6. september 2009

Eldhúsþrif

Það er stundum einkennilegt hvernig eitt lítið atvik getur hleypt af stað heilli atburðarás. Karl sullaði á gólfið og kerling þreif sullið þar sem karl var að reyna að hafa hemil á skæruliðanum í miðjunni. Kerling ákvað þá, fyrst hún var í stuði, að þrífa allt eldhúsið. Og þá inni í skápunum. Eftir tveggja tíma törn fóru út 5 pokar af útrunnum matvörum, pottum og öðru eldhúsdóti. Skæruliðarnir voru heppnir að þeim var ekki mokað út í leiðinni.

Eftir eldhúsþrifin var hóað í tiltektarliðið, þ.e. karl og elstu heimasætuna, og þeim gert grein fyrir því að ef hlutirnir verða ekki settir á sinn stað eftir tiltekt muni eitthvað agalegt gerast.

Það var annars merkilegt við þessa tiltekt að það fór ekki á milli mála að síðustu allsherjarþrif áttu sér stað fyrir 2 árum. Ártalið 2007 var býsna algengt á útrunnu matvörunni. En það er náttúrulega alveg geggjaðslega táknrænt.

4. september 2009

Stormur

Í nótt dreymdi kerlingu storm sem feykti öllu um koll. Kerling átti fótum sínum fjör að launa. Í fyrrinótt komu sprungur í jörð og bifreið kerlingar, með fjölskylduna innanborðs, steyptist ofan í eina. Lenti reyndar mjúklega á botninum en kerling sá ólgandi hraunstrauminn allt um kring. Karl kerlingar, sem sat við stýrið, sagði hins vegar afar bjartsýnn; Iss, þetta verður allt í lagi.

Nú veit kerling ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Hvort hún sé endanlega gengin af göflunum sökum yfirgengilegrar neikvæðrar umfjöllunar í fjölmiðlum um "ástandið í þjóðfélaginu". Eða hvort enn frekari erfiðleikar séu framundan. Neikvæðnin er farin að segja til sín. Meira að segja kerling, harðjaxlinn mikli, felldi tár þegar fyrsta frétt kvöldsins var lesin um niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu. Kerling er samt vongóð um betri tíð, a.m.k. hvað hana sjálfa varðar. Þannig er henni minnistæður draumur sem vitjaði hennar um miðbik júlí sl. Kerling var stödd í húsi. Húsið var afskaplega fallegt, risastórt, hátt til lofts og vítt til veggja. Bjart og með sérkennilegri viðarklæðningu sem minnti á stuðlaberg. Nýtískulegt en klassískt. Og kerling varð svo hamingjusöm í fallega húsinu sínu að hún hóf upp raust sína og söng eitt stykki aríu. Þegar kerling vaknaði upp af draumnum ómuðu ljúfir tónar hennar eigin raddar enn í huga hennar.

Vitur kona sagði kerlingu að halda vel utan um draumana. Þannig að kerling ætlar að reyna að halda þeim til haga.

18. október 2008

Kerling í kreppu

Það fer kerlingu mjög illa að vera í kreppu. Reyndar sá kerling þetta fyrir í draumum sínum, hún vissi að það myndi draga til tíðinda þegar haustið kæmi. Í draumnum, sem vitjaði kerlingu í vor, þá horfði kerling á landakort og sá skyndilega hvar gaus upp úr miðju Íslandi og hraunflóðið fór yfir allt landið. Kerling sjálf átti fótum sínum fjör að launa með börnin á arminum og horfði á beljandi hraunflóðið éta hvert húsið á fætur öðru. Trén báru með sér að haustið væri gengið í garð. En kerlingu fannst hún hólpin í draumnum. Kerling var svo sjálfhverf að hún tengdi drauminn við starfsframa sinn.
Eftir ræðu háttvirts forsætisráðherra í lok september vitjaði kerlingu annar draumur. Hann var á þá leiðina að mikið frost var yfir landi. Allir firðir ísilagðir. Kerling var í einhverri ömurlegri búð þar sem úrvalið var ekkert og hún fann fyrir gríðarmiklum pirringi því hún fann ekki eins jólaföt á smábörnin á heimilinu. Og það var jarðskjálfti yfirvofandi.
Kerling hefur miklar áhyggjur af þessum draumi og vonar svo sannarlega að hann rætist ekki. En kerling hefur dreymt fyrir ótal atburði og veit því að hún verður að hypja sig í fatabúðir sem fyrst til að koma í veg fyrir að börnin verði jólakettinum að bráð. Jarðskjálftinn er vonandi ekki fyrir þjóðargjaldþroti.

3. júlí 2008

Kerling í fríi

Kerling er í sumarfríi. Hún vaknar um leið og fuglarnir úti í garði og smábörnin í barnaherberginu. Sem taka öll völd þegar líða tekur á daginn. Þegar karl kemur heim eftir langan og strangan vinnudag tekur ekki á móti honum matarilmur úr eldhúsinu og geðgóð húsfreyja. Nei, við blasir mannlaust hús í henglum. Brúnaþunga húsfreyjan er úti á róló að viðra grútskítugu börnin. Svo þau sofni snemma.

8. júní 2007

Nýir grannar

Kerling fékk nýja granna fyrir nokkru. Þeim fylgdi klukka. Standklukka. Sem segir kúkú-kúkú á hálftíma fresti. Líka á nóttunni.

6. júní 2007

Sjálfspíning

Kerling fór í dag og keypti sojamjólk út í kaffið.

4. júní 2007

Það lifir!

Það er svo langt síðan kerling bloggaði að það tók kerlingu 20 mínútur að komast aftur inn. En með því að fórna blóði, svita og kannski tveimur tárum þá tókst að komast inn fyrir hinn mikla gúggle varnarmúr.

En kerling ætlar að blogga um veður eins og svo oft áður. Einhvers staðar á þessu bloggi lét kerling þau vísdómsorð falla að oft kæmi hlýindaskeið um mánaðarmót maí/júní og þetta árið ætlar ekki að vera undantekning frá þessu. Nema hvað, jú, hlýindaskeiðið kom og byrjaði vel, en systurnar rok og rigning ákváðu að taka völdin um helgina og hafa ríkt síðustu tvo daga. Kerling varð svona svolítið áþreifanlega vör við valdaránið er hún gekk til vinnu sinnar í morgun frá bílastæðishúsinu á Hverfisgötu og vindur svipti pilsfaldinum upp og reif í hár kerlingar svo hún leit út eins og svívirt kona. En kerling hló nokkuð glaðhlakkalega því hún hefur nú þegar fjárfest í sólinni suður í höfum og þess vegna mega þessar leiðinda systur grenja og blása eins og þær vilja.