Tveir mannræningjar, rétt um hálfir metrar á hæð, hafa svipt kerlingu frelsi sínu. Þess vegna hefur lítið verið bloggað. En þrátt fyrir harðvítuga aðför, þá heillast kerling á einhvern undarlegan hátt af gíslatökuliðinu. Stokkhólmsheilkennið mun þetta víst vera kallað.
|