18. október 2008

Kerling í kreppu

Það fer kerlingu mjög illa að vera í kreppu. Reyndar sá kerling þetta fyrir í draumum sínum, hún vissi að það myndi draga til tíðinda þegar haustið kæmi. Í draumnum, sem vitjaði kerlingu í vor, þá horfði kerling á landakort og sá skyndilega hvar gaus upp úr miðju Íslandi og hraunflóðið fór yfir allt landið. Kerling sjálf átti fótum sínum fjör að launa með börnin á arminum og horfði á beljandi hraunflóðið éta hvert húsið á fætur öðru. Trén báru með sér að haustið væri gengið í garð. En kerlingu fannst hún hólpin í draumnum. Kerling var svo sjálfhverf að hún tengdi drauminn við starfsframa sinn.
Eftir ræðu háttvirts forsætisráðherra í lok september vitjaði kerlingu annar draumur. Hann var á þá leiðina að mikið frost var yfir landi. Allir firðir ísilagðir. Kerling var í einhverri ömurlegri búð þar sem úrvalið var ekkert og hún fann fyrir gríðarmiklum pirringi því hún fann ekki eins jólaföt á smábörnin á heimilinu. Og það var jarðskjálfti yfirvofandi.
Kerling hefur miklar áhyggjur af þessum draumi og vonar svo sannarlega að hann rætist ekki. En kerling hefur dreymt fyrir ótal atburði og veit því að hún verður að hypja sig í fatabúðir sem fyrst til að koma í veg fyrir að börnin verði jólakettinum að bráð. Jarðskjálftinn er vonandi ekki fyrir þjóðargjaldþroti.

3. júlí 2008

Kerling í fríi

Kerling er í sumarfríi. Hún vaknar um leið og fuglarnir úti í garði og smábörnin í barnaherberginu. Sem taka öll völd þegar líða tekur á daginn. Þegar karl kemur heim eftir langan og strangan vinnudag tekur ekki á móti honum matarilmur úr eldhúsinu og geðgóð húsfreyja. Nei, við blasir mannlaust hús í henglum. Brúnaþunga húsfreyjan er úti á róló að viðra grútskítugu börnin. Svo þau sofni snemma.

8. júní 2007

Nýir grannar

Kerling fékk nýja granna fyrir nokkru. Þeim fylgdi klukka. Standklukka. Sem segir kúkú-kúkú á hálftíma fresti. Líka á nóttunni.

6. júní 2007

Sjálfspíning

Kerling fór í dag og keypti sojamjólk út í kaffið.

4. júní 2007

Það lifir!

Það er svo langt síðan kerling bloggaði að það tók kerlingu 20 mínútur að komast aftur inn. En með því að fórna blóði, svita og kannski tveimur tárum þá tókst að komast inn fyrir hinn mikla gúggle varnarmúr.

En kerling ætlar að blogga um veður eins og svo oft áður. Einhvers staðar á þessu bloggi lét kerling þau vísdómsorð falla að oft kæmi hlýindaskeið um mánaðarmót maí/júní og þetta árið ætlar ekki að vera undantekning frá þessu. Nema hvað, jú, hlýindaskeiðið kom og byrjaði vel, en systurnar rok og rigning ákváðu að taka völdin um helgina og hafa ríkt síðustu tvo daga. Kerling varð svona svolítið áþreifanlega vör við valdaránið er hún gekk til vinnu sinnar í morgun frá bílastæðishúsinu á Hverfisgötu og vindur svipti pilsfaldinum upp og reif í hár kerlingar svo hún leit út eins og svívirt kona. En kerling hló nokkuð glaðhlakkalega því hún hefur nú þegar fjárfest í sólinni suður í höfum og þess vegna mega þessar leiðinda systur grenja og blása eins og þær vilja.

14. febrúar 2007

Símhringing

Góðan dag. Er þetta kerling?
Já þetta er hún.
Þetta er á sýkursýkisdeild Landspítalans. Ert þú ekki löngu búin að eiga?
Ha jú.
Er þá ekki kominn tími til að þú skilir sýkursýkismælinum sem við lánuðum þér?
Jú....auðvitað...maður verður eitthvað svo gleyminn eftir svona barnsfæðingar...hehe....eeehhh ég kem mælinum til ykkar sem fyrst.
Já takk. Vertu sæl.
Bless.

Svona símhringing kallar nú bara á súkkulaði.

30. janúar 2007

Handbolti

Merkilegt. Um leið og kerling lætur sig hverfa úr stofunni þá skora Íslendingar.