26. júlí 2005

Sótsvartur silungur...

...og grillaðir rostungar í suðursjó#*!!*

Kerling er fremur pirruð þessa stundina og verður hugsað til Kolbeins kapteins á stundu sem þessari. Kerling hafði skrifað langt og ítarlegt blogg, en þá datt netsambandið út. Glatað.

Kerling er á leið í mikla göngu og stendur undirbúningur sem hæst. Kerling hefur m.a. útvegað sér bók sem heitir Ferðafélaginn og þar er unnt að læra að þekkja áttirnar...enda kerling stundum áttavillt eins og kunnugt er orðið. Einnig eru ítarlegar leiðbeiningar um útbúnað í ferðum sem þessum og hefur kerling verið að endasendast um bæinn þverlangan í allan dag til að verða sér úti um aukareimar í gönguskóna og föt úr gerviefnum. En þetta er mjög skemmtilegt verkefni þrátt fyrir nokkuð búðarráp. Kerling komst að því í verslunarleiðangrinum að hægt er að kaupa tvo pakka af eyrnatöppum fyrir tæpar 400 kr. í bókabúðum. Kerling lét nú ekki bjóða sér svona vitleysu, enda vön á sínum mögru námsárum að kaupa þessa pakka á nokkrar krónur í Bóksölu Stúdenta. Kerling fór á endanum í apótekið í Kringlunni, enda nennti hún ekki vestur í bæ, og viti menn, þar fékkst pakkinn á 25 kr. stykkið.

En það styttist í ferðina og kerling á fljótlega von á Snjófusi í heimsókn þar sem taka þarf ákvörðun um það hvað eigi að eta í ferðinni. Kerling stólar á Snjófus, enda daman sú þekkt fyrir að kunna að dekra við sig.

21. júlí 2005

Sveitarómantík

Sumarfrí skrukku hófst með miklum rigningum sem ágerðust eftir því sem skrukka og fylgdarlið fóru norðar í land. Í rúma tvo daga sást ekki til himins; reyndar var skyggnið svo slæmt að það þótti gott ef það náði heila tíu metra. Hvílíka þoku og rigningu hefur skrukka aldrei séð svona yfir hásumarið. Fjölkynngi kerlingar er þó með ólíkindum, en kerling hefur alltaf verið svolítið áttavillt og því fóru stigin 25 og heiðbláminn suður í borgina og urðu kerling, skrukka, snjófus og kompaní að haska sér suður tveimur dögum á undan áætlun.

Það var svolítið sorglegt að geta ekki skoðað galdrastaðina og soðið seyði og kyrjað nokkur stef. En svona í sárabætur þá kom skrukka auga á fálka, sel og sannfærðist loks að hún er og verður ekkert nema alvöru borgarbarn. Svona útkjálkar eru sko ekkert að gera sig, ekki í svona veðrum. Sveitarómantík er bara sveitarómantík þegar ekki sést skýhnoðri á himni og stigin eru a.m.k. yfir fimmtán, annars er þetta bara eymd, fátækt og volæði....og alveg hryllilega smekklaust. Hefur fólk ekki heyrt minnst á Ikea eða hvað?

En dagurinn í dag og gærdagurinn hafa verið himneskir. Skrukka hefur hrotið frameftir öllu, legið í sólbaði, farið á ylströndina, sníkt grillmat hjá vandamönnum og lesið nýjustu Potter bókina sem er bæ ðe vei hin ágætasta skemmtun og gefur hinum bókunum ekkert eftir. Einnig fór skrukka og ungi í Árbæjarsafn í dag og mikið er þetta safn nú yndislegt, sérstaklega í svona blíðskaparveðri.....ekta sveitarómantík og það í hjarta borgarinnar!

15. júlí 2005

Sumarið

Sumarið kom loks í gær. Kerling er nokkuð grilluð á bringunni og hægri öxlinni eftir sólina í gær. Snjófus og Skrukka komu og sleiktu sólina hjá kerlingu í gær og um kvöldið var að sjálfsögðu grillað. Það versta er að sumarið virðist vera farið aftur í bili.

Veðurspáin er ekkert spes fyrir Vestfirði næstu vikuna. Skýjað og rigning. En það breytist, kerling mun með fjölkynngi sinni, sem mun stóreflast á Ströndum, særa fram blíðviðri og sól.

Draumabílinn er ekki fundinn. Og mun ekki finnast í bráð. Kerling og karl ákváðu að eyða fé sínu í ferðalög erlendis fremur en í afborganir af bílalánum. Hananú.

11. júlí 2005

Nú er nóg komið

Karl og kerling héldu til óbyggða í gær ásamt börnum sínum þremur. Var ferðinni heitið á Reykjanesið til gönguferða. Eftir að hafa ekið eftir greiðfærum og malbikuðum þjóðvegi, lá leiðin yfir mjög slæman malarveg. Þýska eðalkerran, sem er augljóslega fyrst og fremst ætluð fyrir hraðakstur á þýskum autobahn, var nú ekkert að rokka þarna á malarveginum, það verður nú bara að segjast. Karl var svo sem heldur ekkert að hægja ferðina þrátt fyrir ítrekuð aðvörunarorð kerlingar og ók hann greitt yfir með rólyndissvip, og rétt tyllti vinstri vísifingri á stýrið eins og um væri að ræða kjöraðstæður til aksturs.

Þegar svo sprakk á bílnum þá varð kerling ekkert voðalega hissa. Eiginlega hlakkaði hálfpartinn í kerlingu, enda hafði hún jú látið aðvörunarorð falla sem að venju voru hunsuð. Karl skipti um dekk með samanbitnar varir, kerling aðstoðaði glottandi og í bílnum mátti sjá stóreygð börn sem upplifðu þetta sem hið mesta ævintýri.

Karl ók eftir þetta ósköp varlega og þegar á áfangastað var komið heppnaðist gönguferðin vonum framar. Gengið var inn í fjall öðrum megin og út hinum megin, sólin skein meðan áð var og allir voru í ljómandi skapi, enda fátt betra fyrir heilsuna en góður göngutúr fjarri mannabyggðum.

Á leiðinni heim var rætt um bifreiðar, notagildi þeirra og tilgang. Þetta litla atvik leiddi hugann að því hvað nauðsynlegt er að vera vel búinn sé ætlunin að ferðast innanlands. Það er auðvitað alveg glatað að geta ekki farið rétt út fyrir þjóðveginn án þess að eiga hættu á það springi eða eitthvað gefi sig. Auðvitað hefði ekkert sprungið á dekkinu ef karl hefði ekið varlega, en ekki verður fram hjá því litið að eðalkerran hristist öll og skalf og það var bara ömurlegt að sitja í henni á þessum malarvegi.

Aldrei þessu vant voru karl og kerling sammála um að nú væri nóg komið, nú þyrfti að finna almennilegan bíl svo hægt væri að komast í almennilegar gönguferðir. Karl og kerling fóru við svo búið í bókabúð Máls og menningar og keyptu sér Swiss Mokka og landakort (fáranlega mikið til af malarvegum í landinu) og fóru svo á allar bílasölur bæjarins. Leitin bar engan árangur. Jafnfamt er búið að þræða allar netsíður, en ekki finnst draumabílinn. En ekki verður gefist upp.

Leitinni verður haldið áfram.

9. júlí 2005

Umsviptingar

Líf skrukku hefur tekið stakkaskiptum. Á öllum sviðum. Í fyrsta lagi er skröggur kominn heim. Sem þýðir það að skrukka hefur ekki þurft þvo þvott, strauja vinnuskyrtur, búa um rúm, setja í uppþvottavél, ryksuga, sópa und so weiter und so weiter. Í öðru lagi er ungi í sumarfríi sem þýðir það að skrukka hefur varla haft sig á fætur á morgnana. Ekkert er eins svæfandi og svefnhljóð í litlu barni. Í þriðja lagi er skrukka búin að segja upp starfinu sínu. Í fjórða lagi er skrukka búin að fá nýtt starf.

Og hvernig líður svo skrukku eftir þetta allt saman? Bara vel. Svolítið pirruð, svolítið kát, svolítið kvíðafull, svolítið full tilhlökkunar. En mest af öllu svolítið undrandi; alveg merkilegt hvað allt þarf að gerast á sama tíma!

Nú, sumarið hefur verið ansi viðburðarsnautt svona í sumarmálum. Skrukka hefur ekki enn klifið fjöll eða legið í sólbaði. Aftur á móti fjárfesti (gefið gaum að orðinu "fjárfesti") skrukka í nokkrum pörum af sumarskóm, svona þremur pörum. Gull, hvítum og svörtum. Átti bleika, græna, brúna og bláa fyrir. Þetta hefur verið eina sumarkikkið sem skrukka hefur leyft sér. Framundan er að vísu ferð norðvestur á Strandir með kerlingu, snjófusi, öldruðum foreldrum og fylgdarliði. Gist verður nokkrar nætur í Álfasteini og vonandi verður farið í marga göngutúra, fullt af sundi, mikið grillað, hlegið, skálað, spilað, talað, lesið......ahhhhhhhh


Nú er skröggur búinn að tæma óhreinaþvottakörfuna, allt orðið hreint, brotið saman og komið í skápa. Skröggur og ungi eru klæddir, greiddir og ungi hjalar saddur og ánægður með dúkkurnar sínar inni í herbergi. Skrukka situr hérna krumpuð í náttfötunum, ógreidd og svona lítið samviskubit er farið að síast inn, sem er náttúrulega út í hött svona miðað við að þetta er móment sem skrukka hefur beðið eftir í nokkra mánuði, þ.e. að fá að vera úldin og krumpuð í friði eins lengi og vilji endist. Bendi endilega á bókina Móðir í hjáverkum í þessu tilliti. Góð og þörf lesning fyrir nútímakonur. Skrukka er að vísu ekki búin með bókina en hún lofar góðu. Kannski bókin klárist á þessu ári, svona miðað við þann tíma sem skrukka hefur til að fá að vera í friði úldin og krumpuð.

6. júlí 2005

Vistaskipti

Kerling tók sig til um daginn og ákvað að hana langaði að breyta til. Fimm dagar liðu og nú hefur kerling sagt skilið við sinn gamla vinnustað og mun hefja störf á nýjum vettvangi innan mánuðar. Skjótt skipast veður í lofti.

Kerling er nokkuð spennt yfir nýja vinnustaðnum og dauðfegin að vera laus við þann gamla, sem færði kerlingu ekkert nema mikla vinnu. Og smá þras og leiðindi líka sem ósegjanlega gott er að losna við. En kerling er líka reynslunni ríkari og veit að hún getur skilið nokkuð sátt við.

Og núna er bara sumarfrí framundan.....aaaaahhhhhhh.

2. júlí 2005

Kaffi

Kerling var að hella upp á kaffi í rigningunni og sólinni. Veðrið veit ekkert hvernig það á að láta, það skiptist á skin og skúrir.

Fyrir um ári síðan drakk kerling upp undir 10 bolla af kaffi á dag. Svo var tekin ný kaffivél í notkun, þessi flotta skemmtilega, sem hellir upp á einn bolla í einu, og kerling hélt uppteknum hætti og hélt áfram að drekka svipaðan fjölda af kaffibollum á dag. Nema hvað að eftir nokkra daga fann kerling fyrir mikilli streitu, hjartsláttartruflunum, svefnleysi og tók upp á því að fá svitaköst í tíma og ótíma. Um svipað leyti heyrði hún að kaffið úr þessum fínu vélum væri mun sterkara en það sem kæmi úr venjulegri uppáhellingu, einn bolli samsvaraði um 3-4 af venjulegum. Bara eins og expressó. Kerling hafði bara ekkert leitt hugann að þessu. Samkvæmt þessu var kerling að drekka um 30 bolla á dag. Núna lætur kerling sér 2-3 bolla duga, og stillir vélina þannig að blandan verði daufari.

Kerling er sem sagt farin að drekka sama magn af kaffi og hún gerði þegar hún hóf kaffidrykkju fyrir alvöru. Sumir geta munað nákvæmlega hvenær sú drykkja hófst. Kerling er ein af þeim. Það var þegar hún var au-pair eða haustochter í Þýskalandi. Fyrsta kvöldið sitt þarna úti þá tók húsfreyja kerlingu tali og ræddi við hana um hitt og þetta. Sýndi henni svo nákvæma innviði hússins, m.a. vínkjallarann og kjarnorkubyrgið. Þegar kerling og húsfreyja voru svo komnar í eldhúsið þar sem kaffivélin trónaði á borðinu þá snéri húsfreyja sér að kerlingu og spurði blítt: Hvað drekkur þú marga kaffibolla þegar þú snæðir morgunverð? Tvo sagði kerling án þess að hugsa sig um. Samt hafði hún aldrei drukkið kaffi með morgunmatnum. Bara sötrað kaffi á þessum þremur kaffihúsum borgarinnar sem voru til á þeim tíma, svona bara til að sýnast.

Kerlingu fannst þetta með ólíkindum nánasarleg spurning og efaðist hreinlega um gott innræti húsfreyjunnar. En krafist var svars og svar fékk húsfreyja. Kerling gat ekki annað en drukkið þessa tvo kaffibolla, annars hefði hún haft það á samviskunni að bruðla með kaffi. En bruðl er eins og almennt er vitað ein af dauðasyndunum sjö samkvæmt þýskum skilgreiningum. Eftir þetta hefur kerling ávallt drukkið tvo bolla af kaffi á morgnanna.

Varðandi nánasarháttinn, þá er kerling í dag þeirrar skoðunar að þarna hafi kristallast sá munur sem er á íslensku samfélagi og þýsku. Hefur ekkert með nísku að gera, bara menningarmun sem stafar af reynslu þjóðanna sem leitt hefur af sér mikla nýtni og framsækna umhverfisstefnu hjá Þjóðverjum en óforsvaranlega og græðgislega neyslu hjá Íslendinum.