24. október 2005

Ég þori, get og vil....

...en er heima sárlasin.

Legg traust mitt á aðrar konur í dag, treysti á að íslenskar konur (sem eru heilar heilsu) skundi í bæinn og hafi hátt.

19. október 2005

Allt er þegar þrennt er

Og í þriðja sinn á árinu hóf hún störf á nýjum vinnustað....

Kerling mun skunda á nýjan vinnustað í byrjun nóvember. Og mun það verða í síðasta sinn á þessu ári sem kerling skiptir um vinnu.

Til að taka af allan vafa þá var kerling nokkuð ánægð í vinnu nr. 2, en ný staða bauðst og kerling sagði já takk. Grípa verður gæsina þegar hún gefst.

Til allrar hamingju þekkir kerling alla á nýja vinnustaðnum og þarf því ekki að leggja á sig að kynnast nýju fólki. Eins og það getur nú stundum verið slítandi.

12. október 2005

Skotland

Kerling hélt til Skotlands á dögunum, nánar tiltekið til Glasgow. Ferðin tók tvo og hálfan dag. Á þeim stutta tíma snæddi kerling reiðinnar býsn af mat. Enda maturinn góður í Glasgow. Kerling og vinkonur fóru á frábæran veitingastað þar sem þjónustan var fyrsta flokks og matreiðslan snilldarleg. Það var mjög krúttlegt þegar eigandi staðarins kom svo sveittur fram í kokkagallanum í blálokin, en hann heilsaði upp á gesti sína og átti greinilega fjörugar samræður við suma þeirra um matseld og hráefni. En hér með er mælt með þessum stað, namm kerling fær vatn í munninn af að hugsa um öndina sem hún fékk hjá Brian Maule, og allt hitt.

Kerling og vinkonur voru svona að gæla við þá hugmynd að ræna manninum, fara með hann til Íslands og beint í eldhúsin, en tímdu svo ekki að borga yfirvigt. Kerling nagar sig hreinlega í handarbökin af eftirsjá þessa stundina.

1. október 2005

Klukk tvö

Snjófus klukkaði víst Skrukku líka. Fimm tilgangslausar staðreyndir um skrukku eru eftirfarandi:

  1. Skrukka er með hálfa saumnál í ristinni. Situr þar pikkföst í millikílsbeini.
  2. Þegar skrukka spennir greipar, þá leggst hægri þumalfingur yfir þann vinstri, það er öfugt hjá kerlingu.
  3. Skrukka elskar leyndardóma. Leyndardómar sem eru ævintýralegir, marglitir og ekki af þessum heimi vekja sérstaka athygli.
  4. Á hverjum degi yfir fellibylstímabilið tékkar skrukka á veðrinu og reglulega fylgist hún með jarðhræringum á Íslandi.
  5. Skrukku finnst rosalega gaman að lesa góðar sögur fyrir börn. Þegar heyra má saumnál detta í herbergi með tuttugu börnum, þá veit skrukka að sagan hefur tekið öll völd og það er alveg dásamlegt.

Skrukka ætlar að klukka Ingibjörgu.

27. september 2005

Klukk

Kerling fékk klukk frá Snjófusi:

  1. Kerling er góð í Kleppara. Og veit ekki afhverju, enda ekkert æft sig sérstaklega.
  2. Kerlingu þykir gott að borða. Og getur orðið mjög pirruð ef ekkert almennilegt er í matinn.
  3. Kerling er besta mamma í heimi. Dóttir kerlingar sagði henni það í gær.
  4. Kerling stal einu sinni pening frá ömmu sinni. Og mömmu sinni. Hún var 5 ára.
  5. Karli þykir kerling ganga illa um. Kerlingu þykir karl ganga illa um.

Kerling ætlar ekki að klukka neinn, vill ekki vera svona þvingandi eins og Snjófus.

26. september 2005

Aðför að ketti

Að kveldi laugardagsins síðasta fannst köttur kerlingar inni í þvottahúsi. Lá kisa þar í hnipri og var augljóslega miður sín þótt ekki gæti hún tjáð sig um það. Á gólfi þvottahússins og ofan á þurrkara mátti sjá blóðslettur og blóðkám. Kerling kallaði til blóðslettusérfræðing fjölskyldunnar sem hóf þegar að rannsaka vettvang. Sú rannsókn leiddi í ljós að kisa hefði komið inn um þvottahúsgluggann og verið þá blóðug. M.ö.o. þá hafi hún ekki hlotið áverka við það að koma inn um gluggann, þeir hafi verið komnir fyrir. Líkamsrannsókn leiddi ennfremur í ljós að kötturinn hafði hlotið áverka ofan á og við eyra, í munni, djúpt bitsár á hálsi og sár á fæti, en ekki reyndist unnt að skoða það nánar þar sem kötturinn hætti á þeim tímapunkti að vera samstarfsfús. Var litið svo á að kisa væri þjáð og ekki í andlegu ástandi til að láta rannsaka sig með þessum hætti og var því frekari líkamsrannsókn slegið á frest. Var hlúð að henni og henni veitt áfallahjálp sem fólst í huggandi orðum, klappi og róandi strokum. Um síðir tókst kisu að sofna, en vaknaði þó nokkrum sinnum um kvöldið og nóttina. Bar hún öll þess merki að hafa fengið mikið áfall því hún virtist vakna upp með miklum andfælum. Kerling taldi sig því geta með nokkurri vissu greint kött með snert af áfallastreituröskun og voru því ströng fyrirmæli gefin til allra fjölskyldumeðlima um að láta köttinn í friði.
Kötturinn vaknaði næsta dag, malaði hátt og fékk sér að borða. Kerling varpaði öndinni léttar, en um skammvinnan létti var að ræða því seinna um daginn fór kötturinn að haltra og bera sig aumlega. Um kvöldmatarleytið kom mágkona kerlingar í heimsókn með bróður kattarins, en búa þau skammt frá ketti og kerlingu. Kerling sagði mágkonu sinni tíðindin, en sá að mágkonan varð eitthvað skrítin á svipinn. Aðspurð tjáði mágkonan kerlingu að bróðirinn hefði hugsanlega lent í átökum við annan kött því hann væri með sár í munni. Jæja já sagði kerling.
Sökudólgurinn var sumsé fundinn. Aumingja litla kisan. Hennar eigin bróðir hafði lagt á hana hendur. Ekki var lengur um að ræða einfalt líkamsárásarmál heldur gróft heimilisofbeldi. Íhugar kerling nú bótarétt sinn í þessu sambandi, enda varð hún að leggja út fyrir miklum lækniskostnaði í dag, en köttur var augljóslega kominn með ígerð í bitsárin og þurfti á aðhlynningu læknis að halda. Þá þarf kerling að leggja út fyrir hreinsun á bílnum, en kisa litla pissaði á gólfið í bílnum á leiðinni til læknisins, enda lafhrædd litli anginn. Læknirinn staðfesti greiningu vettvangsrannsakara að um bitsár væri að ræða. Tíminn einn mun svo leiða í ljós hvort köttur kerlingar muni jafna sig eftir þessi ósköp.

17. september 2005

Dauðinn

Dauðinn bar að dyrum hjá skrukku. Fyrst var það tengdapabbi og svo afi. Skrukka fékk andlátstilkynningu eins í jarðarför hins. Þetta eru dapurlegir tímar. Dauðinn dregur allan lífsþrótt úr aðstandendum og þeir sitja með hendur í skauti og velta fyrir sér tilgangi lífsins á milli þess sem þeir syrgja sárlega ástkæra fjölskyldumeðlimi. Blessuð sé minning þeirra.