Dagur kerlingar hófst með skipulagningu. Kerling átti ágætis samtal við Skrukku í gær. Eftir að hafa sagt Skrukku frá öllum litlu líkamlegu kvillunum sem væru að hrjá kerlingu (Skrukka, ég held að ég sé komin með liðagigt, ofan á magasárið, ristilkrampann, vöðvabólguna þrálátu, vanvirka skjaldkirtilinn, brjóstsviðann og hárlosið...), fékk kerling greiningu.
Skrukka analíseraði kerlingu sem mjög óskipulagðan starfsmann sem þyrfti bráðnauðsynlega að taka sér tak og gera eitthvað í málunum áður en í óefni væri komið (lesist: sjúkravist á Reykjalundi). Þetta bévítans óskipulag, með streituna sem fylgifisk, væri að leggja kerlingu í gröfina. Kerling fór því að ráði Skrukku og hripaði drög að dagskrá niður á blað. Þetta gekk ágætlega fyrsta klukkutímann, bréf voru rituð og nokkur símtöl tekin. Svo kom fundur og allt fór í steik. Umbjóðandinn var í uppnámi og túlkurinn fór í kerfi, litli kortersfundurinn endaði í klukkutíma kvalræði. Og kerling einblíndi á klukkuna uppi á vegg og grét niðurbrot skipulagsins. En þrátt fyrir þessa seinkun tókst nú kerlingu samt að ljúka við nánast öll verkefnin, þ.e. 8 af 10 og má því nokkuð vel við una. Það var alveg rétt sem Skrukka sagði, þegar verk eru skipulögð og planið gengur eftir, er maður við stjórnvölinn og það veitir vellíðan. Já, kerling er sumsé skipstjóri lífs síns. Það getur stundum verið ógnvekjandi að stýra fleyinu um hinn mikla ólgusjó, en það er ljóst að með því að gefa sér áður tíma í að kortleggja heiminn, má sneiða framhjá mestu hættunum.
Og blóm kerlingar er blóðberg. Svo gott að laga úr því róandi te.
30. september 2004
Skipulagður dagur
Birt af Kerling kl. 22:21 |
Erfið ákvörðun
Þá er það þjóðarblómið.
Það er ekki nokkur leið að velja eitt blóm úr hópi þessara fallegu blóma. Skrukka ákvað að velja það blóm sem vakti upp sterkustu hughrifin, en sko just forget it, öll blómin komu skrukku í sterka æskuvímu.
Nú, eins og svo margir aðrir er skrukka vön erfiðum ákvörðunum og reynsla hennar hefur sýnt að stundum er nauðsynlegt að fara ótroðnar slóðir til að ná fram því besta.
Þetta eru sjö blóm. Það eru sjö dagar í vikunni. Sjö er töfratala.
Lausnin er fundin.
Birt af Skrukka kl. 13:25 |
29. september 2004
Losun neikvæðrar orku
Eins og skrukka gat í síðustu færslu, þá hefur hún verið tilfinningalega teygð og toguð í rúma viku. Það eru margar ástæður sem geta komið til greina sem varpa ljósi á líðan sem þessa, en ástæðan að þessu sinni er atvinnuleit.
Atvinnuleit er langt taugatrekkjandi ferli og á þessum tímapunkti er spurningin þessi: Er þessu ferli að ljúka eður ei?
Svarið er ákaflega krítikalt og það hefur dregist í átta daga. Skrukka átti að vita í gær eða fyrradag hvernig staðan væri, en enn hefur vesalings skrukka ekkert heyrt.
Nú, þannig að skrukka er farin að bölva og ragna, því hún telur þetta vera slæm meðferð. Í kjölfar blótsins þá safnast oft upp neikvæð orka sem getur verið stórhættuleg. Þannig að í morgun fór skrukka í leikfimi og losaði sig við óþverra orkuna í gegnum svitaholurnar.
Núna er skrukka sallaróleg og er farin að hugsa skýrt á ný.
Hún er líka farin að sjá skýrt. Allt í einu sá skrukka að heimili hennar er á hvolfi, ísskápurinn tómur og að ungi litli á ekki eina hreina spjör. Þetta er óviðunandi ástand og ætlar skrukka að tileinka deginum í að koma heimilinu í skikkanlegt ástand.
Birt af Skrukka kl. 15:40 |
28. september 2004
Biðin langa
Stundum kemur upp sú staða í lífi einstaklings að hann er gjörsamlega háður öðrum um mál er varða framtíð hans sjálfs. Skrukka er einmitt í þessari stöðu núna.
Þetta er andstyggilega staða.
Birt af Skrukka kl. 14:11 |
26. september 2004
Kerlingin bakveika
Kerling fór í bakinu í morgun. Tildrög málsins eru þau að kerling sat við tölvuna og vann fyrir brauði sínu núna árla morguns. Stóð hún á fætur til að ná í bók og er hún settist þá heyrðist "klikk". Kerling er nú svona pínu töffari í sér og kallar ekki allt ömmu sína, en hvað sem gerðist þarna í bakinu var það svo sársaukafullt að kerling lyppaðist niður á gólf og fór að hágráta. Til allrar hamingju er karl kerlingar stór og stæltur og vippaði hann kerlingu í fang sér og bar hana upp í rúm. Þar mátti kerling dúsa í tvo tíma og gat sig hvergi hrært. Karl sá aumur á kerlingu, kom með hitapoka, nuddaði bakið með róandi ilmolíu og lét að lokum renna í sjóðandi heitt bað. Eftir baðið fór kerlingu að líða ögn skár. Kerlingu finnst skelfilegt að vera svona hreyfihömluð. Alveg hræðilegt bara. Hver hreyfing var sársaukafull og enn er kerling með verki, en hefur öðlast hreyfigetuna á ný. Kerling telur sig vita hvað er á seyði. Í síðustu viku fór kerling nefnilega í leikfimi. Í heil þrjú skipti. Og þetta er afraksturinn. Ekki beint uppörvandi.
Birt af Kerling kl. 14:07 |
23. september 2004
Og enn meira um fellibyli
Jahérnahérnahér, það virðist sem bæði kerling og skrukka geti átt von á fellibyl, ekki sami, heldur tveir, karl og Jeanne . Þettu eru kannski aðskildir tvibbar?
Annars er ungi litli tveggja ára í dag. Skrukka ætlar að fara með cubcakes í leikskólann og halda matarboð í kvöld. Lasagne og ískaka a la Macaroni grill og Carvel borið fram á pappadiskum og plastglösum.....og bréfservíettum og plasthnífapörum.
Þetta gerist ekki amerískara (lesist: þ-æ-g--i-l-e-g-r-a).
Birt af Skrukka kl. 14:00 |
19. september 2004
Arbeit macht frei
Kerling lauk loks ákveðnu verkefni sem hefur legið á henni eins og mara með slepjuga handleggi og andremmu úr gapandi gini. Óvættinum var fargað með vinnu. Arbeit macht frei.
Frelsinu var fagnað með verslunarferð í Ikea. Kerling draslaði svo mikið til meðan á baráttunni við óvættinn stóð að nauðsynlegt var að fara í miðstöð skipulagshjálpartækja og verða sér úti um blaðakassa, hólfaða kassa og endurvinnslukassa. Kerling hefur á tilteknu tímabili tekist að sanka að sér um 100 greinum um ákveðið efni, stafla af bókum og haug af blaðaúrklippum. Hefur þessu verið stungið í hillur, skúffur og borð í aukaherberginu þar sem tölvan er. Með þeim afleiðingum að varla hefur verið verandi þarna inni. Karl hefur bölsóttast mikið yfir þessi kerlingarvafstri og hefur harðneitað að fara þarna inn með ryksugu (já, hann er ryksuguhershöfðinginn), segir að rykmaurarnir séu svo margir þarna inni að þeir myndu gera út af við ryksuguna, hættir sér ekki í þá orustu.
Eftir verslunarferðina var hafist handa við tiltekt og flokkun. Kerling finnur núna, svona þegar allt er að komast í rétt horf, hvað óreiðan hefur haft truflandi áhrif. Greinilegt að þarna var á ferðinni stressþáttur. Svo fannst kerlingu svo óskaplega gaman að vinna þessa tiltektarvinnu, svo mikil tilbreyting frá öðru. Ætlar að halda áfram í dag. Því vinnan frelsar.
Birt af Kerling kl. 11:39 |