21. ágúst 2004

Draugamorð

Skrukka framdi fjöldamorð nú fyrir stundu. Fórnarlömbin voru draugamaurar. Síðastliðnar tvær vikur hefur borið á þessum agnarlitlu kvikindum á baðherberginu, fataherberginu, eldhúsinu, borðstofunni, hári unga litla.....stopp....já á hári unga litla. Umburðarlyndi Skrukku fyrir málleysingjum hvarf sem dögg fyrir sólu og vopnuð eitri dró hún augað í pung og lét til skarar skríða.

Á baðkarsbrúninni voru að minnsta kosti 70 draugamaurar og áttu sér engrar undankomu auðið. Skrukka tók þá upp með eldhúsþurrku að úðun lokinni og henti þeim í ruslið. Ungi litli horfði stóreygður á. Einn maur náði að komast undan og ungi litli kramdi hann með litla feita puttanum sínum og sigri hrósandi sýndi hann skrukku kraminn maurinn á fingurgóminum.

Núna iðrast skrukka gjörða sinna og veltir því fyrir sér hvort hún hafi kennt unga sínum að sýna miskunnarleysi og grimmd við þá sem minna mega sín......

12. ágúst 2004

Táfýla í Barcelona

Kerling fór til Barcelona á dögunum. Gekk um í opnum skóm, bómullarpilsi og bómullarhlýrabol. Eitt kvöldið þegar karl og kerling sátu örmagna eftir allt labbið á Ra Rambla á hjónarúminu í fína hótelherberginu og horfðu á Sean Connery tala katalónsku meðan barnið gaf barbí að borða, þá varð kerling skyndilega vör við megna táfýlu. Að sjálfsögðu leit kerling ásakandi augum á bónda sinn, enda orðin nokkuð viss um uppruna slíkrar lyktar, svona að fenginni reynslu. Hallaði hún sér fram og laut niður til að þefa af tám hins meinta sökudólgs, búin að setja upp grettuna framan í andlitið, tilbúin að segja "oooojjjjjjj". En viti menn, uppruna fnyksins var nú ekki þar að finna. Hófst nú táfýluleitin mikla. Ekki af karli. Ekki af barni. Ekki af barbí. Skyndilega rann upp ljós fyrir kerlingu. Táfýlan var af henni. Og ekki bara af tánum. Ónei. Heldur var líka táfýla á milli brjóstanna. Kerling botnar bara ekkert í þessu. Það hefur nefnilega ALDREI verið táfýla af kerlingu. Tær kerlingar hafa ávallt verið lausar við slíkan viðbjóð. Kerlingu grunar helst að á La Rambla hafi hreiðrað um sig bakteríur sem hafi dottið af tám túristanna og svo þegar kerling hafi gengið hjá, með sínar ilmandi fögru tær, hafi þær ekki getað staðist freistinguna og stokkið á hinar íðilfögru vellyktandi tær kerlingar. Þegar kerling reifaði kenningu sína fyrir karli horfði hann bara kaldhæðinn á hana og spurði: Eru bakteríurnar með svo mikinn stökkkraft að þær gátu lent á milli brjóstanna á þér?

Sumar

Það er svo rakt og heitt að þegar skrukka fer út þá kemur móða á gleraugun. Oftast gengur skrukka með linsur, en hún nennir því ekki þegar hún ætlar sér bara að vera heima og stúdera. En í morgun fór hún út í búð til að sanka að sér nauðsynjum ef ske kynni að Fellibylurinn Charley kemur í bæinn. Reyndar var allt vatn búið, en skrukka var vel birg fyrir. Það voru aðallega bleyjur og bensín sem hún var að hamstra. Reyndar eru litlar líkur á að hann komi hingað, en allur er varinn góður og fellibyljatímabilið er jú bara rétt byrjað.

Skrukka fær fréttir af hitamollu á Íslandi. Hún hefur eitt ráð: bómull. Best er að vera í fötum úr bómul í miklum hitum. Svo er eitt atriði í viðbót sem er máski bara aukaatriði, en skrukku finnst nauðsynlegt að ef konur ætla sér að vera í opnum táskóm þá er nauðsynlegt að vera með vel snyrtar táneglur, skemmir ekki ef þær eru líka lakkaðar.

Það lítur út fyrir að Kerry verði farsæll hérna í Flórída í kosningunum í haust, eftir nýjustu tölum að dæma. Mikið væri nú gaman að ef hann sigraði í kosningunum. Skrukka er orðin leið á Bush, hann er ekki fyndinn lengur. Annars er hérna skemmtilegt myndband með þeim félögum Bush og Kerry

http://atomfilms.shockwave.com/contentPlay/shockwave.jsp?id=this_land

Njótið vel.

21. júní 2004

Ævintýrin gerast úti.

Í kvöld ákvað kerling að gera að veruleika margra ára draum, að ganga upp á Esjuna. Kerling hefur Esjuna innrammaða í stofugluggann og hefur undanfarin ár fylgst vel með litabrigðum drottningu fjallanna. Sl. tvær vikur hefur ljósgrænn blettur í rótum Esjunnar orðið æ meira áberandi, og nú veit kerling hvað er þar á ferð. Kerfill í miklu magni. En kerling komst ekki á toppinn. Ónei. Hún komst upp á Kögunarhól, en varð að snúa við vegna ofurþreytu og andþrengsla. En börnin þrjú, ásamt karli, skoppuðu glöð upp hlíðarnar, og hefðu léttilega komist á toppinn ef þau hefðu ekki þurft að hafa kerlingu í eftirdragi. Það var súrt í broti að þurfa að játa sig sigraða, en ljóst er að kerling verður núna að toppa sjálfa sig. Kerling minnist núna átaksins mikla, sem svona hægt og rólega varð að ósköp litlu. En kerlingu líkar ekki við líkamsræktarstöðvar. Hún hatar lykt af öðru fólki, þunga loftið og þrengslin. Og hvað allir eru ofboðslega meðvitaðir. Þessar stöðvar gera kerlingu ekki hamingjusama. Það gerir hins vegar útiveran. Kerling hefur verið nokkuð dugleg við að ganga undanfarnar vikur, og finnur mun á sinni. Það skemmtilega við útiveru er að stundum er hægt að lenda í ævintýrum úti, hið sama má ekki segja um hinar steingeldu stöðvar. Þannig varð kerling hetja dagsins í augum nokkurra hestamanna á Þingvöllum í gær, en kerling var í gönguferð ásamt stórfjölskyldunni og var Skógarkotsleiðin gengin. Kerling arkaði á undan öðrum fjölskyldumeðlimum og var í þungum þönkum. Skyndilega heyrðist hratt hófatak og frís og brúnn hestur með beisli og hnakk, en engan knapa, kom á fljúgandi siglingu á móti kerlingu. Kerling lamaðist hreinlega til að byrja með, en hafði svo rænu á að stökkva til hliðar og garga á samferðamenn að vara sig, því ekki ætlaði hestkvikindið að stoppa þrátt fyrir að kerling í öllu sínu veldi reyndi að stöðva hann með fálmkenndu handapati. Furðulostin horfði kerling á eftir hestinum stökkva í átt að Almannagjá, en vart var hún farin að ímynda sér illa særðan knapa liggjandi í runnum Bláskógs þegar hún heyrði mun háværari hófadyn koma úr sömu átt. Skyndilega birtust 8 hestar á harða stökki. Voru þeir með áþekkan útbúnað, en engir voru knaparnir. Kerling, reynslunni ríkari, varð hugaðri en allar karlhetjur Íslendingasagna til samans og stökk í veg fyrir hestana, sagði hátt "svona svona" með djúpum rómi og gerði þeim fyllilega ljóst að ekki kæmust þeir framhjá kerlingu nema þeir fengju vængi eins og fuglinn fljúgandi. Hestarnir sáu að hér var nú við ramman reip að draga og drógu úr ferðinni, tóku svo fetið til kerlingar og nudduðu sér upp við hana. Var kerling eldsnögg að taka í tauma hestanna og skipa fjölskyldumeðlimum að aðstoða, þ.e. þá sem voru ekki þegar flúnir lengst inn í skóg. Var kerling hvummsa þegar hún sá að beisli sumra hestanna var bundið við annan framfótinn. Fast reyrt og sá á blóð hjá sumum. Leið nú og beið, og heyrðist enn á ný hófatak. Og nú voru menn með í för. Hýrnaði yfir andlitum þeirra er þeir sáu bjargvættinn með hestana átta. Voru þeir nú samt mjög vandræðalegir, enda arfalélegt að missa frá sér hesta. Kerling benti þeim á framfót hestanna, og að sumir væru særðir. Sagði einn maðurinn að þetta hefði væntanlega gerst meðan hestarnir hlupu. Kerling fannst það nú ótrúleg skýring, enda ólíklegt að tvöfaldur hnútur verði til af sjálfu sér. En þar sem það þykir nú bera vott um lítilmennsku að saka bláókunnugt fólk um lygi þá sagði kerling: Já, það hlaut að vera, ég trúði því nú heldur varla að menn gætu gert svona lagað við blessuð dýrin!

11. júní 2004

Fréttir

Það er helst í fréttum innanlands á Íslandi að refur gerir skunda á bæ, rjúpum fer fjölgandi og fimm hrefnur hafa veiðst. Þetta er ekkert nema ofurkrúttað!

Héðan er það helst í fréttum að þak Skrukku hrundi. Skrukka veltir því fyrir sér hvort hún hafi gert eitthvað á hlut nágranna síns nornarinnar........

8. júní 2004

Nornin

Skrukka er smáborgari. Henni finnst mikilvægt að allt sem kemur að henni líti vel út. Skrukka býr í íbúð á annarri hæð og er með litlar svalir sem liggja að sundlauginni. Hún sópar þær reglulega, vökvar fallegu pottaplönturnar daglega og er ánægð með lítil og lekker húsgögnin sem hún keypti í fyrra. Því miður eru ekki allir í sambýlinu eins iðnir við að nostra sína fermetra sem liggja utan við íbúðirnar. Þegar gengið er inn í íbúðina hennar Skrukku er ekki hjá því komist að horfa niður í smágarð nágrannans sem býr á fyrstu hæð. Þetta er vel girtur blettur; girðingin er tveggja og hálfs metra há og enginn sér inn í hann sem labbar meðfram garðinum. Skrukku smáborgara er mikill ami þessum garði. Hann er illa hirtur, skítugur og uppfullur af rotnandi laufblöðum.

Fyrir jól þá flutti umræddur nágranni inn. Skrukka sá hann aldrei, en aftur á móti fór um það leyti að bera á miklum kattargangi um lóðina. Enn eru margir kettir á vappi. Alltaf þegar Skrukka og aðrir fjölskyldumeðlimir eru að ganga að bílnum má sjá nokkra ketti hingað og þangað um lóðina. Skrukka kippir sér ekkert upp við kisurnar. Þá haldast altént rotturnar í burtu, en á þeim hafði mikið borið áður en kisurnar fluttu inn.

Fyrir nokkrum vikum síðan, þá var Skrukka á ferð eldsnemma á laugardagsmorgni með unga. Þegar Skrukka var að ganga að bílnum, þá heyrði hún ámátlegt mjálm. Eftir stundarkorn áttaði Skrukka sig á því að mjálmið kom ofan úr tré og mátti sjá í lítinn grásvartan kettling. Hann var aðeins úr seilingarfjarlægð en þar sem Skrukka var mjög tímabundin, þá ákvað hún að freista þess að aðrir myndu taka eftir hnoðranum. En svo var ekki, því þegar Skrukka kom heim um kvöldmatarleytið, þá var vesalingurinn enn upp í trénu og bærði ekki á honum. Þetta hafði verið heitur hitabeltisdagur og kisi því væntanlega örmagna af þorsta. Skrukka klifraði upp í tréð (reif bolinn sinn í leiðinni) og fór með vesalinginn heim. Gaf honum að drekka, borða og setti flóalyf á hann. Eftir nokkurra klukkustunda svefn var kisi orðinn sprækur og fékk að fara til sín heima....þ.e. út.

Viku síðar var Skrukka enn á ferð og þegar hún gekk framhjá garði nágrannans, varð hún hvumsa. Þarna sat dularfulli nágranninn með litla kisann í fanginu og með þrjá aðra við fætur sér. Nágranninn dularfulli reyndist vera kona á miðjum aldri, þéttholda og með sítt eldrautt hár. Hún horfði skáhallt á Skrukku og geiflaði varirnar í það sem Skrukka vildi helst túlka sem kvikindislegt bros. Skrukka brosti taugaveikluð á móti og hraðaði sér í burt.

Skrukka er forvitinn smáborgari. Á hverjum degi grandskoðar hún garð nágrannans og leitar ummerkja sem geta stutt tilgátu Skrukku. Í dag varð Skrukka þess endanlega fullviss að nágranninn er norn. (Það er ekkert að marka holdafarið, þessi norn er amerísk og er því alveg í takt við meðalþyngd þjóðarinnar. Svo er ekkert sem segir það að nornir geti ekki verið þéttholda.)

Eftir að hafa skutlað unga á leikskóla, fór Skrukka að kaupa í matinn. Þegar hún var að rogast með innkaupapokana upp í íbúð, leit hún að venju í garð nágrannans. "Neiii, eru komnir kettlingar?" Hugsaði Skrukka með sér þegar hún sá eitthvað minna en fullorðna ketti standa við matardisk sem var fullur af kattarmat. Þetta voru ekki kettlingar þegar betur var að gáð. Þetta voru froskar. Tveir risavaxnir froskar. Þeir voru á stærð við Merrild kaffipoka.

Þarna sátu þeir í makindum og opnuðu munninn á víxl. Skrukka þaut inn í íbúð og náði í myndavélina. Hún er komin með sannanir. Rauðhærð kona, illa hirtur garður, kettir og núna froskar. Það þarf ekki frekar vitnanna við.

7. júní 2004

Miskunnsamir samverjar

Það hefur verið mikið álag á Skrukku undanfarið. Skröggur hefur verið að heiman í nokkrar vikur, prófatörn stendur yfir og ungi litli hefur verið kvefaður. Í gærkvöldi lagðist Skrukka örmagna til svefns og bað Guð um að láta tímann að prófalokum og heimkomu Skröggs líða fljótt og áfallalaust. Tíu mínútum eftir að Skrukka var farin að hrjóta var barið að dyrum. Þetta var skömmu fyrir miðnætti. Skrukka hrökk upp með andfælum og fálmaði eftir kjöthnífnum í eldhúsinu áður en hún pírði augun í gægjugatið. Þetta reyndist vera sonur nágranna Skrukku; ungur vandaður maður. Skrukka tók þjófavörnina af og opnaði dyrnar, úfin, enn með hamslausan hjartslátt og kjöthnífinn fyrir aftan bak. Sonur nágrannans baðst innilega afsökunar á ónæðinu, en hann vildi bara láta Skrukku vita að ljósin væri kveikt á bílnum hennar og bauðst til að fara og slökkva á þeim, þar sem Skrukka var á náttfötunum. Skrukka neitaði góðu boði, þakkaði fyrir og sagðist skyldu slökkva sjálf á ljósunum.

Skrukka fór í skó og gekk út á bílastæðið og slökkti á ljósunum. Það var ekki fyrr en á leiðinni tilbaka upp í íbúð sem Skrukka gerði sér grein fyrir því að þetta var ekkert nema góðverk að hálfu drengsins og fann þakklætið streyma um sig. Skrukka rankaði aftur við sér úr þakklætisvímunni þegar tveir slímugir froskar á stærð við stórar kaffikönnur hoppuðu í veg fyrir hana.

Þetta góðverk sparaði mörg sporin í morgun þegar Skrukka þurfti að vakna snemma til að koma unga til læknis. Barnalæknirinn er töluverðan spotta í burtu og erfitt að finna stæði. Ungi hagaði sér mjög illa hjá lækninum, sparkaði, argaði og grét hástöfum. Ungi fékk engar sprautur, en hann man bersýnilega eftir síðustu heimsókn og var ekki sáttur.

Ungi litli var greindur með eyrnabólgu og þurfti því að koma við í apóteki til að ná í lyf. Skrukka fór fyrst með unga á leikskólann og fór svo í apótekið þar sem henni var tjáð að heilsutrygging unga myndi ekki dekka lyfið og að það myndi kosta 7000 krónur. Skrukka tók andköf. Afgreiðslumaðurinn sagði henni þá að hún gæti farið aftur til læknisins og látið hann breyta lyfinu í dekkað lyf. Við þetta tók Skrukka enn meiri andköf, reif í hár sér, ranghvolfdi augunum, táraðist og sagðist svo ekki geta það; það væri allt of langt að fara, hún væri í miðjum prófum og að hún yrði víst að greiða þessa upphæð. Afgreiðslumanninn setti hljóðan en sagði svo að hann skyldi prófa að hringja í lækninn, að kona hans væri líka í prófum og að hann skildi Skrukku mjög vel. Eftir tíu mínútur gekk Skrukka út úr apótekinu með lyf handa unga og allan peninginn enn í buddunni.

Það má svo sannarlega segja að Skrukka hafi verið bænheyrð til þessa. Amen.