var hérna í nótt og núna þarf að gefa ungum ristað brauð og kakó, klæða þá, greiða þeim og koma þeim út í sautjándajúníhöld. Gleðilega þjóðhátíð!
Birt af Skrukka kl. 09:37 |
11. júní 2005
Laugardagur
Í dag er laugardagur. Kerling elskar laugardaga. Besti dagurinn í vikunni. Enda bara fyrsti í helgarfríi. Kerling tekur voðalega lítið frí í sumar. Eina sem er ákveðið er ein vika í júlí, en þá verður farið með stórfjölskyldunni á Vestfirði. Kerling hlakkar mikið til, enda Vestfirðir dulmagnaður staður. Svo endurnærandi staður, einhver kraftur í fjöllunum sem er smitandi.
Annars hefur þetta sumar látið lítið fyrir sér fara, enn er mikill loftkuldi þrátt fyrir að miðbik júní nálgist. Annars er ágætt að miða við 17. júní. Kerling man eftir einum hlýjum 17. júní, allir hinir voru fremur kaldir, vindasamir eða vætusamir. En oft hefur komið mikið hlýindaskeið um mánaðarmót maí/júní, a.m.k. í borginni. Draumur kerlingar rétt eftir áramót um kuldann yfir landi hefur svo sannarlega ræst, veturinn var fremur kaldur, en samt varð kerling hissa er hún sá að skv. meðaltalstölum þá var hann kannski ekkert svo kaldur. Það komu bara svo fjári kaldir dagar inn á milli hér á Suðvesturhorninu.
Á starfstöð kerlingar eru eilífar sameiningarviðræður í gangi, nú vilja menn stækka og fara að græða meiri peninga. Kerling er reyndar mjög hlynnt því og sér fyrir sér að slíkt geti leitt af sér góðar breytingar sem komi kerlingu mjög vel. Hægt að gera stærri hluti ef fleiri eru til staðar. En talandi um sameiningarviðræður, kerling hefur ákveðið að henda skrukku úr þessu samstarfi nema skrukka bloggi innan 10 daga frá og með deginum í dag að telja. Kerlingu er það í lófa lagið enda með alla leynikóða og aðgangsorð að þessari síðu.
Birt af Kerling kl. 13:23 |
4. júní 2005
Fuglasöngur
Í Fossvogi syngja fuglarnir allan sólarhringinn. Þeir eru svo glaðir að búa hérna, rétt eins og kerling. Um daginn kom hér inn lítill skógarþrastarungi. Var hann gæfur og leyfði kerlingu að strjúka sér og kjassa án þess að depla auga. Örlaði ekki einu sinni fyrir örum hjartslætti í þessum sviflétta líkama. Kerling setti ungann í lítinn kassa og fór með hann út. Eitt píp heyrðist í unga og í sömu svifum kom ungamamman með orm í nefinu og gaf afkvæmi sínu. Unganum var sleppt úr kassanum og hoppuðu móðir og ungi í öruggt skjól trjánna.
En hér búa ekki bara skógarþrestir, kerling hefur séð svartþresti og gráþresti í garðinum, en ekki hefur hún enn séð litla glókollinn sem á að hafa sest hér að í þessum ágæta dal.
Kerling fór um daginn til konu sem er titluð heilpraktíker. Kerlingu er bannað að borða sykur, ger og hveiti, enda mun lifa innra með henni einhver viðbjóðslegur sveppur sem ber heitið candida. Þessi sveppur veldur því að kerling hefur verið svona þreytt og orkulaus (m.a. lítil orka til staðar til að blogga). Kerling hefur verið óskaplega dugleg við að framfylgja þessu og er nú svo komið að giftingarhringurinn rennur af baugfingrinum og kerling er mun hressari og orkumeiri. Gengur alveg ágætlega að fylgja þessum ráðum konunnar fjölkunnugu, mun auðveldara en kerling hefði haldið, og er nú svo komið að ef kerling borðar sælgæti eða annan óþverra með sykri þá fær hún timburverki daginn eftir. Sem er nú alveg til að fæla kerlingu frá öllu sælgætisáti.
Birt af Kerling kl. 11:40 |
15. apríl 2005
Brjóstsviði
Kerling fékk brjóstsviða í fyrsta sinn á ævinni (hugsanlega í annað sinn, kerling er fremur rugluð og ekki vel áttuð þessa dagana) í gærkvöldi eftir að hafa borðað ameríska ostasamloku sem Skrukka innleiddi í snauðan matarheim kerlingar. Kerling þurfti ekkert að hringja í lækninn til að fá greiningu, allir á starfstöðinni kinkuðu kolli er kerling lýsti einkennum og sögðu með "ég þekki þetta" tón; Brjóstsviði.
Í kjölfarið var farið á doktor.is til að fræðast um þetta nýja fyrirbæri sem hrjáir kerlingu og m.a. kemur þetta fram:
Brjóstsviði getur stafað af því hvað við borðum. Einnig er hann algengur í kjölfar ofáts.
Það er nefnilega það.
Kerlingu er sérlega illa við þetta ofát þarna síðast í setningunni. Kemur eitthvað illa við ræsknið. Þetta er ekkert ofát. Þetta er afleiðing þess að borða bara skyndibita. Eldhúsið er allt í rúst því iðnaðarmenn eru þar að störfum, og þess vegna hefur verið farið reglulega í skyndibitasjoppur borgarinnar og keyptur mishollur skyndibiti.
Eins gott að kerling fær að borða hjá skrukku í kvöld. Vonandi verður það þó ekki amerísk ostasamloka.
Birt af Kerling kl. 17:45 |
24. mars 2005
Páskar 2005
Kerling og karl fóru í Bónus í dag og keyptu páskaegg. Kerling fær páskaegg nr. 5. Stærsta eggið í mörg ár. Enda kerling búin að vera sérlega iðin við kolann og á allt gott skilið. Skítt með aukakílóin, nú skal sko sukka í súkkulaði. Alveg nauðsynlegt að launa fyrir allt erfiðið.
Kerling man ekki eftir annarri eins törn. Kerling hefur t.d. ekki farið í klippingu í 8 mánuði, svo mikið er að gera á starfsstöðinni. Barnið sífellt á vergangi. Karlinn í fýlu. Skrukka í fýlu. Allir í fýlu.
En núna eru páskarnir loks komnir með sínum yndislegu frídögum. Frábært veður, um 8 stigi hiti (reyndar 10 stig hér í Fossvoginum....) og fuglarnir syngja glaðir í vorveðrinu. Er ekki lífið dásamlegt?
Birt af Kerling kl. 17:24 |