2. desember 2004

Draumaráðning

Eftir að hafa lagt hausinn í bleyti og farið yfirvegað yfir drauma fyrri ára, þá er kerling nokkuð viss hvað það þýði að dreyma brotnar tennur. Einu sinni fyrir mörgum árum þegar kerling var með dreng sem elskaði sjálfan sig meir en kerlingu þá dreymdi hana margar nætur í röð að hún væri að bryðja tennurnar uppi í sér. Og nokkru síðar fékk kerling nóg af sjálfselskupúkanum (eftir að hafa legið veik heima með flensu meðan drengurinn skemmti sér á skíðum og nennti ekkert að sinna kerlingu, nennti ekki einu sinni að spila kleppara þegar hann kom heim) og sleit sambandinu. Síðan snérust tannadraumar um velgengni í skóla. Kerling átti það til að falla eða fá brilljant einkunnir, svona annað hvort í ökkla eða eyra, og brotnar tennur þýddi fall. Í sumar dreymdi kerlingu brotnar tennur og þá voru miklir erfiðleikar í vinnunni. Núna telur kerling sig vita hvað þessir leiðinda tannadraumar þýði....jú, erfiðleikar í vinnu. Og það hefur verið mjög erfitt hjá kerlingu í vinnunni, en ekki þannig að verkefnin séu að gera út af við hana, ónei. Heldur er kerling haldin svo mikilli leti að hún hangir á netinu, gefur sér m.a.s. tíma til að blogga í vinnunni og hefur verið að taka svona sjálfspróf sér til afþreyingar í þessu leiðindakasti. Og verkefnin bíða....Bendi á eitt skemmtilegt próf, undir ýmislegt á www.edda.is og maður kemst að því hvort maður sé með karlmannsheila eða kvenmannsheila. Kerling fékk 100 stig. Kerling er í raun og veru karl samkvæmt þessu. En nú er letikastinu lokið, nú er kerling orðin meðvituð um vandann og hefur því ekki lengur neina afsökun.

30. nóvember 2004

Draumfarir

Kerling þorir varla út úr húsi. Undanfarið hefur kerlingu bara dreymt brotnar tennur og allir Pétrar sem kerling hefur þekkt birtast hver á fætum öðrum í draumum kerlingar. Verður að segjast eins og er að kerling hefur verið uggandi um sinn hag og var orðin nokkuð viss að annað hvort verður þrefalt gos í Kötlu (Kötluaskja, Goðabunga og Eyjafjallajökull) eða hún verði svoleiðis afhausuð í einhverju málinu sem liggur á borðinu hjá henni. En kerling spurði um daginn draumspakar konur hvað þessi ósköp nú eiginlega þýði og jú....brotnar tennur....riflildi...ekki spurning. En mjög gott að dreyma klettinn. Sumsé riflildi á næsta leyti. Kerling lenti reyndar í riflildi í morgun. En það var nú samt ekkert miðað við það sem kerling hefur upplifað. Mesta og besta riflildi sem kerling hefur lent í átti sér stað þegar hún var 11 ára og var andstæðingurinn skrukka. Móðir kerlingar hafði brugðið sér út í búð og þá upphófst mikið riflildi um eitthvað svo ómerkilegt að það hefur algjörlega þurrkast úr minni kerlingar. Riflildið endaði með því að skrukka gaf kerlingu kjaftshögg beint á nefið svo úr fossblæddi. Kerling lyppaðist niður hálf rotuð og lá nokkra stund í blóðpolli sínum, en sökudólgurinn lét sig hverfa inn í næsta herbergi, gott ef hún læsti ekki að sér. Eldri systir var sú fyrsta á vettvang og hljóðaði hún ógurlega, væntanlega ekki yfir ásigkomulagi kerlingar, heldur yfir væntanlegri reiði móður yfir svona götustrákaháttalagi. Var kerling hrifinn upp úr blóðpollinum og hann þrifinn í snarhasti. Þegar móðirin kom úr búðinni lék allt í lyndi og engin ummerki um blóðug átök.

Já...frábært riflildi. Kerling væri það ekkert á móti skapi að geta gefið andstæðingum sínum bara einn á hann þegar þeir byrja að vera með múður og tuð og leiðindi, en kerling myndi þá bara enda á bak við lás og slá. Borgar sig því bara að halda sig við japlið, jamlið og fuðrið.

En þessir draumar eru bara hundfúlir og vonandi bara að um hafi verið að ræða fyrirboða fyrir þetta leiðinda riflildi í morgun.

29. nóvember 2004

Áfangar

Nú fer óðum að líða að flutningum hjá skrukku. Undirbúningur hefur verið mikill og stendur enn yfir. Flutningsferlið fer fram í áföngum og er óhætt að segja að fyrstu tveimur áföngunum sé um það bil að ljúka: selja Ameríkueign og pakka niður. Skrukka eyddi helginni í að pakka niður, henda og skrifa ritgerð þegar stund gafst milli stríða. Á laugardeginum var skrukka orðin svo geðvond (þetta var löng helgi sem byrjaði á Þakkargjörð á fimmtudeginum) að skröggur fór með hana í búðir og voru keypt vetrarföt á unga í tugatali...já eða svo til. Hýrnaði yfir skrukku allmikið, enda hefur hún mikla unun af verslunarferðum, sérstaklega þegar lífið hefur verið grútfúlt eins og það hefur verið upp á síðkastið. Hlakkar mikið í skrukku, það verður svo gaman að sjá unga litla dúðaðan í vetrarhörkunum heima. Ungi litli er nefnilega vanur að hlaupa út á stuttermabolnum.

Skrukka er auðvitað þegar byrjuð á þriðja áfanga, en hann mun vera að finna eign á Íslandi. Á hverjum degi skoðar skrukka fasteignavefinn vel og vandlega, fylgist með verðum og trendum, þannig að þegar kemur að því að skoða, þá mun hún kunna allt fasteignalingó og því minni hætta á að hún verði plötuð í eitthvað rugl. Skrukka gerir kröfu um bjarta eign á höfuðborgarsvæðinu, sér þvottahús, gott eldhús og sem fæstar tröppur. Endilega látið skrukku vita ef þið vitið um einhverja svoleiðis eign á lausu.

Fjórði áfangi er að flytja inn í nýja eign. Þetta er sá áfangi sem skrukku hlakkar hvað mest til, enda líka upphafið að endinum. Þegar þessu ferli er lokið, þá ætlar skrukka að setjast niður með tærnar upp í loftið og hún ætlar ekki að gera nokkurn skapaðan hlut, ekki einu sinni hugsa. Ahhhhh......

11. nóvember 2004

Eldhúsin á Íslandi

Aldrei þessu vant, eða allt frá því að sumri tók að halla, er kerling komin heim til sín fyrir myrkur. Reyndar er komið niðamyrkur núna, í þeim skrifuðum orðum, en óskaplega var það nú gott að koma heim, rista sér brauð og drekka kakómalt með vanrækta barninu. Nú er barnið komið í ballett og kerling fékk fráhvarfseinkenni og varð að setjast við tölvuna. En núna rétt áðan rakst kerling á grein í Fréttablaðinu þar sem sagt var frá því að opin eldhús séu ekki lengur í tísku í Danmörku, núna vilja þarlendir menn eiga lokuð eldhús. Af því tilefni er tekið viðtal við íslenskan arkítekt, sem segir að hérlendis séu menn nú enn svag fyrir opnum eldhúsum, það henti lífstíl Íslendinga. Þeir vinni mikið, hafi lítinn samverutíma og verði því að nýta allan tíma til að vera með fjölskyldunni, þannig sé eldamennskan hluti af því að eiga samverustund með fjölskyldunni. Danir vinni hinsvegar ekki eins langan vinnudag og hafi því meiri samverutíma.

Spurning um að flytja bara til Danmerkur?

6. nóvember 2004

Annir og hálsbólga

Það er alveg merkilegt hvað dagar fyrir próf hafa verið krísukenndir. Í dag fór skrukka í tvö skrifleg próf og skilaði ritgerð. Henni gekk þokkalega vel, en í gær, daginn fyrir próf, þá fékk hún skæða hálsbólgu og hita. Einhvern veginn náði vesalings skrukka að undirbúa próftökur og leggja síðustu hönd á ritgerð. Skrukka þakkar það góðum lyfjum sem má kaupa án lyfseðils. Tylenol Flu - non drowsy var bruðið í ofboði, Theraflu te var sopið og bækur og rit voru skönnuð á milli stuttra lúra.

Þegar bekkjarsystir skrukku hringdi í gær og sagðist varla trúa þessari óheppni í skrukku, þá mundi skrukka eftir því að seint í fyrravor hafði þakið hrunið jú einmitt daginn fyrir próf. Skrukka man að þetta olli talsverðri krísu þar sem skröggur var ekki heima og gat því ekki séð um það leiðindamál svo að skrukka gæti lært í friði. Það blessaðist einhvern veginn, prófið reddaðist jú.

Einnig minnti bekkjarsystir skrukku á daginn-fyrir-próf atvik seint í fyrrasumar. Þá hafði skrukka ákveðið að taka örlitla hvíld frá próflestri og ákvað að sópa gólfin, því skrukka er jú smáborgari, þolir ekki skítug gólf og vill þar af leiðandi alls ekki að gestir og gangandi verði vitni að skítugum gólfum í skrukkuhúsum. Nú, þegar skrukka var að sópa flísarnar á gestabaðinu, þá rak hún augun í kattarsandinn og sá að fjarlægja þyrfti nokkur stykki, sem hún og gerði og ætlaði svo að fleygja stykkjunum í klósettið. Þegar skrukka lyfti klósettsetunni, þau gaus upp þessi rokna fýla og kom í ljós innihald sem ekki verður lýst hér í smáatriðum. Basically, þá var þetta endaþarmsinnihald sem gleymst hafði verið að sturta og hafði fengið að marinerast þarna í eina fimm daga þar sem enginn hafði notað salernið. Skrukka hefur rökstuddan grun hvaðan innihaldið kom og hver hafði gleymt að sturta, en um það verður ekki fjallað hér. Nú, fyrstu viðbrögð voru náttúrulega að sturta, en skrukka hefði betur látið það ógert, því í staðinn fyrir að sturtast niður, þá sturtaðist upp. Afleiðingarnar voru skelfilegar. Það er snarræði skrukku að þakka að flóðið hélst innan baðherbergisveggja, en hélt ekki leiðar sinnar fram á gang og inn í stofu. Eins og lesendur geta rétt ímyndað sér, þá breyttist stutt sóp-pása í nokkurra klukkustunda erfiðisvinnu, sem einkenndist af miklum blótsyrðum og viðbjóðslegum fnyk. Sökudólgurinn (sá sem gleymdi að sturta) var á ferðalagi og afsalaði þar með þrifarétti sínum til skrukku.

Skrukka ætlar aldrei aftur að sópa daginn fyrir próf.

Nú, en skrukka er vön að vera jákvæð, enda sannast það á því að hún var löngu búin að gleyma þessum daginn-fyrir-próf hallærum. Það góða við þetta allt saman að nú er bara einn daginn-fyrir-próf dagur eftir af námi skrukku. Það verður í desember og nú er bara að bíða og sjá hvað gerist. Skrukka mun taka öllu með mikilli ró, enda orðin atvinnumanneskja í daginn-fyrir-próf krísum.

4. nóvember 2004

Fasteignir og tær

Gos, forsetakosningar, verðsamráð olíufélaga, morð....allt þetta hefur svona hálfpartinn farið framhjá kerlingu, en hins vegar hafa tilboð á heimilistækjum, parketi og flísum vakið óskipta athygli. Kerling og karl fengu enn eitt maníukastið á þessu ári og ákváðu í einu hendingskasti að stækka við sig. Búin að kaupa og búin að selja, gerðist allt á einni viku. Svona gerast nú kaupin á eyrinni, menn bara kaupa fasteignir eins og hvert annað tau. Taka tugi milljóna lán eins og ekkert sé sjálfsagðara. Fasteignasalinn orðinn besti vinur manns og myndir af draslinu niðrí bílskúr komnar á veraldarvefinn. Kerling er með svona hálfgerðan móral, líður svona pínulítið eins og hún hafi farið á allsherjar fyllerí. En væntanlega líða sjö ár (allar frumur þá endurnýjaðar) þangað til næsta maníukast gengur yfir og þá verða timburmennirnir vonandi farnir.

En annars er kerling bara mjög kát þessa dagana. Skrukka og hennar hyski eru á leið loks til lands, eftir margra ára nöldur og tuð kerlingar. Enda ekki hægt að búa í landi þar sem menn kjósa heimsku yfir sig. Kerling fór svona aðeins að fylgjast með heimsmálunum í dag þegar allir samningar voru í höfn....Arafat kannski bara dáinn. Sumir vilja kenna honum um margt, en kerling er eitthvað svo viss um á sinn óvísindalega hátt að karlinn hafi nú haldið aftur af mörgum. Og þá mönnum báðum megin við víglínuna.

En kerlingu dreymdi furðulegan draum í nótt. Hún horfði á hægri fót sinn og uppgötvaði að hún var komin með 8 tær í staðinn fyrir fimm. Hvað ætli það nú þýði? Ein var fremur stór, en tvær voru litlar.

3. nóvember 2004

?

Í gærkvöldi fór skrukka í háttinn með hnút í maganum, úrslit kosninganna lágu ekki fyrir en útlitið var ekki gott fyrir Kerry. Í morgun breyttist þessi hnútur í rasandi eldhnött og skrukku langaði til að flengja alla vitleysu úr þeim er kusu núverandi forseta. Kannski ekki áhrifaríkar aðgerðir, en þetta voru svona fyrstu viðbrögðin. Núna er skrukka sallaróleg og farin að velta þessum úrslitum fyrir sér á stóískan hátt. Langar umræður hafa spunnist við skrögg um ástæður þess að meirihluti Bandaríkjamanna kusu mann sem hefur sýnt og sannað að hann er vanhæfur. Ekkert hefur komið úr þeim umræðum nema eitt stórt spurningarmerki.

?

Að vísu sagði skröggur að þetta sýndi bara að meirihluti landa hans væri heimskur.......................................rétt er að benda á það að þetta voru hans orð en ekki skrukku.

Góðu fréttirnar eru þær að skrukka þarf ekki að sitja undir væntanlegum áframhaldandi forseta. Flugmiðar komu inn um lúguna í gær. Þann 27. desember mun skrukka yfirgefa þessa [fávísu] [heilaþvegnu] jörð og mun stíga fæti á fósturjörðina þann 28. desember, klukkan 6.10.

Íbúð skrukku er á lokastigi eigendaskipta. Útskrift er rétt handan við hornið.
Það er óhætt að segja að líf skrukku mun brátt taka stakkaskiptum þó líf annarra íbúa hér í Bandaríkjunum mun vera í sama fari.