6. janúar 2005

Bakverkir

Uppfull af bjartsýni og fyrirheitum um betra líferni fóru kerling og karl í langan göngutúr á nýársdag meðan flestir landsmenn lágu í fletum sínum. Fyrir vikið fékk kerling í bakið. Alveg að drepast í mjóhryggnum.

Það er stórhættulegt að hreyfa sig.

Sökum verkja ætlar kerling að skreiðast upp í rúm með hitapokann sinn.

28. desember 2004

Græna tunnan

Kerling hefur þegar pantað græna tunnu fyrir nýja heimilið. Sorplosun verður þá einungis aðra hverja viku og heimilismenn því neyddir til að þvo fernur og henda þeim í sérstakan gám, sem og henda dagblöðum í annan. Fara svo með dósir og plastflöskur í endurvinnslu og fá skilagjald. Er ekki bara alveg ágætt að hefja nýja árið með loforði um umhverfisvæna fjölskyldustefnu?
Kerling ætlar líka að vera dugleg að fara með fjölskylduna í gönguferðir á hinu nýja ári. Drífa börnin með, vekja áhuga á landsins flóru sem nóg er af í dalnum fagra, kaupa jafnvel góða bók þess efnis á bókaútsölunum í janúar.

Sei sei já, kerling er í banastuði, full af fyrirheitum fyrir hið nýja ár, er þegar farin að flokka og henda svo flutningar verði auðveldari í lok janúar. Hver hlutur fær sinn stað í nýja húsinu. Kerling hefur legið í sjálfshjálparbókum á árinu sem er að líða og allar hafa þær þann boðskap að bera að það færi fólki mikla vellíðan að skipuleggja dótið sitt, hafa allt í röð og reglu. Kerling hefur svo sannarlega haft þetta að leiðarljósi og núna síðast, á annan í jólum, var fataskápurinn tekinn í gegn og fylltust tveir risa pokar af fötum sem eiga að fara til útlanda og tveir aðrir sem fullir eru af slitnum fötum sem eiga heima í ruslinu. Þetta átti nú að gerast fyrir jól, en kerling snarhætti við þegar hún sá auglýsingarnar frá VR af fólkinu sem sofnaði við matarborðið á aðfangadagskvöld. Ferlega góðar auglýsingar.

Kerling elskar áramót. Og það verður að segjast að kerling er bara nokkuð ánægð þegar litið er yfir farinn veg síðasta árs. Árið 2004 var sérlega gott ár og vonandi verður næsta ár svona gott líka. Mestu skiptir að þeir sem standa kerlingu næst voru nokkuð góðir til heilsunnar, að vísu byrjaði árið með alvarlegum veikindum Skrukku, kerling fær enn tár í augun þegar hún hugsar um hræðilegu fréttirnar sem bárust frá Ameríku í byrjun ársins, en til allrar hamingju þá náði Skrukka sér fljótt á strik. Kerling skipti um starfsvettvang og steig skrefið til fulls og giftist karli, yndisleg ferð var farin til Barcelona og þetta líka frábæra hús kom upp í hendurnar á kerlingu og karli. Og indælu börnin sem alltaf gleðja svo mikið, þau hafa staðið sig eins og hetjur á árinu og þroskast og dafnað og veitt kerlingu mikla gleði. Já, nú vöknar kerlingu um augu, mikið er kerling nú lánsöm kona.

En kerling ætlar á árinu 2005 einbeita sér að því að fara að lifa heilsusamlegra lífi, kerling er orðin allt of þung og hreyfir sig allt of lítið. En kerling telur sig nú vita ástæðuna fyrir því að hún gefst alltaf upp á líkamsræktarstöðum, en það gerðist tvisvar á síðasta ári. Kerling þolir ekki þessar stöðvar, vill miklu frekar fara í gönguferðir og sund. Og það ætlar kerling að gera á næsta ári. Hugsanlega fara í karate, eða dans. Hætta þessum lyftingum og sprikli á hlaupabrettum eða mæta í eróbikktíma. Það er bara hundleiðinlegt. Kerling verður að hafa gaman að því sem hún er að gera, annars gerist bara ekki neitt.

Já, græna tunnan er ágætur merkisberi fyrir komandi ár, hefur greinilega góð áhrif á kerlingu, svo verður nú gaman að sjá hvort hún hafi tilætluð áhrif....

23. desember 2004

Jólablogg

Æi, skrukka ætlaði að vera skáldleg og blogga smá jólablogg. En hún er bara örþreytt og andlaus. Jólagjafirnar hafa loks verið keyptar og nú á bara eftir að pakka inn bæði þeim og öllu öðru sem fer til Íslands.

Útskriftin gekk vel, verslunarleiðangur sem farinn var til að spreða útskriftarpeningum gekk enn betur. Skrukka á nýjar nærbuxur, maskara og fullt fullt af vinnufötum. Núna þarf bara að æfa vinnubetlisbrosið og sjarmann, já já, þetta er allt að koma.

Ungi litli þekkir "Santa" og veit að það eru jól. Tveggja ára börn eru yndisleg, feitir litlir bendandi fingur og undrunarhróp.....ohhh það gerist ekki sætara.

Jólakveðjur, næst verður væntanlega bloggað frá frónni, nema skrukka verði í stuði.

19. desember 2004

Jólaösin

Senn líður að jólum og enn á kerling eftir að kaupa nokkrar jólagjafir. Kerling er nokkuð róleg í tíðinni því fyrir um mánuði síðan settist hún niður og gerði jólagjafalista með hugmyndum að gjöfum og verðáætlunum. Með þessu hafa þegar sparast tugþúsundir króna og er kerling nokkuð ánægð með sig þessa dagana. Ljóst er að það hefur haft góð áhrif á kerlingu að stofna nýtt fyrirtæki á árinu, með því móti verða skipulagning og agi ríkjandi þættir, annars er hætta á að allt fari í tóma vitleysu.
Kerling hefur það sem af er í desembermánuði tvisvar farið í jólagjafaleiðangur og hafa þeir leiðangrar gengið mjög vel, enda kerling með fyrirfram áætlun um hvert eigi að fara. Kerling hefur tekið eftir því að starfsfólk verslana sýnir oftast kurteisi og er með þjónustulund. En það er eitt sem fer gríðarlega í taugarnar á kerlingu, en það er að sumt fólk, og oftast ungt fólk, hrifsar oft kortið úr höndum kerlingar. En oft samt með bros á vör. Annað hvort er þetta starfsfólk að ná sér niður á kúnnanum vegna lélegs kaups eða einhvers annars óskilgreinds þáttar eða gerir sér hreinlega enga grein fyrir því hversu dónalegt þetta er. Hugsanlegt er að þetta fólk haldi að það virki ofsalega "pró" með því að vera með þessar snöggu hreyfingar. Reyndin er hins vegar sú að þetta fer þveröfugt í skrapatól eins og kerlingu.
En hvað um það, jólin eru að koma og þá sýnir kerling umburðarlyndi, en það er nú ekkert víst að þetta umburðarlyndi verði til staðar þegar nýtt ár gengur í garð.

10. desember 2004

Afmælisskotta

Fyrir sjö árum nákvæmlega var skrukka í próflestri, já það óneitanlega klingir kunnuglegum bjöllum, því skrukka er enn í próflestri (andsk...vitleysa er þetta). En munurinn er fólginn í því að þessi próflestur var á Íslandi. Það var kalt, dimmt og snjóföl á götum Reykjavíkur. Skrukka var að lesa undir síðasta próf annarinnar og átti erfitt með einbeitingu, því kerling systir hennar var á Landspítalanum og mátti ekki hreyfa sig. Lítil vera hafði hreiðrað um sig í kvið kerlingar og eitthvað hafði móðir náttúra miskalkúlerað því vatnið hafði farið þó að krílið ætti ekki að koma fyrr en mörgum mörgum vikum seinna. Átti kerling því að liggja grafkjurr fram að þeim tíma.

Nú, skrukka var í miðjum aðferðafræðilegum þankagangi þegar síminn hringdi og henni var tjáð að kerling væri komin í bráðakeisara, taka þyrfti barnið og ekki væri útlitið gott. Þetta er svona eitt af mómentum ævinnar sem erfitt er að rifja upp ógrátandi, enda skrukka farin að skæla við þessa minningu. Ferðin upp á spítala var þögul og þegar þangað var komið kom í ljós að kerling hafði fengið hjartsláttartruflanir og hún undir stöðugu eftirliti. En ekki leið á löngu fyrr en henni var rúllað inn á meðgöngudeild og skrukka mun aldrei gleyma kerlingu sinni þar sem hún lá brosandi í rúminu og hélt fast um mynd af litla krílinu sem reyndist vera stúlka, fimm merkur. Ástæða brossins var eflaust sú að þegar litla stúlkan var hrifin úr kvið kerlingar þá hafði hún gargað svo hátt að hrikti í stoðum spítalans.

Þetta er saga sem endar ákaflega vel. Litla gullið er enn kraftmikið, hoppar, dansar, syngur og leikur daginn út og inn af svo miklum krafti að mönnum þykir stundum nóg um. Í dag er hún sjö ára gömul og skrukka sendir heim fullt fullt af knúsum og kossum og hlakkar ákaflega til að fá að hlusta og horfa á dans-og söngatriði nú um áramótin.

3. desember 2004

Árekstur

Kerling veit núna alveg hvað draumurinn um tennurnar þýddi. Ekki vegna riflildis-árekstra, onei, heldur vegna áreksturs í orðsins fyllstu merkingu. Kerling lenti í árekstri í gær er hún var að aka bifreið sinni um hringtorg. Karlmaður, sem var að flýta sér mjög mikið, ók bifreið sinni inn á hringtorgið og á bifreið kerlingar. Bifreið kerlingar varð fyrir smá hnjaski en kerling slapp ómeidd. Maðurinn var mjög miður sín og leiður og bað kerlingu innilegrar afsökunar. Og auðvitað var manninum fyrirgefið. Enda jólin á næsta leyti og kerling komin í svona þokkalegt jólaskap og hefur verið að söngla þessa vísu sem hún fékk senda frá kunningja um daginn:

Skín í væna vínflösku
Og huggulega bjóra
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætl'að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum ill'í desember
burt með sokk og skó
hér af vín'er nóg.
Ó hvað ég elska jólin
von'ég hitt'á stólinn.


2. desember 2004

Draumaráðning

Eftir að hafa lagt hausinn í bleyti og farið yfirvegað yfir drauma fyrri ára, þá er kerling nokkuð viss hvað það þýði að dreyma brotnar tennur. Einu sinni fyrir mörgum árum þegar kerling var með dreng sem elskaði sjálfan sig meir en kerlingu þá dreymdi hana margar nætur í röð að hún væri að bryðja tennurnar uppi í sér. Og nokkru síðar fékk kerling nóg af sjálfselskupúkanum (eftir að hafa legið veik heima með flensu meðan drengurinn skemmti sér á skíðum og nennti ekkert að sinna kerlingu, nennti ekki einu sinni að spila kleppara þegar hann kom heim) og sleit sambandinu. Síðan snérust tannadraumar um velgengni í skóla. Kerling átti það til að falla eða fá brilljant einkunnir, svona annað hvort í ökkla eða eyra, og brotnar tennur þýddi fall. Í sumar dreymdi kerlingu brotnar tennur og þá voru miklir erfiðleikar í vinnunni. Núna telur kerling sig vita hvað þessir leiðinda tannadraumar þýði....jú, erfiðleikar í vinnu. Og það hefur verið mjög erfitt hjá kerlingu í vinnunni, en ekki þannig að verkefnin séu að gera út af við hana, ónei. Heldur er kerling haldin svo mikilli leti að hún hangir á netinu, gefur sér m.a.s. tíma til að blogga í vinnunni og hefur verið að taka svona sjálfspróf sér til afþreyingar í þessu leiðindakasti. Og verkefnin bíða....Bendi á eitt skemmtilegt próf, undir ýmislegt á www.edda.is og maður kemst að því hvort maður sé með karlmannsheila eða kvenmannsheila. Kerling fékk 100 stig. Kerling er í raun og veru karl samkvæmt þessu. En nú er letikastinu lokið, nú er kerling orðin meðvituð um vandann og hefur því ekki lengur neina afsökun.