Kerling fór í afmælisveislu í gær. Drakk þar 4 hvítvínsglös og vaknaði hryllilega þunn í morgun. Finnst skítt að geta ekki rétt dreypt á áfengi án þess að vera með þynnkuskjálfta allan næsta dag. Kerling hefur komist að þeirri niðurstöðu að eitthvað hefur verið að þessu víni, svona þynnka er bara ekkert eðlileg miðað við þetta litla áfengismagn. Heilsan er þó að batna og kerling er komin með matarlyst.
Haustvindar blása enn og lömb hafa verið leidd til slátrunar. Kótilettur í raspi verða á borðum kerlingar í kvöld. Hæfir svo vel veðrinu og árstímanum.
11. september 2004
Kótilettur í raspi
Birt af Kerling kl. 18:07
|