Íslendingar kusu yfir sig Silvíu Nótt.
Verði þeim að góðu.
19. febrúar 2006
31. janúar 2006
Draumur um ferð
Kerlingu dreymdi í nótt að Ísland væri fast við meginlandið. Í draumnum horfði kerling ábúðarfull á karl og sagði: Eigum við ekki að drífa okkur og keyra yfir til Spánar? Við hljótum að geta fundið huggulegt hótel til að dvelja á yfir helgina!
Birt af Kerling kl. 09:47 |
24. janúar 2006
Hundur í ketti
Köttur kerlingar er undarlegur þessa dagana. Ef kerling hreyfir sig á milli herbergja þá fylgir kötturinn í humátt á eftir. Á nóttunni hefur kötturinn sofið ofan á kerlingu og færir sig ekki fet þótt kerling stjaki allharkalega við honum. Kveður svo rammt að þessari þörf kattar til að vera nálægt kerlingu að kerling á ekkert prívatlíf. Þannig mjálmar kötturinn ógurlega og hangir á hurðarhúninum ef kerling vogar sér á salernið. Þetta háttalag er mjög undarlegt og nánast hægt að segja að hundur hafi hlaupið í köttinn.
En að öðru. Kerling þurfti að fara til Selfoss í dag. Og það var eins og að koma í draugabæ, sást ekki nokkur maður á ferli. Spúkí.
Birt af Kerling kl. 17:32 |
23. janúar 2006
Ömurlegasti dagur ársins
Mánudagur sá sem næstur er 24. janúar er talinn af flestum vera ömurlegasti dagur ársins. Þá verða margir mjög leiðir, langt í vorið, reikningar að hrannast upp eftir jól og fleira svona miður skemmtilegt. Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í dag.
Kerling vaknaði nú bara nokkuð hress, enda fór helgin í það að liggja eins og skata. En um leið og fæturnir snertu gólfið þá fékk kerling aftur þennan hvimleiða höfuðverk sem hefur nú hrjáð hana í 4 daga. Ljósan gat ekki gefið neinar haldbærar skýringar á höfuðverknum, yppti bara öxlum. En hjartslátturinn í A og B heyrðist skýr og tær og flaug þá kenningin um ömurlegasta dag ársins alveg út í buskann.
Gott samt að vita hvaða dagur er ömurlegastur, maður getur þá alltént búið sig undir hann.
Birt af Kerling kl. 15:58 |
31. desember 2005
Gamlársdagur
Á gamlársdag er við hæfi að líta yfir farinn veg. Ennfremur er mjög viðeigandi að setja sig í spámannsstellingar og reyna að segja fyrir um næsta ár.
Fyrir ári síðan var kerling nokkuð ánægð með árið 2004, og um þessi áramót getur kerling til allrar hamingju sagt það sama. Sterkir sviptivindar blésu þó um miðbik þessa árs, og kerling upplifði gríðarleg vonbrigði. Þessir vindar blésu þó til góðs, því kerling hefur sjaldan verið eins ánægð með lífið og tilveruna eins og nú og finnst hún vera laus undan miklu oki.
En hvað mun næsta ár bera í skauti sér?
Byrjun árs 2006 mun byrja með sjónarspili flugelda, síðan verður skálað í kampavíni og tartalettum sporðrennt. Smá spjall og síðan verður farið heim og upp í rúm.
Svona mun árið hefjast hjá kerlingu. Rest kemur í ljós með hækkandi sól.
Birt af Kerling kl. 13:22 |
16. desember 2005
Netverslun
Kerling er búin að liggja á GAP síðunni í tvo tíma til að velja sér föt. Valdi loks gallabuxur og ljósbláa rúllukragapeysu. Skráði sig svo inn á ShopUSA og fékk úthlutað númer. Fór svo í pöntunarferilinn. En GAP vildi ekki viðurkenna adressu ShopUSA, alveg sama hvað kerling reyndi.
Búin að eyða tveimur tímum á netinu til einskis. Á föstudagskvöldi. Get a life.
Birt af Kerling kl. 21:29 |
6. desember 2005
Norræn goðafræði...
Jáhá...nú skilur kerling afhverju hún fær alltaf rafstraum þegar hún opnar bílhurðina...eða þegar hún heilsar fólki með handabandi í fyrsta skiptið...nú eða þegar hún vill vera einstaklega góð við karl sinn og kyssir hann....
You're Thor! Son of Odin you are affectionately
termed the Thunder god, and hence have an
affinity with electricity. You're very popular
due to your great strength and loyalty.
Which Norse God are You?
brought to you by Quizilla
Birt af Kerling kl. 18:58 |