9. september 2004

Ivan hinn ógurlegi

Allt er þegar þrennt er.
Skrukka situr með hnút í maganum og horfir á eyðilegginguna á Grenada. Hún horfir á æsta fréttamenn segja frá fólki sem er gert að flýja heimili sín á eyjunni Islamorada, sem er í tveggja klukkustunda fjarlægð frá heimili Skrukku.

Skrukka fór út í búð í gær og enn eru búðir vatnslausar, mjólkurlausar, brauðlausar.

Þrír fellibylir á einum mánuði?

Hvaða súrrealíska ástand er þetta í lofthjúpnum?

Skrukka fer í próf á laugardaginn. Hún á líka að halda langan fyrirlestur, skila heimaprófi og tveimur ritgerðum.

Skröggur fer út úr bænum eldsnemma á sunnudagsmorgni.

Þetta er bagalegt ástand og Skrukka situr lömuð og veit ekki hvernig hún á að koma skipulagi á óreiðuna sem nú ríkir í kollinum.

Haustvindar

Þegar mannskæðir vindar blása í suðri, láta vindar í norðri sér nægja að blása roða í kinnar fólks og væta það ögn með tárum sínum. Stundum blása þeir kvefi í vit mannskepnunnar.
Kerling var veik í morgun. Með stíflað nef og 38°hita. Var rétt nýbúin að hringja í samstarfsmann sinn og tilkynna tíðindin. En enginn veit sín örlög. Áður en kerling vissi af stóð hún á ströndu og horfði á öldurnar vagga togurum og bátum er hvíldu lúnar skipssíður upp við bryggjuna. Lenti í óvæntri vinnu. Að því loknu fór kerling á skrifstofu sína og komst að því að samstarfsmaðurinn hefði farið heim til sín með stíflað nef og háan hita. Svona geta nú hlutskipti manna breyst.

Kannski fara fellibylir að geysa í norðri.

Kerling fylgist spennt með Ívani grimma. Svo áhugavert að fylgjast með gervitunglamyndunum og útreikningum á því hvar auga hans mun fara yfir. Skrukka gæti lent í auganu, en þó litlar líkur á því núna. En eins og áður sagði, hlutskipti manna geta breyst.

7. september 2004

Meira um fellibyli

Snemma í síðustu viku fóru fregnir að berast um að fellibylurinn Frances myndi máski heimsækja Miami búa. Skrukka og Skröggur áttu vatn og dósamat frá Charley ógninni, en þau áttu ekki hlera fyrir gluggana.

Á miðvikudaginn síðasta voru þau hjú að horfa á hádegisfréttirnar. Alex Penelas borgarstjóri var í brennideplinum og horfði biðjandi augum í myndavélina og bað fólk í guðs bænum að fara og kaupa birgðir og hlera. Skrukka á erfitt með neita svona innilegri beiðni og skipaði Skrögg med det samme að koma sér í spjarirnar og í Home Depot. Það tók nákvæmlega þrjár klukkustundir að fá hlera. Ástæðan var sú að fjöldi fólks stóð í röð í sama tilgangi. Skrukku þótti þetta jaðra við heilabilun að standa svona lengi í röð, en ákvað að þetta væri nú bara pínöts miðað við þá sögu sem hún heyrði í dag; vinkona hennar stóð í röð í átta klukkustundir. Að vísu skiptust vinkonan og kærasti hennar á að standa vaktina og þau færðu hvort öðru nesti og kaffitár og fréttir af Frances. Einnig sagði vinkonan að hið notalegasta andrúmsloft hefði skapast á meðal fólksins í röðinni. Fólk settist á gólfið og sagði sögur af Andrew. Þetta hefði sko verið helmingi skemmtilegra en að þurfa að mæta í vinnu eða skóla.

Miami slapp vel í þetta skiptið, en Skrukku óar við framhaldinu af þessu fellibyljatímabili. Það góða við þetta allt saman er að Skrukka kann núna fullt af nýjum orðasamböndum: sustained winds, subsiding wind, sweeping wind, wind gusts, wind burst, wind surge, force winds, severe wind, torrential rain, hurricane warning, hurricane watch, hurricane season, tropical wave, hurricane eye, eyewall, storm surge........jamm, mennt er fun, Skrukku finnst gaman að geta rabbað við nágranna sína á fellibylísku.

Fellibylir

Tíðindi frá Tampa skýra vel þær aðstæður sem fellibylir skapa. Skrukka hírist í helli sínum (lesist: íbúð með hlera fyrir öllum gluggum) og fylgist fráneygð með IVAN. Hún nennir ekki að taka niður hlerana ef umsátursástand mun ríkja aftur næstu helgi.




21. ágúst 2004

Draugamorð

Skrukka framdi fjöldamorð nú fyrir stundu. Fórnarlömbin voru draugamaurar. Síðastliðnar tvær vikur hefur borið á þessum agnarlitlu kvikindum á baðherberginu, fataherberginu, eldhúsinu, borðstofunni, hári unga litla.....stopp....já á hári unga litla. Umburðarlyndi Skrukku fyrir málleysingjum hvarf sem dögg fyrir sólu og vopnuð eitri dró hún augað í pung og lét til skarar skríða.

Á baðkarsbrúninni voru að minnsta kosti 70 draugamaurar og áttu sér engrar undankomu auðið. Skrukka tók þá upp með eldhúsþurrku að úðun lokinni og henti þeim í ruslið. Ungi litli horfði stóreygður á. Einn maur náði að komast undan og ungi litli kramdi hann með litla feita puttanum sínum og sigri hrósandi sýndi hann skrukku kraminn maurinn á fingurgóminum.

Núna iðrast skrukka gjörða sinna og veltir því fyrir sér hvort hún hafi kennt unga sínum að sýna miskunnarleysi og grimmd við þá sem minna mega sín......

12. ágúst 2004

Táfýla í Barcelona

Kerling fór til Barcelona á dögunum. Gekk um í opnum skóm, bómullarpilsi og bómullarhlýrabol. Eitt kvöldið þegar karl og kerling sátu örmagna eftir allt labbið á Ra Rambla á hjónarúminu í fína hótelherberginu og horfðu á Sean Connery tala katalónsku meðan barnið gaf barbí að borða, þá varð kerling skyndilega vör við megna táfýlu. Að sjálfsögðu leit kerling ásakandi augum á bónda sinn, enda orðin nokkuð viss um uppruna slíkrar lyktar, svona að fenginni reynslu. Hallaði hún sér fram og laut niður til að þefa af tám hins meinta sökudólgs, búin að setja upp grettuna framan í andlitið, tilbúin að segja "oooojjjjjjj". En viti menn, uppruna fnyksins var nú ekki þar að finna. Hófst nú táfýluleitin mikla. Ekki af karli. Ekki af barni. Ekki af barbí. Skyndilega rann upp ljós fyrir kerlingu. Táfýlan var af henni. Og ekki bara af tánum. Ónei. Heldur var líka táfýla á milli brjóstanna. Kerling botnar bara ekkert í þessu. Það hefur nefnilega ALDREI verið táfýla af kerlingu. Tær kerlingar hafa ávallt verið lausar við slíkan viðbjóð. Kerlingu grunar helst að á La Rambla hafi hreiðrað um sig bakteríur sem hafi dottið af tám túristanna og svo þegar kerling hafi gengið hjá, með sínar ilmandi fögru tær, hafi þær ekki getað staðist freistinguna og stokkið á hinar íðilfögru vellyktandi tær kerlingar. Þegar kerling reifaði kenningu sína fyrir karli horfði hann bara kaldhæðinn á hana og spurði: Eru bakteríurnar með svo mikinn stökkkraft að þær gátu lent á milli brjóstanna á þér?

Sumar

Það er svo rakt og heitt að þegar skrukka fer út þá kemur móða á gleraugun. Oftast gengur skrukka með linsur, en hún nennir því ekki þegar hún ætlar sér bara að vera heima og stúdera. En í morgun fór hún út í búð til að sanka að sér nauðsynjum ef ske kynni að Fellibylurinn Charley kemur í bæinn. Reyndar var allt vatn búið, en skrukka var vel birg fyrir. Það voru aðallega bleyjur og bensín sem hún var að hamstra. Reyndar eru litlar líkur á að hann komi hingað, en allur er varinn góður og fellibyljatímabilið er jú bara rétt byrjað.

Skrukka fær fréttir af hitamollu á Íslandi. Hún hefur eitt ráð: bómull. Best er að vera í fötum úr bómul í miklum hitum. Svo er eitt atriði í viðbót sem er máski bara aukaatriði, en skrukku finnst nauðsynlegt að ef konur ætla sér að vera í opnum táskóm þá er nauðsynlegt að vera með vel snyrtar táneglur, skemmir ekki ef þær eru líka lakkaðar.

Það lítur út fyrir að Kerry verði farsæll hérna í Flórída í kosningunum í haust, eftir nýjustu tölum að dæma. Mikið væri nú gaman að ef hann sigraði í kosningunum. Skrukka er orðin leið á Bush, hann er ekki fyndinn lengur. Annars er hérna skemmtilegt myndband með þeim félögum Bush og Kerry

http://atomfilms.shockwave.com/contentPlay/shockwave.jsp?id=this_land

Njótið vel.