27. október 2005

Bætiefna Biblían

Kerling á bók sem heitir Bætiefna Biblían. Þessi bók var keypt á bókamarkaði fyrir þremur árum og var þar sem trúarritin voru. Þar kemur fram að Bíotín (eða vítamín H) geti stuðlað að því að hár gráni ekki.

Uhu.

Tímabært að huga að því fyrst maður er kominn vel á fertugsaldurinn.

25. október 2005

Leiðindi

Mikið skelfingar ósköp er leiðinlegt að vera veikur.

Þó....loks gefst tími til tilgangslausra hluta. Svona eins og að komast að þessu:

You Have A Type A Personality
A

You are hyper, energetic, and always on the moodYou tend to succeed at everything you attemptAnd if you don't succeed at first, you quickly climb your way to the top!
You could be called a workaholic, but you also make time for funAs long as it's high energy and competitive, you're interestedYou have the perfect personality for business and atheltic success

Do You Have a Type A Personality?

Illvíg hálsbólga

Þegar kerling var farin að hrækja munnvatninu í stað þess að kyngja því sökum mikils sársauka þá var orðið tímabært að fara til læknis. Læknirinn kvað upp sinn dóm; Streptókokkar.

Kerling er sumsé enn heima lasin.

24. október 2005

Ég þori, get og vil....

...en er heima sárlasin.

Legg traust mitt á aðrar konur í dag, treysti á að íslenskar konur (sem eru heilar heilsu) skundi í bæinn og hafi hátt.

19. október 2005

Allt er þegar þrennt er

Og í þriðja sinn á árinu hóf hún störf á nýjum vinnustað....

Kerling mun skunda á nýjan vinnustað í byrjun nóvember. Og mun það verða í síðasta sinn á þessu ári sem kerling skiptir um vinnu.

Til að taka af allan vafa þá var kerling nokkuð ánægð í vinnu nr. 2, en ný staða bauðst og kerling sagði já takk. Grípa verður gæsina þegar hún gefst.

Til allrar hamingju þekkir kerling alla á nýja vinnustaðnum og þarf því ekki að leggja á sig að kynnast nýju fólki. Eins og það getur nú stundum verið slítandi.

12. október 2005

Skotland

Kerling hélt til Skotlands á dögunum, nánar tiltekið til Glasgow. Ferðin tók tvo og hálfan dag. Á þeim stutta tíma snæddi kerling reiðinnar býsn af mat. Enda maturinn góður í Glasgow. Kerling og vinkonur fóru á frábæran veitingastað þar sem þjónustan var fyrsta flokks og matreiðslan snilldarleg. Það var mjög krúttlegt þegar eigandi staðarins kom svo sveittur fram í kokkagallanum í blálokin, en hann heilsaði upp á gesti sína og átti greinilega fjörugar samræður við suma þeirra um matseld og hráefni. En hér með er mælt með þessum stað, namm kerling fær vatn í munninn af að hugsa um öndina sem hún fékk hjá Brian Maule, og allt hitt.

Kerling og vinkonur voru svona að gæla við þá hugmynd að ræna manninum, fara með hann til Íslands og beint í eldhúsin, en tímdu svo ekki að borga yfirvigt. Kerling nagar sig hreinlega í handarbökin af eftirsjá þessa stundina.

1. október 2005

Klukk tvö

Snjófus klukkaði víst Skrukku líka. Fimm tilgangslausar staðreyndir um skrukku eru eftirfarandi:

  1. Skrukka er með hálfa saumnál í ristinni. Situr þar pikkföst í millikílsbeini.
  2. Þegar skrukka spennir greipar, þá leggst hægri þumalfingur yfir þann vinstri, það er öfugt hjá kerlingu.
  3. Skrukka elskar leyndardóma. Leyndardómar sem eru ævintýralegir, marglitir og ekki af þessum heimi vekja sérstaka athygli.
  4. Á hverjum degi yfir fellibylstímabilið tékkar skrukka á veðrinu og reglulega fylgist hún með jarðhræringum á Íslandi.
  5. Skrukku finnst rosalega gaman að lesa góðar sögur fyrir börn. Þegar heyra má saumnál detta í herbergi með tuttugu börnum, þá veit skrukka að sagan hefur tekið öll völd og það er alveg dásamlegt.

Skrukka ætlar að klukka Ingibjörgu.