4. apríl 2004

Kerling sigurvegarinn

Í morgun var boðið upp á kvef, hálsbólgu og aukavinnu í fyrirhuguðu páskafríi. Sólarglætan í dag er fermingaveisla og þær kræsingar sem vonandi verða þar á boðstólum. En að öðru leyti hefur kerlingu orðið vel til vina við C-vítamínspillurnar og ólívulaufin, og skjalabunka sem lesa þarf fyrir morgundaginn. Kerling ætlar að sigrast á þessum þrengingum.

Þegar útlitið er svart virðist gefast best að sætta sig við aðstæður og gera það besta úr þeim. Líta á kvefið sem frábæran grundvöll fyrir tilraunastarfsemi. Mixa saman C-vítamínríkum ávöxtum og klaka, drekka og kanna áhrifin, þ.e. hvort hálsbólgan hafi ekki aðeins minnkað. Prófa teið sem var keypt fyrir löngu síðan í einhverju heilsukastinu sem stóð yfir í þær tvær mínútur sem tók að kaupa það. Fara í sjóðandi heita sturtu og vonast til að nokkrar kvefbakteríur skolist niður með sápunni í niðurfallið. Taka svo skjalabunkann og áætla magnið fyrir hverja klukkustund, taka svo tímann og sjá hvort manni takist áætlunarverkið. Komast út úr þessum þrengingum eins og sannur sigurvegari.

Þessi tími ársins býður upp á svona jákvæða afstöðu. Í dag er pálmasunnudagur, upphafið að páskahátíð kristinna manna. Í huganum mun kerling fylgja frelsaranum þar sem hann reið fyrst inn í Jerúsalem sem hinn sanni sigurvegari, þegar hann snæddi síðustu kvöldmáltíð sína með lærisveinum sínum og þegar hann var svikinn, húðstrýktur, krossfestur, dáinn og grafinn, en reis upp sem sigurvegari á páskadagsmorgun. Að vísu er nú varla hægt að líkja saman þrengingum kerlingar og því sem Kristur tók á sig fyrir mannkynið. Nema þetta að hugsa ávallt sem sigurvegari. Láta ekkert buga sig, leyfa sjálfum sér ekki að leggjast í sjálfsvorkunn og kör. Takast á við þessi leiðindi sem bíða ávallt handan við hornið.
Það sýður á katlinum.