Kerling fékk brjóstsviða í fyrsta sinn á ævinni (hugsanlega í annað sinn, kerling er fremur rugluð og ekki vel áttuð þessa dagana) í gærkvöldi eftir að hafa borðað ameríska ostasamloku sem Skrukka innleiddi í snauðan matarheim kerlingar. Kerling þurfti ekkert að hringja í lækninn til að fá greiningu, allir á starfstöðinni kinkuðu kolli er kerling lýsti einkennum og sögðu með "ég þekki þetta" tón; Brjóstsviði.
Í kjölfarið var farið á doktor.is til að fræðast um þetta nýja fyrirbæri sem hrjáir kerlingu og m.a. kemur þetta fram:
Brjóstsviði getur stafað af því hvað við borðum. Einnig er hann algengur í kjölfar ofáts.
Það er nefnilega það.
Kerlingu er sérlega illa við þetta ofát þarna síðast í setningunni. Kemur eitthvað illa við ræsknið. Þetta er ekkert ofát. Þetta er afleiðing þess að borða bara skyndibita. Eldhúsið er allt í rúst því iðnaðarmenn eru þar að störfum, og þess vegna hefur verið farið reglulega í skyndibitasjoppur borgarinnar og keyptur mishollur skyndibiti.
Eins gott að kerling fær að borða hjá skrukku í kvöld. Vonandi verður það þó ekki amerísk ostasamloka.
15. apríl 2005
Brjóstsviði
Birt af Kerling kl. 17:45 |
24. mars 2005
Páskar 2005
Kerling og karl fóru í Bónus í dag og keyptu páskaegg. Kerling fær páskaegg nr. 5. Stærsta eggið í mörg ár. Enda kerling búin að vera sérlega iðin við kolann og á allt gott skilið. Skítt með aukakílóin, nú skal sko sukka í súkkulaði. Alveg nauðsynlegt að launa fyrir allt erfiðið.
Kerling man ekki eftir annarri eins törn. Kerling hefur t.d. ekki farið í klippingu í 8 mánuði, svo mikið er að gera á starfsstöðinni. Barnið sífellt á vergangi. Karlinn í fýlu. Skrukka í fýlu. Allir í fýlu.
En núna eru páskarnir loks komnir með sínum yndislegu frídögum. Frábært veður, um 8 stigi hiti (reyndar 10 stig hér í Fossvoginum....) og fuglarnir syngja glaðir í vorveðrinu. Er ekki lífið dásamlegt?
Birt af Kerling kl. 17:24 |
4. febrúar 2005
Flutningar
Kerling hefur flutt allt sitt hafurtask, bæði búslóð og fjölskyldu, sem starfstöð. Gerðist sama dag. Reyndar sáu vaskir menn um flutningana í vinnunni, kerling raðaði bara ofan í kassa. En það var örlítið meira umstang við flutning heimilisins. En það gekk vel enda fengu kerling og karl góða hjálp. Kerling stækkaði við sig um helming og líður og fílar sig eins og lafði Macbeth ráfandi um þetta stóra hús, nema kerling hefur góða samvisku. Allt í kössum, ekkert finnst, rafmagnið fer stundum af og kerling baðar sig niðri, pissar uppi og þvær sér um hendur í eldhúsvaskinum. Ekkert beint hallarástand eins og hjá lafðinni, en kerling er samt alsæl. Eftir að hafa flutt 11 sinum á 7 árum þá er það góð tilfinning að vita að ekki verði flutt í bráð. Kerling fer héðan út beint á elliheimilið (og þá orðin ringlað gamalmenni sem sefur í baðkarinu) eða í gröfina. Öðruvísi verður það ekki. Legg ég á og mæli um...
Birt af Kerling kl. 20:13 |
14. janúar 2005
Kuldi yfir landi
Skömmu eftir áramót dreymdi kerlingu að hún horfði á landakort. Yfir landinu var kuldi og sérstaklega yfir norðurlandi. Kerlingu fannst að svona yrði ástandið óvenjulega lengi. Hýrnaði því heldur betur yfir kerlingu þegar hún sá að hitatölur voru hærri í dag, en brúnin þyngdist þegar spáin var skoðuð. Kuldaboli kemur aftur um helgina og verður viðvarandi út alla næstu viku.
Kerling þarf að kaupa ullarvettlinga, trefil og húfu. Kerling á bara eina hanska. Þá bráðvantar kerlingu góða svarta gollu úr ull sem hægt er að fara í undir dragtajakkana og yfir blússurnar. Kerling átti eina slíka, keypt í Sisley, og sú peysa hefur haldið hita á kerlingu í 3 ár. En nú eru dagar hennar taldir og ljóst að kerling þarf að finna góðan staðgengil.
Kerling þolir ekki kulda. Kerling er hitaþolin kona sem elskar hitann í útlöndunum. Húðin verður fallegri og hárið sömuleiðis, og öll vöðvabólga og beinverkir hverfa eins og dögg fyrir sólu. Kerling verður alveg ómöguleg ef hún kemst ekki í eina góða hitaferð á hverju ári. En núna verða sundstaðir sóttir grimmt, því það næst besta er að liggja í sjóðheitum pottum. Þá verður kerlingu loks heitt inn að beini.
Birt af Kerling kl. 09:37 |
6. janúar 2005
Bakverkir
Uppfull af bjartsýni og fyrirheitum um betra líferni fóru kerling og karl í langan göngutúr á nýársdag meðan flestir landsmenn lágu í fletum sínum. Fyrir vikið fékk kerling í bakið. Alveg að drepast í mjóhryggnum.
Það er stórhættulegt að hreyfa sig.
Sökum verkja ætlar kerling að skreiðast upp í rúm með hitapokann sinn.
Birt af Kerling kl. 22:31 |
28. desember 2004
Græna tunnan
Kerling hefur þegar pantað græna tunnu fyrir nýja heimilið. Sorplosun verður þá einungis aðra hverja viku og heimilismenn því neyddir til að þvo fernur og henda þeim í sérstakan gám, sem og henda dagblöðum í annan. Fara svo með dósir og plastflöskur í endurvinnslu og fá skilagjald. Er ekki bara alveg ágætt að hefja nýja árið með loforði um umhverfisvæna fjölskyldustefnu?
Kerling ætlar líka að vera dugleg að fara með fjölskylduna í gönguferðir á hinu nýja ári. Drífa börnin með, vekja áhuga á landsins flóru sem nóg er af í dalnum fagra, kaupa jafnvel góða bók þess efnis á bókaútsölunum í janúar.
Sei sei já, kerling er í banastuði, full af fyrirheitum fyrir hið nýja ár, er þegar farin að flokka og henda svo flutningar verði auðveldari í lok janúar. Hver hlutur fær sinn stað í nýja húsinu. Kerling hefur legið í sjálfshjálparbókum á árinu sem er að líða og allar hafa þær þann boðskap að bera að það færi fólki mikla vellíðan að skipuleggja dótið sitt, hafa allt í röð og reglu. Kerling hefur svo sannarlega haft þetta að leiðarljósi og núna síðast, á annan í jólum, var fataskápurinn tekinn í gegn og fylltust tveir risa pokar af fötum sem eiga að fara til útlanda og tveir aðrir sem fullir eru af slitnum fötum sem eiga heima í ruslinu. Þetta átti nú að gerast fyrir jól, en kerling snarhætti við þegar hún sá auglýsingarnar frá VR af fólkinu sem sofnaði við matarborðið á aðfangadagskvöld. Ferlega góðar auglýsingar.
Kerling elskar áramót. Og það verður að segjast að kerling er bara nokkuð ánægð þegar litið er yfir farinn veg síðasta árs. Árið 2004 var sérlega gott ár og vonandi verður næsta ár svona gott líka. Mestu skiptir að þeir sem standa kerlingu næst voru nokkuð góðir til heilsunnar, að vísu byrjaði árið með alvarlegum veikindum Skrukku, kerling fær enn tár í augun þegar hún hugsar um hræðilegu fréttirnar sem bárust frá Ameríku í byrjun ársins, en til allrar hamingju þá náði Skrukka sér fljótt á strik. Kerling skipti um starfsvettvang og steig skrefið til fulls og giftist karli, yndisleg ferð var farin til Barcelona og þetta líka frábæra hús kom upp í hendurnar á kerlingu og karli. Og indælu börnin sem alltaf gleðja svo mikið, þau hafa staðið sig eins og hetjur á árinu og þroskast og dafnað og veitt kerlingu mikla gleði. Já, nú vöknar kerlingu um augu, mikið er kerling nú lánsöm kona.
En kerling ætlar á árinu 2005 einbeita sér að því að fara að lifa heilsusamlegra lífi, kerling er orðin allt of þung og hreyfir sig allt of lítið. En kerling telur sig nú vita ástæðuna fyrir því að hún gefst alltaf upp á líkamsræktarstöðum, en það gerðist tvisvar á síðasta ári. Kerling þolir ekki þessar stöðvar, vill miklu frekar fara í gönguferðir og sund. Og það ætlar kerling að gera á næsta ári. Hugsanlega fara í karate, eða dans. Hætta þessum lyftingum og sprikli á hlaupabrettum eða mæta í eróbikktíma. Það er bara hundleiðinlegt. Kerling verður að hafa gaman að því sem hún er að gera, annars gerist bara ekki neitt.
Já, græna tunnan er ágætur merkisberi fyrir komandi ár, hefur greinilega góð áhrif á kerlingu, svo verður nú gaman að sjá hvort hún hafi tilætluð áhrif....
Birt af Kerling kl. 09:48 |
23. desember 2004
Jólablogg
Æi, skrukka ætlaði að vera skáldleg og blogga smá jólablogg. En hún er bara örþreytt og andlaus. Jólagjafirnar hafa loks verið keyptar og nú á bara eftir að pakka inn bæði þeim og öllu öðru sem fer til Íslands.
Útskriftin gekk vel, verslunarleiðangur sem farinn var til að spreða útskriftarpeningum gekk enn betur. Skrukka á nýjar nærbuxur, maskara og fullt fullt af vinnufötum. Núna þarf bara að æfa vinnubetlisbrosið og sjarmann, já já, þetta er allt að koma.
Ungi litli þekkir "Santa" og veit að það eru jól. Tveggja ára börn eru yndisleg, feitir litlir bendandi fingur og undrunarhróp.....ohhh það gerist ekki sætara.
Jólakveðjur, næst verður væntanlega bloggað frá frónni, nema skrukka verði í stuði.
Birt af Skrukka kl. 18:39 |