25. janúar 2007

Eitt kíló

Eitt kíló er farið af kerlingu eftir allt fræaátið sem hefur staðið yfir í 2 vikur.

Kerling hreinlega kann sér ekki læti.

13. janúar 2007

Kerling hin nýja

Kerling Karlsdóttir fór til næringarþerapista í næstliðinni viku. Og núna er kerling að læra inn á nýjar heilsuvörur.
Kelp....Selen....Udo's Choice olía...mysuprótein...meltingarensím...kvöldrósarolía.
Æsispennandi.
Kerling byrjaði í morgun á mánaðarheilsubindindi. Bjó sér til þennan eðalpróteindrykk. Eftir tvo tíma var hún komin í Ikea og fékk sér kaffi og súkkulaðimúffu.
Það er erfitt að hefja nýtt líf svona en to tre.

2. janúar 2007

Nýtt ár

Það er komið nýtt ár.

Mikið er það nú gott.

16. desember 2006

Hamskipti

Kerling var orðin leið á græna lúkkinu og ákvað að breyta til. En þá hrundi kommentakerfið.

Merkilegt. Alltaf þegar kerling ætlar að breyta einhverju þá klúðrast það.

Skrítið.

Þetta fer nú svona að kalla á heimspekilegar vangaveltur.

15. nóvember 2006

Meinað um hollustu

Kerling fékk þá hugmynd seint í gærkvöldi, þegar allir heimilismenn sváfu svefni hinna réttlátu, að elda sér hollustugraut til að borða í morgunmat. Kerling er svolítið grey þessa dagana, svefninn kominn í rugl vegna gíslatökuræningjanna, og þegar svefnleysi hrjáir kerlingu þá "dettur" hún í óhollustuna. En nú ætlaði sú gamla að vera einu sinni forsjál og undirbúa næsta dag. Þessi tiltekni grautur er gæddur þeim eiginleikum að nægilegt er að láta suðuna koma upp, slökkva undir, fara að sofa, og næsta dag bíður manns eðalhollustugrautur sem maður rétt hitar upp. Bankabygg var sett í pott, grænt epli, rúsínur, trönuber, hnetur, smá salt og kanill. Pottur settur á eldstóðið og kveikt undir.

En einmitt þá kláraðist gasið.

Kerling er nokkuð viss um að ill öfl standi í vegi hennar til heilbrigðs lífernis.

25. september 2006

Vespudráp

Kerling býr í gróðursælu hverfi. Mjög svo indælt að flestu leyti, nema sá galli fylgir gjöf Njarðar að hér er mikið um örkvikindi sem gera kellu lífið leitt. Geitungar þar á meðal. Í koti kerlingar drepast að meðaltali tveir geitungar á dag. Er kerling orðin nokkuð lunkin við að drepa þessi kvikindi og notar til þess ýmis tól og tæki, en hársprey og flugnaspaði gefa bestu afköstin. Fyrst var kerling örlítið þjökuð af samviskubiti yfir drápunum, en nú eru morðin framin af yfirlögðu ráði, gengið er hreint og skipulega til verks, og geitungarnir yfirleitt dauðir innan 5 mínútnar frá þeim tíma er þeirra varð fyrst var.

En í kær kárnaði gamanið. Kerling fór að lesa um hryggleysingja Davids Attenborough, og sveiattan og sveiattan. Lítil kvikindi hafa persónuleika. Geta verið löt, dugleg, uppátækjasöm, mislynd...

Úbbs.

10. september 2006

Átökin við morgunverðarborðið

Kerling hefur núna í gíslatökunni ágætis tíma til að velta hlutunum fyrir sér, og eitt af því sem varð rannsóknarviðfangsefni hennar um mánaðarmótin síðustu, var hversu miklu heimilismenn eyða í fjölmiðla. Óhætt er að segja að kerling komst í illt skap við þá eftirgrennslan og sá það í hendi sér að það væri algjört prinsippatriði að eyða ekki svona miklu í þessa bannsettu fjölmiðla, enda tímaþjófar af verstu gerð. Setti hún karli stólinn fyrir dyrnar og sagði að það gengi ekki að eyða 5.000 krónum í áskriftarsjónvarp sem væri farið að troða auglýsingum inn í vinsælustu þættina, væri sífellt að hækka afnotagjöldin, væri uppfullt af amerískri lágmenningu og byði ekki upp á neitt almennilegt um helgar. Þar að auki væru mannræningjarnir svo aðgangsharðir að enginn friður væri hvort eð er til að horfa á sjónvarp á kvöldin. Og svo væri karl í námi og honum væri nú nær að nýta kvöldin til að efla vísdómsandann með lestri námsbóka. Karl kyngdi rökunum og viðurkenndi að þetta væri rétt hjá kerlingu, en eitt skilyrði setti hann þó, það var að kerling myndi segja upp Mogganum. Hún kæmist hvort eð er ekki yfir að lesa hann á hverjum degi vegna þessara sömu mannræningja, inn á heimilið kæmi aragrúi af ókeypis lesefni og að lokum væri karl orðin hundleiður á að þurfa að fara í Sorpu nokkrum sinnum í mánuði með allt blaðaruslið. Þarna stóðu karl og kerling í eldhúsinu, mændu geðvonskulega hvort á annað og þrættu um þetta dágóða stund. Orustan endaði með tapi beggja, karl sagði upp stöð 2 og kerling sagði upp Mogganum.

Sem voru þvílík mistök. Áskrift sjónvarpsins endar nefnilega ekki fyrr en um næstu mánaðarmót, en áskrift Moggans hætti um leið. Alveg dæmigert fyrir kerlingu að tapa spilinu með þessum hætti, enda hló karl dátt þegar þetta kom í ljós. En kerling bíður bara róleg, því sá hlær best sem síðast hlær. Hefur kerling séð af háttalagi karls að hann saknar Moggans meir en hann vill viðurkenna. Karl er oftast sestur á undan við morgunverðarborðið og er kominn á kaf í ókeypisleiðindablaðasnepilinn þegar kerling sest að snæðingi. Og kerling byrjar á því að spyrja kurteisislega hvort hann sé ekki bráðum búin að lesa blaðið. Fer svo að hamra með fingrum í borðið, andvarpa hátt og tala enn hærra, eða allt þar til karl lítur geðvonskulega upp frá blaðinu, pakkar því saman og segir gerðusvovel, þú mátt lesa blaðið. Þetta er náttúrulega bara sálfræðihernaður af bestu gerð sem Mossad yrði fullsæmd af, karl á eftir að brotna saman og viðurkenna mikilvægi Morgunblaðsins. Og kerling spáir því að hennar ástkæra blað eigi eftir að verða heimilisgestur fyrr en varir. Enda bráðnauðsynlegt að fylgjast með hverjir séu að gefa upp öndina hverju sinni.