2. mars 2006

Veikindi

Í morgun þegar kerling barðist við að vakna, kom pirrað barn inn til hennar og tilkynnti að það hefði ekkert sofið. Hefði bara haft martraðir og verið þyrst alla nóttina. Þetta dugði til að vekja kerlingu. Í ljós kom að barnið var komið með háan hita. Anginn litli, vissi ekkert hvað var á seyði og fór að gráta þegar kerling kvað upp sinn dóm; Flensan.
"Dey ég þá núna?"
Eins gott að tala varlega.

27. febrúar 2006

Bollla bolla bolla!

Kerling borðaði bara eina bollu í dag. Ástæðan? Jú, kerling hafði ekki hugmynd um fyrr en rétt áður en vinnudegi lauk að embættið hafði splæst á bollur í öllum stærðum og gerðum. Kerling var ekki inni á starfstöðinni megnið af deginum og missti því af öllu sukkinu. Þegar kerling hélt heim á leið var ísskápurinn enn sneisafullur af bollum. Kerling fær sæluhroll þegar hún hugsar um morgundaginn. Það verður ekki erfitt að vakna á morgun.

25. febrúar 2006

Hýðistilfinning í rénum

Jæja. Það er komið vor. Það er komið brum á trjágreinarnar hér í dalnum og sumar greinarnar eru farnar að laufgast. Og dagurinn lengist. Kerlingu líður eins hún sé að vakna af dvala. Er farin að rífast og nöldra af endurnýjuðum krafti. Kannski tengist þessi tilfinning betri líðan, en núna á kerling að vera komin i góða tímabilið á meðgöngunni.

En hvað um það, draumarnir halda áfram að vekja mikla undrun hjá kerlingu. Í nótt sigraði Sylvía Nótt Júróvision og það var enginn annar en Páll Óskar sem tilkynnti klökkur úrslitin og sagði hágrátandi að loksins loksins hefðu Íslendingar unnið keppnina. Greinilegt að þessi úrslit hér heima hafa lagst á sál kerlingar.

En það er fleira sem leggst á sálina. Kerling var að skoða teiknimyndirnar í Fréttablaðinu í morgun. Ein serían heitir "Barnalán". Kerling las þetta sem "Barnaklám". Kerling er farin að verða gegnsýrð vegna vinnunnar og þyrfti eiginlega að gerast kaþólsk til að geta hitt prest reglulega og létt á sálinni (kerling sér sig stundum í anda í Rambóbol, með Rambóklút og Uzi vélbyssu, sallandi niður alla barnaperra) og farið með nokkrar maríubænir sér til friðþægingar.

19. febrúar 2006

Júróvision

Íslendingar kusu yfir sig Silvíu Nótt.
Verði þeim að góðu.

31. janúar 2006

Draumur um ferð

Kerlingu dreymdi í nótt að Ísland væri fast við meginlandið. Í draumnum horfði kerling ábúðarfull á karl og sagði: Eigum við ekki að drífa okkur og keyra yfir til Spánar? Við hljótum að geta fundið huggulegt hótel til að dvelja á yfir helgina!

24. janúar 2006

Hundur í ketti

Köttur kerlingar er undarlegur þessa dagana. Ef kerling hreyfir sig á milli herbergja þá fylgir kötturinn í humátt á eftir. Á nóttunni hefur kötturinn sofið ofan á kerlingu og færir sig ekki fet þótt kerling stjaki allharkalega við honum. Kveður svo rammt að þessari þörf kattar til að vera nálægt kerlingu að kerling á ekkert prívatlíf. Þannig mjálmar kötturinn ógurlega og hangir á hurðarhúninum ef kerling vogar sér á salernið. Þetta háttalag er mjög undarlegt og nánast hægt að segja að hundur hafi hlaupið í köttinn.

En að öðru. Kerling þurfti að fara til Selfoss í dag. Og það var eins og að koma í draugabæ, sást ekki nokkur maður á ferli. Spúkí.

23. janúar 2006

Ömurlegasti dagur ársins

Mánudagur sá sem næstur er 24. janúar er talinn af flestum vera ömurlegasti dagur ársins. Þá verða margir mjög leiðir, langt í vorið, reikningar að hrannast upp eftir jól og fleira svona miður skemmtilegt. Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í dag.

Kerling vaknaði nú bara nokkuð hress, enda fór helgin í það að liggja eins og skata. En um leið og fæturnir snertu gólfið þá fékk kerling aftur þennan hvimleiða höfuðverk sem hefur nú hrjáð hana í 4 daga. Ljósan gat ekki gefið neinar haldbærar skýringar á höfuðverknum, yppti bara öxlum. En hjartslátturinn í A og B heyrðist skýr og tær og flaug þá kenningin um ömurlegasta dag ársins alveg út í buskann.

Gott samt að vita hvaða dagur er ömurlegastur, maður getur þá alltént búið sig undir hann.