21. apríl 2004

Tannsi

Skrukka hefur undanfarið eytt töluverðum tíma hjá tannsa. Hann heitir Sherman, alveg eins og tannsinn í Finding Nemo. En þessi Sherman er ekki fyndinn fasisti eins og sá í Nemo, heldur er hann gull af manni og vill allt fyrir Skrukku gera. Að vísu kostar það skildinginn, en það er önnur saga. Sherman eða Fred eins og Skrukka kallar hann (hún hefur komið oftar en tvisvar á stofuna og því farin að kalla hann fyrsta nafni) er eins og aðrir tannsar hér í Ameríku umhugað um bæði innra og ytra útlit tannanna. Gömlu silfurfyllingarnar sem voru farnar að leka var skipt út fyrir hvítt postulín og svo eyddi hann miklum tíma í að segja Skrukku frá því hvernig hægt sé að gera tennurnar kvenlegri. Jamm, það er víst ansi mikil sálfræði sem liggur að baki mati fólks á tönnum. Karlar eru flottir með stórar kantaðar tennur en konur þykja fínar með minni og ávalar tennur. Skrukku þykir þetta merkilegt, hefur aldrei hugsað um þetta áður. Skrukka er með framtennur sem þykja karlmannlegar. Henni býðst að kvengera framtennur sínar sér algjörlega að kostnaðarlausu. Skrukka er á báðum áttum, finnst þetta eiginlega of fyndið til að vera að velta sér mikið upp úr þessu. En hún neyðist víst til þess og nú ætlar hún að hugsa um þetta í þrjá daga. Henni hefur alltaf leiðst karlmannlegu framtennurnar sínar (voru áður kallaðar stórar kanínutennur) og kannski er mál til komið að feta í fótspor allra hinna og fara í mini extreme make-over. Tíu sekúndur og Skrukka mun fá kventennur og þar af leiðandi komast í betur samband við sitt rétta kveneðli.......mmoooouuuuuuhhhhhhahahhahhahahahahhaha

8. apríl 2004

Í orði eða á borði

Það fyrsta sem kerling rak augun í þegar hún bar blaðastaflann á gólfinu í forstofunni augum, var heljarins fyrirsögn: Lagaprófessor segir Björn lifa í fortíðinni. Var ýmislegt haft eftir prófessor Eiríki Tómassyni, m.a. þetta: „Ég hef ekki heyrt annað en flestir stjórnmálamenn séu fylgjandi jafnrétti, ekki bara í orði heldur einnig á borði. Það virðist því sem Björn lifi í fortíðinni en ekki nútíðinni,“ segir Eiríkur.

Orð Eiríks yljuðu kerlingu í hjartastað. Eiríkur er maður dagsins. Eiríkur sem sjálfur var meðal umsækjenda í þetta háa embætti. Þessi afstaða hans sýnir nú hve mikill lögfræðingur hann er. Hans hagsmunir víkja fyrir lagabókstafnum. Björn er hins vegar í fallsæti vinsældarlistans. Að voga sér að láta svona út úr sér. Hann hefur greinilega ekki fylgst með könnunum VR og öðrum sem opinbera einungis eitt; Það ríkir ekki jafnrétti á Íslandi. Svo lætur hann ekki ná í sig. Það finnst kerlingu nú vera aumingjalegt. Honum er fyrir bestu að draga orð sín tilbaka. Það er uggvekjandi að maður með þessar úreltar hugmyndir um jafnrétti skuli sitja í ríkisstjórn Íslands.

Kerling var leið þegar Ólafur Börkur var skipaður Hæstaréttardómari. Ólafur Börkur er fínn dómari og duglegur. En kerling ól þá von í hjarta að næsti dómari yrði kona, að Hjördís Hákonar yrði valin. Afhverju kann einhver að spyrja, er eðlilegt að velja konu bara af því að hún er kona? Hjördís Hákonar er ekki bara kona, hún er líka mun hæfari en sá sem valinn var. Með meiri menntun og reynslu. Og hún er frábær dómari, á marga frábærlega vel rökstudda dóma.

Jafnrétti í orði eða á borði. Það er margt í laganna bókstaf sem manni finnst nú vera einungis til skrauts, en jafnréttishugtakið er yfir það hafið. Konur hafa virkilega þurft að berjast fyrir því að geta menntað sig, fá að njóta sömu réttinda og karlar, m.a.s. sjálfsagðra réttinda í dag, s.s. kosningaréttur og réttur til kjörgengis.

Í kærunefnd sitja þungavigtarlögmenn. Lögmenn sem eru þekktir fyrir dugnað og gáfur. Ef þeir hafa ekki rétt fyrir sér þá má kerling hundur heita.

6. apríl 2004

Marséring tíeyringanna

Þegar skrukka var heima á Íslandi, rak hún eitt sinn augun í bréf frá einu styrktarfélaganna. Þar var gíróseðill upp á 1800 krónur og var viðtakandi vinsamlegast beðinn um að styrkja gott málefni. Skrukku fannst þetta helst til mikil upphæð og spáir því að söfnunin muni ekki ganga of vel. Betri er sú taktík sem Marséring tíeyringanna (March of Dimes) notar. Sú líknarstofnun notar svokallaða "foot in the door" aðferð. En skrukka vill fyrst segja aðeins frá félaginu áður en hún útlistar strategíu þess.

Eins og flestir fróðir menn vita, þá veiktist Franklin Delano Roosevelt fyrrum Bandaríkjaforseti af mænuveiki og var bundinn við hjólastól stóran hluta ævi sinnar. Hann keypti heilsuhæli fyrir mænuveika árið 1926 og árið 1938 stofnsetti hann The National Foundation for Infantile Paralysis þar sem mænuveiki ungbarna var honum mikið áhyggjuefni. Styrktarfélagið stóð fyrir sinni fyrstu þjóðarsöfnun árið 1938 og voru Bandaríkjamenn hvattir til að senda tíeyringa sína beint til Hvíta hússins. Tíeyringarnir marséruðu í tonnavís til Hvíta hússins og nægur peningur safnaðist til að hjálpa bæði mænuveikissjúklingum og rannsóknum til að finna bóluefni gegn þessari skæðu sótt.
Árið 1958 var byrjað að veita fé til hjálpar fyrirburum og börnum með lága fæðingarþyngd. Á áttunda áratugnum var nafni styrktarfélagsins National Foundation for Infantile Paralysis breytt í March of Dimes.

Nú, skrukka var fyrst vör við tilvist þessa félags þegar hún fékk í pósti bréf frá þeim. Í bréfinu voru fullt af límmiðum með heimilisfangi skrukku. Límmiðarnir voru líka með sætu skrauti og varð skrukka mjög hrifin. Með þessum límmiðum var lítið bréf þar sem skrukka var beðin um að styrkja March of Dimes með því að senda annaðhvort 2 dollara, 4 dollara eða 6 dollara. Skrukku fannst þetta svo krúttleg upphæð að hún skrifaði ávísun med det samme upp á 4 dollara og sendi félaginu. Henni fannst hún líka þurfa að borga eitthvað fyrir sætu límmiðana því hún ákvað að nota þá á jólakortin og önnur bréf sem hún þurfti að senda. Skrukku fannst líka málefnið mjög verðugt, þar sem fyrirburar eru allt í kringum skrukku. Hún sjálf var fyrirburi, systur hennar, ömmur, vinkonur, börn systra, börn vinkvenna og svo framvegis. Nema hennar eigin ungi var ekki fyrirburi. Hann lúraði í kvið skrukku nánast fram á fermingaraldur.

Þetta var fyrir tveimur árum og síðan þá hefur skrukka reglulega fengið límmiðana sína og borgað með þeim. Upphæðirnar hafa þó hækkað, þar sem lífsgæði skrukku hafa lítillega aukist og því meiri tíeyringar á milli handanna. March of Dimes stendur líka fyrir árlegri söfnun í aprílmánuði. Skrukka fór út í búð um daginn og þegar hún var að greiða fyrir klósettpappírinn þá var hún spurð hvort hún vildi gefa einn dollara til styrktar Marséringu tíeyringanna. Ekkert mál sagði skrukka og reiddi fram dollarann. Í staðinn var hún látinn skrifa nafnið sitt á lítinn strigaskó úr pappír sem svo var hengdur upp á vegg búðarinnar þar sem hundruðir pappírsstrigaskór voru fyrir. Svo fór skrukka í banka og þar var hún spurð hvort hún vildi losa sig við tíeyringa sína til styrktar jú mikið rétt Marséringu tíeyringanna. Ókei, sagði skrukka og losaði sig við aurana í buddunni. Skrukka hefur aldrei leitt hugann að því hversu mikið hún hefur styrkt félagið. En í fljótu bragði má áætla að upphæðin sé komin vel yfir 30 dollara síðastliðna tólf mánuði. Þetta eru rúmar tvöþúsund íslenskar krónur. Það má með sanni segja að margt smátt gerir eitt stórt.

Blandari

Blandari, er það ekki íslenska orðið yfir blender? Eða var það hrærari...? Æ, kerling verður stundum rugluð í ríminu þegar ástkæra móðurmálið er annars vegar. En hér verður það blandari. Allavega, blandari var keyptur í gær. Kerling hefur þegar prófað sig áfram með ávexti, ber, skyr og safa. Allt voðalega gott. Í páskainnkaupunum verður keypt mikið af ávöxtum og skyri. Kerling sér fram á að eiga í langlífu ástarsambandi við þennan fallega blandara.

Átakið hefur þegar borið árangur. Fyrst ber að nefna svefninn. Kerling er steinrotuð á nóttunni. Þvílík sæla. Svo eru fötin oggupínkupons víðari. Og þá á kerling oftar stefnumót við Gustavsberg, mikil losun í gangi. Kerling væri alveg til í að hafa aðgang að amerískum klósettpappír þessa dagana. Að lokum er ekki frá því að úthald kerlingar er orðið aðeins betra. Hún er hætt að svitna þegar hún gengur upp stiga.
Batnandi mönnum er best að lifa. Ójá.

5. apríl 2004

Klósettpappír

Yndislegur dagur í hitabeltinu; ekki of heitt, ekki of kalt. Skrukka er skrögglaus í fáeina daga sér því ein um unga og bú. Ungi fór í leikskólann í morgun því skrukka ætlar sér marga hluti í dag. Það þarf að fara í banka, viða að sér heimildarmönnum fyrir næsta skilaverkefni, kíkja aðeins í sólbað og kaupa klósettpappír. Það síðastnefnda er ánægjulegt verkefni. Hérna í allsnægtalandinu er einungis gæðaklósettpappír á boðstólum. Ekki þessi fjandsamlegi sem fæst heima í Bónus. Sá dýrasti í Nóatúni stendur jafnvel þeim ameríska langt að baki. Þegar skrukka hefur fengið gesti að heiman hafa þeir allir undantekningarlaust hrósað klósettpappírnum, hann þykir svo mjúkur. Fólk ræðir ekki mikið þá hluti sem snúa að salernisvenjum þess og því er þetta ansi athyglisvert. En ef litið er til þess hversu mikilvægur klósettpappírinn er okkar daglega lífi, þá er þetta bara mjög skiljanlegt. Hvernig stendur á því að kaupmenn heima selja svona lélegan klósettpappír? Eru þeir virkilega svo gráðugir að þeir kaupa inn versta pappírinn í þeim tilgangi að geta lagt sem mest á hann? Er þeim alveg skítsama um auma afturenda viðskiptavina sinna? Greinilega.
Á meðan skrukka býr í gósenlandinu mun eðalpappír vera keyptur og allir afturendar munu gleðjast.

Páskafrí

Kerling vaknaði við að sólin skein inn um gluggann. Hún var að fara að breiða sængina yfir höfuðið á sér þegar hún mundi skyndilega að hún tók sér frí í dag. Og á morgun og hinn. Og svo koma lögboðnu frídagarnir. Þessi ánægjulega uppvakning varð til þess að kerling fór á fætur kl. sjö í morgun. Sem verður að teljast algjört met. Ein vafraði hún um íbúð sína, lokaði dyrum inn til barna og karls og læddist á tánum fram og naut þess í botn að vera ein svona með sjálfri sér á mánudagsmorgni. Karl læddist fljótlega fram á eftir henni, en aumingja karl þurfti að mæta til vinnu, og því var kerling áfram ein með sjálfri sér fram eftir morgni. Gat hún baðað sig og snyrt og lesið blöðin í rólegheitunum. Þvílíkur munaður. Það er á svona stundum sem kerling verður nokkuð sátt við lífið og tilveruna, ef ekki bara hamingjusöm. Svo er kvefið bara að láta undan sýklalyfjunum sem kerling varð sér úti um í gegnum klíkuskap. Kerling er jarðbundin og sá fram á að hún myndi nú ekkert sigra þessa pest með vítamínum og tei. Og þar sem kerling lýsti því yfir að hún ætlaði sér að sigra þessa óværu þá varð hún auðvitað væsgú að standa við það. Enda ómögulegt að fara í frí og vera með svona slæma kvefpest. Enda afhverju ætti fólk að líða þjáningar þegar hægt er að koma í veg fyrir það?

4. apríl 2004

Pálmasunnudagur

Pálmasunnudagurinn hefur verið alveg ágætur fram að þessu. Skrukka býr nánast í hitabeltinu og er veðrið hér með mestu ágætum; glampandi sól og tuttuguogfimm stiga hiti í forsælu. Vinkona skrukku kom eldsnemma í morgun með ungann sinn og var ungi skrukku að vonum mjög ánægður. Þeir léku sér saman, rifust, slógust, sættust og kysstust á meðan skrukka og vinkona körpuðu um launakjör unglækna. Vinkona skrukku er fræðikona og er vel að sér í mörgum málum. Skrukku finnst gaman að ræða við viturt fólk.
Skrukka bauð vinkonu upp á drykk úr Grænum kosti Hagkaupa og sló í gegn. Eftir veitingar voru allir drifnir út í góða veðrið. Farið var í stóran almenningsgarð og fengu ungarnir að róla og renna sér. Umræður skrukku og vinkonu var haldið áfram en inntakið var annað. Sexí karlmenn. Skrukka og vinkona voru sammála um það að karlar með völd geta oft verið ansi sexí. Karlar sem sjá vel fyrir konum sínum eru líka sexí. Karlar sem tala mikið eru ósexí. Karlar sem eru gáfaðir eru sexí.