3. apríl 2004

Skattmann

Kerling er vond út í skattinn. Öskuvond. Ekkert raul í gangi í dag. Bara hávært taut. Kerling fær nánast engar vaxtabætur í ágúst. Allt út af lögum sem voru samþykkt rétt fyrir jól, tóku gildi í byrjun þessa árs og voru látin gilda afturvirkt fyrir allt síðasta ár. Eða þetta sagði skattalögfræðingur kerlingar þegar kerling barmaði sér við hann í gær. Stjórnarskrárbrot hefur verið framið á kerlingu. Stjórnarskrárbrot ójá.

Kerling ætlaði sér að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins sem er endalaust að pirra hana. Og rest átti að fara í sumarfríið.

Kannski kerling fari bara í mál við ríkið. Er alveg vís til þess núna.